Bloggfærslur mánaðarins, desember 2006

Hó Hó ég er JÓLASVEINNINN hahahaaaa!

jæja hvað skildi séra Flóki vera að segja Borfirskum börnum fyrir þessi jól? Í fyrra varð hann uppvís að því að segja að jólasveinnin væri bara plat. En ég get sko sagt honum annað, því jólasveinnin er til og það fær engin mig til að trúa öðru. Sannleikurinn er nefnilega sá að ég er einn af þeim og hvort sem þeir eru einn og átta eða bara þrettán, þá erum við til. Við förum kanski ekki allir í rauða gallan og hvíta skeggið þó ég og félagar mínir gerum það. Þá erum við sem uppalendur öll jólasveinar í hjarta okkar, því kærleikur og gjafmildi, eru aðal einkenni jólasveinsins og það er kærleiksboðskapurinn sem mestu máli skiptir en ekki hvort það sé Palli, Nonni eða Tryggvi sem fer í rauðagallan. Og ég segi það aftur Jólahvað? Gleðileg jól, megi kærleikur og friður umlikja ykkur á þessari hátíð friðar og ljóss.

Kertasníkir jólasveinn.


Sekur uns sekt er sönnuð!! Eða hvað?

Margrét Sverrisdóttir talar um "galdrabrenna í beinni" sem er nokkuð nærri lagi, fréttaflutningur að þessu tagi er ekki bara fréttaflutningur heldur fréttaframleiðsla. Ein megin regla blaðamanna er að fjalla hlutlaust um það sem er að gerast, ekki er beinlínis hægt að sjá að meðferðin sem þetta mál fékk sé hlutlaust, þetta er ásökun en "nota bene" með fengnum rökum og að þeirra sögn sönnunum. Það má vera að sannanir séu fyrir hendi og er það þá réttra yfirvalda að fara með slík mál og ransaka þau, en fréttamannana að fjalla um þá málsmeðferð og væntanlegan dómsúrskurð um það mál. Ruglum ekki saman ásökunum og sekt, það er langur vegur þar á milli meir að segja geta lögreglumenn dottið í þá gryfju, meðal annars með handtökum á blásaklausu fólki án þess að hafa nokkur rök fyrir því, sem oft hefur gerst en aldrei er fjallað um á opinberum vettvangi, þar af leiðandi situr það sama fólk uppi með ásökun, saklaust, bókun í skrár lögreglu án þess að rök væru fyrir málinu og hvað þá að málið hafi fengið dómsmeðferð eða viðkomandi beðnir afsökunar. Nei förum gætilega í allar ásakanir leitum fyrst sannana og látum viðkomandi yfirvöld um að fara með málin á réttan og heiðarlegan hátt.

Jón Svavarsson Fréttaljósmyndari.


Þessu ætlar ekki að linna!

Fréttamynd 415961

Frá slysstað á Vesturlandsvegi í kvöld. Vegurinn var lokaður í um 2 klukkutíma eftir að slysið varð.
mbl.is/Júlíus

Innlent | mbl.is | 10.12.2006 | 20:59

Einn maður lést í hörðum árekstri á Vesturlandsvegi

Einn maður lést í hörðum árekstri tvegga bíla, sem varð á Vesturlandsvegi rétt norðan við gatnamót Þingvallavegar um klukkan 17:30 í dag. Annar maður slasaðist í árekstrinum. Að sögn lögreglu er óljóst með meiðsli hans en maðurinn er ekki talinn í lífshættu. Vesturlandsvegi var lokað í báðar áttir á meðan rannsókn slyssins stóð yfir en lokunum var aflétt kl. 19:37.

Bílarnir tveir, sem ekið var í gagnstæðar áttir, skullu saman með þeim afleiðingum að ökumenn beggja bifreiða festust í bílunum. Sjúkrabílar, tækjabíll Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og lögregla fóru tafarlaust á vettvang. Báðir ökumenn voru fluttir með sjúkrabílum á Slysadeild Landspítala-háskólasjúkrahúss. Ökumaður annars bílsins var úrskurðaður látinn er komið var á slysadeild en hinn er ekki talinn í lífshættu, að sögn lögreglunnar í Reykjavík.

Austan rok og mikil slydda var á þessu svæði í kvöld og skyggni slæmt. Vesturlandsvegi var lokað í báðar áttir á meðan rannsókn slyssins stóð yfir. Lögreglan segir, að vegna aðstæðna á vettvanginum hafi ekki verið hægt að liðka til með umferð fyrr en að frumrannsókn lokinni.

Að sögn lögreglu var töluvert um að fólk hringdi til þess að mótmæla lokuninni á veginum. Segir lögreglan að margir þeirra sem hringdu hafi sýnt aðstæðum litla virðingu og skilning. Lögreglan tekur fram, að klukkan 17:44 hafi upplýsingum verið komið til Ríkisútvarpsins og Bylgjunnar um umferðarslysið og lokunina á Vesturlandsveginum og jafnframt óskað eftir því að ökumenn sýndu þolinmæði vegna biðarinnar.

Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir vitnum að slysinu. Tæknideild lögreglu Reykjavíkur rannsakaði slysið og rannsóknarnefnd umferðarslysa sendi einnig mann á vettvang til rannsóknar.

Nú hafa 29 manns látið lífið í 26 banaslysum í umferðinni á þessu ári. Á síðasta ári létust nítján í umferðarslysum.

Þessu ætlar ekki að linna!

Enn eitt banaslysið sem líkllega er af völdum þess að vegirnir okkar eru of þröngir, ég spurði einu sinni háttsettan mann hjá Vegagerðinni afhverju vegirnir væru ekki byggðir breiðari sérstaklega þegar farið er í framkvæmdir með að byggja nýja vegi þar sem fyrir voru aðeins malarruðningar, hverju það munaði að hafa vegina meter breiðari á hvorn veginn. þá sagði hann að það væri svo mikið dýrara og yki svo á allar magntölur í útboðum. En hafði mönnum þá aldrei hugkvæmst að vegirnir yrðu þá bara mörgum sinnum dýarari í MANNSLÍFUM, eins og þau væru einskis virði. Einu sinni gerðist það að ráðherra misti son sinn í alvarlegu umferða slysi á suðurlandsvegi og var í beinu framhaldi af því ákveðið að laga veginn á þeirri leið. Einu sinni varð einn ráðherran fatlaður og þurfti þá að dvelja á Grensásdeild sem er endurhæfingardeild þá borgarspítalans en nú Landsspítalans, hann upplifði það að sundlaugin sem fyrirhuguð var að byggja var ekki risin svo hann gat þá ekki notið hennar, en í beinu framhaldi var lagt til fé til að byggja sundlaugina og er hún hin myndarlegasta og hefur hjálpað gífurlega mörgum og örugglega gert gæfu munin fyrir flesta þeirra. Hver skildi þurfa að vera fyrir ástvina missi í ríkisstjórn landsins til að skilningur á því að íslenkst vegakerfi er ekki fyrir akstur BIFREIÐA heldur hestvagna eins og ég hef áður nefnt. Hvað þarf það að kosta í mannslífum til að laggning vega eins og hjá siðmenntuðum þjóðum, komi til með að borga sig, ég bara spyr.

Jón Svavarsson


mbl.is Einn maður lést í hörðum árekstri á Vesturlandsvegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðbraut og það tvöföld í þágu lífs og framtíðar fólksins!

Þetta er sannkallað þjóðþrifamál og löngu komin tíma á að byggja upp vegakerfi í stað allra þessara hestvagnaslóða sem stjórnvöld hér kalla þjóðvegi og halda að þetta séu einhverjar “hraðbrautir” vegakerfið er helsti slysavaldurinn í umferðinni og það er á ábyrgð stjórnvalda sem byggja vegina alltof þrönga, erlendis sérðu ekki svona þröngavegi nema gamla sveita vegi sem liggja þá helst á milli svietabæja. Íslensk umferðamenning er því miður enn á hestvagnastiginu og svo kenna menn um hraða akstri, það skiptir ekki svo miklu máli hvort menn eru á leifðum hámarkshraða eða 10 – 20 km umfram það, bílar sem rekast saman á þjóðvegunum og keyra saman sem þeir væru á 150 -200 km hraða á vegg, eða 70+80= 150 km, þar sérðu að það þarf ekki að vera á ólöglegum hraða til að að samkeyrsla verði lífshættuleg, prófi bara hver sem er að keyra á vegg á bara 120 km hraða. Tvöföldun á þjóðvegi númer 1 ætti að vera fyrir löngu búið að gera, gleymum ekki að bandaríkjamenn voru tilbúnir að gera það fyrir ekki neitt upp úr 1960, en hvað sagði Alþingi þá, NEI TAKK, ég lít á það sem svik við fólkið í landinu og þröngsýni af verstu gerð.Kær kveðja Jón Svavarsson ökumaður með meiru
MOTIV-MEDIA, Jón Svavarsson,+354 8930733  jonmotiv@emax.isSjá myndir og fréttir/see pix and news:www.123.is/MOTIVMEDIA

mbl.is Telur að skilja verði að umferð úr gagnstæðum áttum á Suðurlandsvegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsta bloggfærsla

Þessi færsla er búin til af kerfinu þegar notandi er stofnaður. Henni má eyða eða breyta að vild.

Um bloggið

Frétta viðhorf og samfélagið !

Viðhorf um stjórnmál og samfélagslegar þarfir, samgöngur, menntun, öryggismál og heilbrigðismál.

Höfundur

Jón Svavarsson
Jón Svavarsson

Starfandi fréttaljósmyndari. skoðið myndir á; www.motivm.is

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Spurt er

Hvert á að fara í frí í sumar?

Bloggvinir

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Hverfisgata 150620 J2X1713
  • Hverfisgata 150620 J2X1529
  • Hverfisgata 150620 J2X1396
  • Hverfisgata 150620 J2X1285
  • Hverfisgata 150620 J2X1840
  • Se-Buss 301220 J2X3920
  • wVitinn 090520 JX25329
  • ...810_jon9993
  • ...810_jon1809
  • ...810_jon1773

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband