2.12.2008 | 09:36
SEGIÐ SVO AÐ MÓTMÆLI VIRKI EKKI !
Þarna hafa menn gengist við því að stjórnvöld eru valin af fólkinu og ef fólkið vill stjórnvöld frá, "ÞÁ FARA ÞAU FRÁ", og kosið er að nýju. Deila má um það hvort slíkt sé heppilegt, en ef einhver verður uppvís af því að stela úr peningakassanum, þá er hann ekki ráðin til að ransaka málið sjálfur, þó hann viti nákvæmlega hvað gerðist ! Það þarf nýtt lið og óháða aðila til að taka við stjórnartaumunum til að fá réttláta niðurstöðu og aðgerðir sem ekki eru til þess fallnar að breiða yfir spillingu og SJÁLFGRÆÐI, eins og gerst hefur í bankamálum þjóðarinnar. Stóhluti ráðherra og þingmanna eru að einhverju leiti beint eða óbeint, flæktir í þessi mál of djúpt, saman ber fyrrum eigandi í Sparisjóði Hafnarfjarðar, eiginkona eins af toppum Kaupþings og fleiri væri hægt að telja upp. Það sem mér finnst þó verst er að ef til stjórnarskipta kæmi, að þá er ekki víst að í tvö embætti réðust tvær af landsins bestu stjórnmálakonum, sem nú eru í stjórn, Jóhanna Sigurðardóttir í félagsmálaráðuneytið og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir í menntamálinn. Þarna fara tvær mjög heilsteyptar konur í þeim embættum sem þeim er falið og væri það slæmt að missa þær úr ríkisstjórn. Allir hinir eru útskiptanlegir og hafa ekki sýnt neinar þær dyggðir sem sæma góðum ráðherrum og hver sem er gæti gert betur en þeir. Því er ekki að undra að jafn öflug mótmæli og hafa verið að undanförnu sé verulegur stuggur á ríkisstjórnina, Geir óttast að verða atvinnulaus og því má hann ekki prófa það eins og svo margir aðrir eru að reyna þessa dagana?
Fallast á að yfirgefa flugvöll | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.11.2008 | 11:24
Hvar var fjármála eftirlitið ???
RÁNISTA og Gift þarna eru Framapoturum best líst, þeir hafa ekki einu sinni traust innbyrðis og stela úr eigin vösum. Þessa menn á að bera á torg og hýða opinberlega (en annars er ég á móti ofbeldi) eða amk kasta fúleggjum í þá, samviskulausa ræningja, ræningjarnir í Kardimommubænum höfðu þó smá samvisku og tóku upp betri siði.
Hart tekist á í stjórn Giftar á meðan verðmæti brunnu upp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.11.2008 | 17:19
SKOÐANA OG TJÁNINGARFRELSI ÖLLU ÆÐRA !!!
Það kann einhverjum að finnast það stuldur að hafa efni með sér af vinnu stað, sem viðkomandi er höfundur að og á þátt í að framleiða, en svo er ekki, það heitir að nota eigið efni. Ekkert hefur komið fram um hver tók myndirnar og ef eitthvað er ábóta vant þá er það viðhorf RÚV um hver eigi höfundarrétt á því efni sem þar er framleitt, sér í lagi þar sem ekki er um að ræða leikstýrðadagskrá, heldur vettvangsmyndir og efni, sem háð er viðbrögðum og sköpunargáfum þeirra starfsmanna, þegar hlutirnir gerast.
það er með eindæmum hve stjórnmálamenn vilja stýraskoðunum annara og ritstýra því sem um þá er fjallað. Það er augljóst í þessu viðtali að Geir sýnir hroka og dónaskap af versta tagi, hann sem forsvarsmaður þjóðarinnar á að svara þegar hann er spurður, nema hann hafi ekki hugmyndum hvað um er að ræða. Hvað er hann þá að gera sem forsætisráðherra. Þessi valdahroki er farin að vera soldið þreytandi og SJÁLGRÆÐISFLOKKURINN þarf að fara að skipta um gír og gerast flokkur sjálfstæðra Íslendinga eins og gamla nafn þess flokks stendur fyrir.
G. Pétur þú hefur allan minn stuðning og afsökunarbeiðni þinni í minn garð er að sjálfsögðu tekið og eins og þú segir sjálfur, þá hefði þetta átt að vera löngu birt. Ég er einnig fullviss um að miklu meira er til af svona efni, sem kæmi óþægilega við kaunina á ráðamönnum landsins.
Skilaði spólunni með viðtalinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.11.2008 | 20:05
Erfit að skera niður, það sem ekkert er !!!
Það væri í anda SJÁLFGRÆÐISFLOKKSINS að ætla að skera niður þar sem síst má sín. Niðurskurður er ekki góður hvar sem hann er, en aftur á móti gott eðlilegt aðhald er það sem er áhrifaríkast. Í heilbrigðismálunum er ekki hægt að skera niður nema að skera niður sjúklinga. Í öryggismálum er ekki hægt að skera niður, nema það komi niður á öryggi okkar, með einum eða öðrum hætti og ef skorið er niður í menntamálunum þá lækkar viskustuðull þjóðarinnar. Svo þá er úr vanda að ráða! Ef skorið er niður í öðrum greinum ríkisrekstrar þá verður eitthvað útundan, vegaframkvæmdir, hafnargerð, fundarferðir erlendis og loka sendiráðum erlendis. Áfram er hægt að finna til ýmsa hluti sem má sleppa, seinka og breyta. ÁFRAM Jóhanna þú hefur sýnt það og sannað að þú ert rétt kona á réttum stað og það er eina ástæða þess sem gæti komið í veg fyrir stjórnarskipti, eins og sakir standa.
Ætla að hunsa beiðni um niðurskurð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.11.2008 | 09:34
AFSÖGN er það eina sem rétt er !!!
'i öllum siðmenntuðum þjóðum, væri ríkisstjórn sem búin væri að láta svona gerast, búin að segja af sér og láta í hendur óvilhöllum stjórnartaumana, því allt sem þeir eru að gera eftir hrun er bara yfirklór, sem þeir halda að muni ekki sjást og það mun koma í ljós hvað þeir hafa raunverulega verið gera. Það er ekki allt sem sýnist og það er ekki allt GULL sem glóir.
Undirbúa vantrauststillögu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.11.2008 | 18:12
ER ÞETTA LÁN Í ÓLÁNI?
Hvað skildi þetta þýða fyrir framtíðina, hver skildi helst vera sannspár um það? Gæti verið að það væri hægt að reikna það út? Eða eru menn enn að spila RÚSSNESKARÚLLETTU? Þetta eru áleitnar spurningar og miðað við útkomu og afrakstur á unadförnum árum þá er ekki á neinn að treysta! Bankamenn, fjárfestar, þingmenn og ríkisstjórn, er hópur fólks sem ekki hefur sýnt það að hægt sé að treysta þeim, en samt kýs almúgurinn þessa menn sér til forystu og leggur allt traust sitt í hendur þeim. Svo bregðast þeir fólkinu og arðræna, setja allt í gjaldþrot og þykjast svo ekkert vita og svarar út í hött ef þeir svara á annað borð. Öll þessi leynd sem þeir viðhafa um þessi fjármál er eingöngu til að hilma yfir þeirra eigin mistök og svik, ekkert sem fram fer í ríkisstjórn er trúnaðarmál þegar landið liggur undir, það eru lög í landinu sem kveða á um upplýsingaskildu stjórnvalda og ef betur væri að gáð, þá held ég að það kæmi í ljós hvað okkur kemur þetta allt mikið við!
IMF samþykkir lán til Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.11.2008 | 14:08
Naglar falskt öryggi !!!
Nagladekk eru oftar að virka öfugt við það sem þeim er ætlað, skilyrði fyrir nagladekkjum eru mikið sjaldnar en menn gera sér grein fyrir. Sjálfur hef ég aldrei sett nagla dekk undir bílana mín að undanskildu einu tilviki, en það var fyrir um 32 árum síðan, þá átti ég Land Rover og var blankur námsmaður og átti ekki fyrir nýjum dekkjum. Þá brá ég á það ráð að skera nýtt munstur í þau dekk sem undirhonum voru og setja nagla í kannt kubbana á dekkjunum. Þetta var snjó þungur vetur og eins næsti á eftir, en þann vetur var ég komin á ný jeppa dekk ónelgd og síðan vel ég góð vetrar dekk og hef mikið notað harðkornadekk sem reynst hafa stórkostlega vel. Fyrir rúmu ári síðan keypti ég mér nýjan (gamlan) bíl og fékk hann á nöglum, það fyrsta sem ég gerði var að fara á dekkjaverkstæði og láta plokka naglana úr. Gatnahreinsun og hálku eyðing, hefur verið það góð, að það á ekki að þurfa nagladekk innanbæjar.
Ökumenn þurfa bara að muna að aka í samræmi við aðstæður, en því vilja þeir oft gleyma þó það sé engin hálka. Nagladekk geta aukið bremsuvegalengd á þuru malbiki og ekki síst blautu, þá skauta þeir áfram og oft stjórnlaust.
Ökum varlega og högum akstri miðað við aðstæður ALLTAF !
Notkun nagladekkja kostar sitt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
4.11.2008 | 11:57
Níðingsskapur af verstu tegund !!!
Það er eins og bifreiðareigendur séu ekki að greiða nóg af gjöldum, svona sekt mun ekki koma í veg fyrir að ökutæki í lélegu ástandi verði EKKI í umferðinni, því þau ökutæki sem eru illa hirt og illa við haldið aka samt áfram og eru jafn hættuleg, það er ekki nóg að hafa bílin í lagi bara í skoðun, það þarf að fylgja eftir viðhaldi og gera við þegar bilar bila. Svona sekt væri réttlætanleg ef það sannast að ökutæki sem lent hefur í óhappi sem rekja má til ástands ökutækis, að þá verði sektað sérstaklega, það væri meiri hvatning til að halda ökutækjunum í lagi á milli skoðana. Það geta verið ástæður fyrir því að ökutæki séu ekki færð til skoðunar á réttum tímum, til dæmis að eigandin sé erlendis og ökutækið ekki í notkun, verið sé að endurgera ökutækið að einhverjuleiti eða hreinlega í langri viðgerð, og áfram mætti telja. En á meðan eru alskonar druslur sem eru riggaðar upp í skoðun á réttum tímum, akandi um götur bæjarins ljóslausar og jafnvel bremsulausar, með ónýta stýrisenda. NEI þessi sekt er aðeins til að hnekkja á bifreiðareigendum, en eru ekki til að taka á vandanum. Það vantar aukið eftirlit með því að fylgjast með ökutækjum og ástandi þeirra dagsdaglega, og að ökumenn sem ekki hirða um að laga hjá sér ljós og fleira því um líkt séu stöðvaðir og færðir til skoðunar. ein ástæða þess að menn dragi eitthvað að fara með ökutæki í skoðun, er ein af þessum endalausum gjöldum sem greiða þarf við skoðun, BIFREIÐASKATTURINN, sem kallaður er JÓNSSKATTUR en Jón Baldvin Hannibalsson, þá verandi fjármálaráðherra, lagði þennan skatt á bifreiðaeigendur sem tímabundin skatt, til að bjarga einhverju í Ríkisfjármálunum á þeim tíma. Hann hefur enn ekki verið tekin af tæpum þrjátíu árum síðar. það eitt er stundum næg ástæða fyrir því að ökutæki koma ekki á réttum tíma í skoðun, því fólk á bara ekki fyrir þessum skatti og svo níðist Ríkið á borgurunum með auka sekt.
Sektin er réttlát ef ÖKUTÆKIÐ lendir í slysi eða óhappi sem rekja má til ástands þess.
Alvarleg umferðarslys vegna lélegs ástands ökutækja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
1.11.2008 | 02:30
Byggja Slökkvistöð og það STRAX !!!
Ég var að skoða teikningarnar af skipulagi og þverskurði af svæðinu sem ég fann hjá einum bloggaranum og læt slóðina fylgja hér með;
Ég er ekki í minnsta vafa lengur um það að þarna verði mikilvæg framför, fyrir öryggi okkar borgarana, auk þess sem að þarna verður mikil umhverfisbót, bætt aðstaða fyrir útivistarfólk og væntanlega mun verða snyrtilegra en nú er fyrir. Ég sem Kópavogsbúi, í Smáranum, kem til með að njóta þess öryggis sem hlýst af styttri viðbragðstíma og þá ekki síst Breiðholtsbúar, Það vantar að sýna kortið sem SHS hefur, þar sem mældur viðbragðstími kemur greinilega í ljós, og auk þessarar nýju stöðvar verður einnig reist ný stöð í Mosfellsbæ, en enn hafa engin mótmæli heyrst þaðan, yfir þeirri stöð. Þessar nýju stöðvar munu margfalda öryggi okkar Höfuðborgarbúa, hvar sem við erum niðurkomin á svæðinu og hvar sem við búum, því slysin geta gerst hvar sem er og eldsvoðar gera ekki boð á undan sér. Auk þess er ég sannfærður um að þessi ráðstöfun mun ekki skerða útivistarsvæðið, ég fer oft þarna í dalinn og það er ekki svo fjölmennt þar, að það halli á nokkurn.
Mótmæli vegna slökkvistöðvar í Elliðaárdal afhent | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
30.10.2008 | 20:04
Sveiattan og ullabjakk !
Káfaði á 13 ára stúlku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.10.2008 | 13:39
Svikahrappar ! Svikahrappar !Svikahrappar !
Það er ekki á eina bókina lært með skelfilegar aðgerðir gegn íslensku þjóðinni. Ekki nóg með að Bretar lýsi því yfir að við séum HRYÐJUVERKAMENN, heldur erum við með HRYÐJUVERKAMENN sem stjórna Seðlabanka Íslands og íslenska ríkinu. Almenningur er hýrudreginn og féflettur fram og til baka og öllum þessum stjórnendum stendur alveg á sama, því þeir eru búnir að byggja sér einbýlishús í Skildinganesinu og heljarins samkomuhús út í sveit, sem þeir kalla sumarbústaði (4-800 fermetra) þegar grænn saklaus lýðurinn má þakka fyrir að fá að byggja sér smá kofa (50 fermetra<). Er ekki komin tími á að skipta um lið í forystu landsins og ráða harðan framkvæmdastjóra sem nýðst ekki á almenningi sí og æ. Það kemur að því að einhver fær nóg og grípur til örþrifaráða og þá er voðin vís, ég tel að það sé ekki spurning hvort heldur hvenær, ég óttast að meðla almennings séu einstaklingar svo aðfram komnir að þeir telji tilveru sinni það ógnað að illa fari.
ÁFRAM ÍSLAND NIÐUR MEÐ KREPPU!
Erfitt fyrir fólk og fyrirtæki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.10.2008 | 13:25
Allt er nú reynt !!!
Já menn mála, fela, breyta og hvað sem þeim dettur í hug. En að hafa samvisku nehei, vitandi það kanski að sá sem stolið var frá átti kanski bara þennan eina hlut sem einhvers virði er. Ágirnd og öfund er eitt af því versta sem hrjáir mannkynið, jafnvel meira en efnahagskreppan og svo eru menn að kvarta undan græðgi fjármálamanna, sem eru engu betri en smáþjófarnir, því þeir eru búnir að svifta margan manninn um lífeyrir sinn og svo svitna þeir ekki einu sinni.
Var að mála stolið mótorhjól | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.10.2008 | 23:23
Kapp er best með forsjá !!!
Það virðist sem hinu opinbera hugnast ekki verðtrygging þegar hún leggst á ríki og bæ. Gunnar Birgissyni hefði verið nær að fara hægar í sakirnar með allar þessar byggingaframkvæmdir, gösla gangurinn hefur verið slíkur að það stendur til að rífa þetta fína verslunarhús á Smáratorgi, ekki tíu ára gamalt, einungis til að byggja þar stærra hús. Hesthús verða að víkja til að hægt verði byggja annan hærri turn og eigum við að halda áfram?
Nei það er betra að hafa kapp með góðri forsjá, til að nefna er svo mikill gösla gangur við að þétta byggðina að samgönguleiðir klúðrast, saman ber við Smáralind, en örlítið hefur þó tekis að lagfæra það en þó ekki á besta veg. Skipulagsmál í Kópavogi hafa alla tíð verið handahófskend og órökvís, meðal annars hefur það verið kappsmál að kljúfa íbúðahverfin með öflugri stofnbraut, þannig að börn í öðrum helmingnum hafa þurft að sækja skóla yfir þær götur, með því að þurfa að hætta lífi sínu við að komast yfir þessar stofnbrautir, þrátt fyrir það eru örfá undirgöng og ekki hefur verið lenskan að hlusta á íbúa, sem lagt hafa fram tillögur til úrbóta.
Ég segi aftur NEI, þetta er sjálfskapavíti Kópavogsbæjar með bæjarstjóran í broddi fylkingar sem ætti að hafa vit á því að hafa sig hægan í þessu máli og endurgreiða eins ber samkvæmt LÖGUM, sem sett eru af Alþingi Íslendinga fyrir Íslendinga.
Lögunum verður að breyta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.10.2008 | 22:41
ÍSLENDINGAR ERU RÍKIR.......
Hvaða land í heiminum, annað en Ísland, getur státað af því að geta pundað fleiri fleiri kílówöttum af raforku út í himinhvolfið og átt samt nóg eftir til að lýsa upp öll húsin og öll álverin að auki. Gaman væri að vita hvað það kostar að keyra þetta ljós og hver borgar rafmagnsreikningin. Fyrir um átta árum var reist súla á Sandskeiði, listaverk eftir Ítalskan listamann, í tilefni af menningarborg Evópu, Reykjavík, en þar voru notaðar flúorsent orkusparandi perur, en það ljós er búið að loga á nóttunni síðan, allavega var ljós á því síðast er ég vissi. Líklega notar friðarljósið álíka orku á dag og hitt á einum mánuði (án þess að ég hafi það nákvæmt) en það er talsvert mikil notkun samt. Ég ætlaði nú ekkert sérstaklega að væla út af því en fannst ég verða að velta vöngum yfir þessu, á þessum síðustu og verstu tímum. Engu að síður koma þessi ljós einkennandi fyrir og mynnir okkur á það að það er alltaf smá ljósglæta í mirkrinu, við megum aldrei láta bugast eða missa sjónar á glætunni sem leitt getur okkur til betri tíma. Það er mikil synd að heimurinn skuli vera svona miskunarlaus, manngæska fyrir gað borin og samviska eitthvað sem menn lesa í sögubókum. Þegar tæknivæðing, framfarir, þekking og kunnátta, endurlífgar fólk, byggir heilu hallirnar, kemur mönnum út í himingeymin og á tunglið, fólk getur horfst í augu heimsálfa á milli í tölvum, talað saman hvar sem er og hvenær sem er með litlu spjaldi sem dettur í vasa. Hvað getum við farið fram á meira, græðgin anar mönnum útí fjárfestingar og ævintýri, t´ladregur saklaust fólk í kaup á allskyns verðbréfum, sem verða svo dag einn verðminni en skeinipapír. Ég á í fórum mínum rúllu af skeinipappír sem gerður er úr sænskum hundraðköllum, ég hef aldrei tímt að nota hann, en kanski einn góðan veðurdag eftir eitthvað fjárviðrið, þurfi ég að taka fram rúlluna, en þá verður bara notað eitt blað í einu. Þangað til ætla ég að bara að nota það sem ég er vanur og reyna að spara svolítið meira. Alla vega á ég engan sumarbústað upp á einhverja hundruð fermetra, hvað þá einhvern ofurjeppan, sem sumir hverjir eru svo fábrotnir að þeim fylgir ekki handfrjáls símabúnaður, þrátt fyrir að kosta nokkrar millurnar. svona getur ríki dæmið orðið aumt að ekki er afgangur fyrir handfrjálsabúnaðin og stunbum ekki einu sinni stefnuljós heldur. það ætla ég að vona að símin minn ednist svo lengi að ég geti haldið áfram að nota handfrjálsabúnaðin sem ég keypti fyrir um átta árum síðan og hef fært á milli bíla, þegar þess hefur þurft, enda kaupi ég að jafnaði svona fimm ára gamla bíla og nota þá í allt að tíu ár hvern, sem þykir þokkaleg nýting. Ég vona að þið hafið gagn og gaman af þessari lesningu og njótið myndana sem ég birti að venju með. Kær kveðja Jón
Smellið á myndina til að sjá hana stærri!
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.10.2008 kl. 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.10.2008 | 00:39
Guði sé lof, fyrir fyrirhyggju hans.......
Öryggisráð, heimssamþykktir, barnaverndarlög, friðaráætlanir, friðargæsla og hvað sem allt það heitir. Þá er það líklega lán í óláni að Ísland hlaut ekki kjör í öryggisráðið, því að slíku fylgir all mikil ábyrgð, ábyrgð sem við erum kanski ekki reiðubúin að standa undir. Vissulega hefði það verið mikil heiður og traust hefðum við hlotið kosningu, sigrar eru alltaf sætir, en við skulum líka líta á þetta sem sigur, sigur fyrir það að koma til álita, það eru ekki allir sem ná svo langt.
En á sama tíma er ekki horft til sigra sem íslensk forysta stendur fyrir á alþjóða vettvangi. Ég vil mynna á sigur íslensku sendinefndarinnar á alheimsþingi Mateiðslumeistara, WACS, sem haldið var í Dubai í maí síðast liðnum en þar eru þrír mætir Íslendingar í forystu hlutverki næstu fjögur árin, Gissur Guðmundsson Forseti WACS, Hilmar B. Jónsson varaforseti og Helgi Einarsson ritari samtakana. Aðeins liðlega 84 þjóðir standa að þessum samtökum, yfir átta miljón félaga eru að baki þessara samtaka, aðeins friður og velvilji í garð mannfólksins er markmið þessara samtaka, í formi bættrar matarmenningar, afkomu fólks og næringu í fyrsta sæti. Það hefur nefnilega ekki farið hátt þessi árangur þeirra félaga og fjölmiðlar, að Morgunblaðinu undanskildu, hafa ekkert fjallað um þennan árangur, þrátt fyrir ítrekaðar fréttatilkynningar og myndsendingar og samtöl. Þrátt fyrir bein samtöl við stjórnendur vinsælustu viðtalsþátta sjónvarpsstöðvana, þá er þessi árangur of mikið alvöru og ekki nógu hégómlegur til að eiga skilið að vera blásið út í fréttum. Í hverri viku er eitthvað að gerast í kokkaheiminum sem er merkilegra, en hvort að Eggert feldskeri ætli ekki að veita Brown og Darling kredit, eða hvort boðið sé upp á fríja kjötsúpu á Akureyri, eða hvort eitthvað húsið sé upplýst í bleiku, hvað þá hvort að kveikt sé á rándýru orkufrekum ljósum sem lýsa beint upp í loftið í Viðey.
Við þurfum stundum að horfa okkur nær og virða að verðleikum þann árangur sem við náum, Handboltaliðið fékk góðar móttökur, en hvað með það duglega fólk sem tók þát í Olympíuleikum fatlaðra? Veit fólk til dæmis að landslið matreiðslumeistara er nú komið til Erfurt í Þýskalandi, til að taka þátt í Olympiumóti matreiðslumanna, en því lýkur í næstu viku. það er svo margt sem gefum ekki gaum að, sem er oft mun mun merkilegra en margt það sem fer á flug í fréttatímum ljósvakamiðlana. Við eigum svo frábært fagfólk hér á Íslandi, í öllum geinum, það eina sem oft vantar uppá er það, að fólk láti hendur standa fram úr ermum og sýni tilskildan metnað í því sem það er best. ÁFRAM ÍSLAND
Auðvitað vonbrigði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2008 | 22:04
Spara fyrir framtíðina! Bankarán aldarinnar!!!
Amma sagði að maður ætti að spara og safna peningunum sínum í bauk og fara með hann í bankann og leggja hann þar inn, þá mundi hann ávaxta sig og verða að miklu meiri peningum. Lang afi minn sem ég er skírður í höfuðið á, opnaði handa mér bankabók í Landsbanka Íslands þar sem hann lagði inn á bókina talsverða upphæð, á þeirra tíma mælikvarða (1956), en upphæðin var að mig minnir um 500,- Krónur. Ég ímynda mér að það gæti verið samsvarandi fimtíuþúsund (50.000,-) króna í dag (án þess að hafa það á hreinu). En á þeim tíma fékkst talsvert fyrir þennan pening (þeas 500 kr).
En þetta var aðeins smá innskot, því þessir sparifataklæddu fermingardrengir sem fengið hafa að leika sér að fjármagni fólksins, í bönkunum sem þeir héldu að þeir ættu, hafa nú verið stöðvaðir. En afleiðingarnar eru skelfilegar, svo hrikalegar að það er ekki tárum í það eyðandi. Fólk er í svo miklu áfalli að það er hreint og beint dofið, ég kvíði því fólksins vegna, þegar deyfing fer úr því, því þá fær það alvöru skellinn. Það er engum blöðum um það að fletta að það þarf að færa einhverja til ábyrgðar fyrir þessu.
Mín skoðun er sú, sem leikmanns, að seðlabankinn hefði átt að bregðast við lána beiðnum bankanna og styrkja þá gegn ákveðnu aðhaldi með því að skilyrða ákveðin inngrip í stjórnun þeirra og þannig heyja lífróður sem kanski hefði bjargað því litla hlutafé sem almenningur hefur lagt í þessa banka með sparifé sínu. En í stað þess yfir taka þeir bankanna, sem tvímælalaust er stærsta BANKARÁN ALDARINNAR. Því verður aldrei neitað og slíkt má ekki eiga sér stað, eitt af boðorðunum tíu segir; þú skalt ekki stela. Í íslenskum hegingarlögum eru ströng viðurlög við þjófnaði og í Islamstrú er verulega hart tekið á þjófum, því hendur þeirra eru hoggnar af svo þeir stundi ekki þjófnað!
Við þessi fámenna þjóð þurfum að standa saman, við þurfum að deila auðæfunum af skinsemi og jöfnuði, því landið er okkar auðæfin eru OKKAR og við eigum að njóta ávaxtana saman. En núna hafa örfáir fermingardrengir braskað með alla fermingarpeningana og gluðrað þeim út í loftið, með veisluhöldum og þotuflugi um vítt og breitt um heiminn. Guð forði okkur frá frekari skömmum og að við megum vinna okkur út úr þessu meini, sem er líkt og krabbamein eða eins og rúsnesk rúlletta, þú veist aldrei hvenær þú hittir naglan á höfuðið.
Hvað gæti töframaðurinn reitt fram úr erminni? Þotu eða nýjan banka?
Útrás fyrir 450 evrur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
26.9.2008 | 08:25
Sorry Frakkimann !! Það kom maður í frakka?
Það færi í verra ef uppá kæmi að það kæmi maður í frakka, þegar leita ætti að frakka og tæki allar þyrlunar, nema eina sem væri óvinnufær vegna skoðunar. Þá verða góð ráð dýr, alltaf ber þetta uppá það sama. Ríkisstjórn landsins er EKKI með áherslunar og forgangsröðina RÉTTA, frekar en fyrri daginn. Brjótið nú upp sparibaukana og skerið niður þar sem bruðlið er, en ekki þar sem neyðin er.
Erfitt að halda í þyrlurnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.9.2008 | 08:13
Væri ekki nær að kaupa olíu á VARÐSKIPIN!
Þegar ekki eru til peningar til að reka eina nauðsynlegustu öryggisþjónustu landsins, þá eru allt í einu hægt að henda tæpum miljarði í einhverja sýningarvitleysu sem engu skilar, nema kostnaði. Orkunýting Íslendinga er löngu orðin heimskunn og ef menn vilja fræðast meira um það þá koma þeir til Íslands til að kynna sér málin. Þessum peningum er betur varið í heilbrigðis og öryggisþjónustu við landsmenn.
Íslendingar þátttakendur í heimssýningunni í Sjanghai | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.9.2008 | 00:11
Öryggi landsins í HÆTTU !!!
Það er með ólíkindum hve sljóir þingmenn geta verið, hve sinnulaus ríkisstjórnin þikist stjórna. Þegar allt virðist snúast um að hygla vinum og ættingjum með stöðuveitingum og ráðningum. Á sama tíma er verið að skera niður fjármagn í það sem mestu skiptir! Væri ekki nær að kaupa eldsneyti á flota Landhelgisgæslunar, hafa góða stjórnendur í fararbroddi, samanber Lögreglustjórann á Suðurnesjum, og leggja meiri metnað í það sem máli skiptir frekar enn einhverja bitlinga af því bara. NEI nú er mál að linni, ráðum Jóhann og rekum ríkisstjórnina, þeir virðast ekkert vita um forgangsröðun hvort eð er, þeir vita ekkert til hvers samfélag er, ekkert vita þeir heldur hvað samhygð þýðir. ÖRYGGI landsins veltur á því að hafa góðan rekstur á Landhelgisgæslunni, sérhæfð sveit vaskra ofurhuga þar hafa bjargað hundruðum ef ekki þúsundum landsmanna við jafnvel hin erfiðustu skilyrði. Slík sérsveit finnst varala annars staðar í heiminum, því vegna landfræðilegrar stöðu okkar og válynd veður eru aðstæður hér oftar erfiðari en annarsstaðar. Það er ekkert hik ef fara þarf á hanboltaleik hinu megin á hnettinum, það er engu til sparað að borga undir erlenda heri svo þeir megi æfa sig í hernaðarbrölti við Íslandsstrendur, sennilega af því að aðstæðurnar hér eru það erfiðar að ekki er hægt að líkja eftir þeim annars staðar, svo það ætti ekki að standa í hátt virtri ríkisstjórn að kaupa eldsneyti á flotan!
Myndirnar eru tengdar Landhelgisgæslunni, meðal annars af Dash 8 vél Sænsku Landhelgisgæslunar, sem er samskonar þeirri er kemur til Íslands á næsta ári, rekstur hennar verður mun ódýrari og nýtnari á eldsneyti meðal annars.
Landhelgisgæslan fái fjármagn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.9.2008 | 23:41
Þingmenn, ráðherrar, læknar ???
Áekki bara að hækka launin hjá læknum og opinberum embættismönnum eins og hjá þingmönnum, með sjálfvirkri 100% hækkun eins og þeir eru vanir að gera það og bæta síðan við nokkrum nefndarlaunum risnu og aksturskostnaði?
Samningafundur árangurslaus | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Frétta viðhorf og samfélagið !
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.12.): 8
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 78211
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 18.2.2021 Miðborgir/bæjir og Borgarlína gegn bílafólki!
- 15.5.2020 Það er ekki örugt nema það sé örugt!
- 26.4.2020 Kominn tími til !
- 29.3.2011 ICESLAVE NEI TAKK !!!
- 16.11.2010 Á VIRKILEGA AÐ FAGNA MISGJÖRÐUM !!!
- 16.10.2010 ENN er KINDABYSSUNNI veifað !!!!
- 16.10.2010 Þeir RÍKU verða ríkari og FÁTÆKIR fátækari !!!
- 16.6.2010 Bara loka Borginni vesta Elliðaár !!!
- 6.6.2010 Bara rekan og ráða nýjan !!!
- 19.5.2010 Lokum bara LANDSPÍTALANUM hann er hvort eð er svo dýr í rekst...
- 19.5.2010 Ég skal kaupa HS Orku !!!
- 3.5.2010 Blekking til að fá að Hækka IÐGJÖLD!
- 28.4.2010 Enda flokkur í ÚTRÝMINGARHÆTTU !!!
- 13.4.2010 MISTÖK Á MISTÖK OFAN !!!
- 1.4.2010 Alltof seint í rassin gripið !!!
Spurt er
Tenglar
Ljósmyndun
Upplýsingar og þjónusta fyri ljósmyndara.
- MOTIV Ljósmyndaþjónusta
- Framköllun stækkanir Einnig atburða vefur til að kaupa myndir
- MOTIV ljósmyndir
- Sölu og viðgerðarþjónusta Myndavélar og fylgihlutir.
- Ljósmyndavefur sala Ragnar Th.
- Myndabanki Stock photos
- MOTIV á 123.is
Bloggvinir
- kleopatra7
- olinathorv
- gudruntora
- nanna
- lillagud
- stjornlagathing
- draumur
- dagsol
- kreppan
- kally
- raksig
- herdis
- annamargretb
- margretrosa
- helgafell
- lauola
- bjarkey
- netauga
- domubod
- ingunnjg
- keg
- steingerdur
- annaragna
- liljan
- trukona
- lady
- estro
- sms
- bifrastarblondinan
- agny
- katja
- eddabjo
- alla
- gudridur
- jona-g
- nupur
- blekpenni
- asgerdurjoh
- kolgrima
- katrinsnaeholm
- halkatla
- gislina
- tothetop
- fia
- kolbrunb
- jarnskvisan
- thorasig
- bryndisisfold
- jonaa
- gudfinna
- thorbjorghelga
- eyglohardar
- helgasigrun
- vglilja
- ranka
- abg
- joninaben
- gurrihar
- motiv
- doritaxi
- edvard
- formula
- fridrikomar
- gunnarkr
- ktomm
- ragnarborg
- reynsla
- siggisig
- stormsker
- sveinnhj
- konur
- 810
- annakr
- addamaria
- alfheidur
- asdisran
- astan
- begga
- beggibestur
- benna
- beggabjuti
- biddam
- birgitta
- brostubara
- brynja
- bubot
- daman
- diddan
- ellasprella
- erlaosk
- estersv
- evathor
- fanneybk
- fannygudbjorg
- fararstjorinn
- fjola
- fridust
- gmaria
- grazyna
- goodster
- gudrunjona
- gudrunmagnea
- gyda
- hallarut
- heidistrand
- heidathord
- hlinnet
- hugrenningar
- idno
- ingabesta
- ingibjhin
- ingibjorgelsa
- ippa
- ipanama
- isdrottningin
- jahernamig
- kittysveins
- kketils
- klaralitla
- konukind
- ladyelin
- lara
- larahanna
- liljabolla
- margretloa
- mariaannakristjansdottir
- mariakr
- marzibil
- mongoqueen
- ollasak
- olofdebont
- pannan
- ragnhildur
- roslin
- ringarinn
- saedis
- saragumm
- sifjar
- sigrunfridriks
- sirrycoach
- skessa
- steinunnolina
- stinajohanns
- sveitaorar
- thorunnvaldimarsdottir
- villagunn
- id
- morgunbladid
- vestfirdir
- armannkr
- biggibraga
- binnirarfn
- bjarnihardar
- brandarar
- brandurj
- businessreport
- drengur
- ea
- esv
- fiskholl
- folkerfifl
- fridjon
- fsfi
- gattin
- gebbo
- golli
- gudmundurmagnusson
- gudni-is
- hafstein
- hlekkur
- hnodri
- hogni
- hvala
- ibb
- icekeiko
- jax
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- kentlarus
- ketilas08
- killerjoe
- korntop
- krams
- kristinnhalldor
- krilli
- ljosmyndarinn
- malacai
- nosejob
- olafurfa
- omarragnarsson
- ottarfelix
- pallvil
- palmig
- photo
- runarsv
- saethorhelgi
- skrekkur
- stebbifr
- steinibriem
- svei
- thj41
- vefarinnmikli
- valurstef
- vefritid
- iador
- svanurg
- ksh
- margretsverris
- einarorneinars
- ejk
- heidihelga
- benediktae
- baldher
- elvira
- rannveigh
- addags
- minos
- heidarbaer
- aslaugfridriks
- naflaskodun
- jyderupdrottningin
- franseis
- hrannsa
- valdimarjohannesson
- arnthorhelgason
- bookiceland
- minnhugur
- thordisb
Eldri færslur
2021
2020
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Nýjustu færslurnar
- Svíþjóð: Á ríkisstyrk í hryðjuverk
- Sprautu fíkn lyfjarisa & lækna ...
- Réttnefni.
- Landlæknir kvaddur
- Þetta með að útrýma fátækt
- - Pólitískt lík sem bíður greftrunar
- Framsókn hefur oft haft yfir öflugu mannvali að ráða utan og innan þings.
- Fýkur í Nató-skjólin í Rúmeníu? Calin Georgescu
- Ranglæti sem þarf að laga
- Er ætlunin að borga miljarað til að loka vindmyllum í roki?