Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2007

Á Íslandi er gott að búa og borða !

wKM 240107_JSM0322wKM 240107_JSM0506wKM 240107_JSM1155wKM 240107_JSM1048

Það eru kanski ekki margir sem vita það að íslenskir matreiðslumeistarar eru meðal þeirra bestu í heiminum í dag. Má þar þakka eljusemi og frábæru framtaki Klúbbs Matreiðslumanna, sem á undanförnum árum hafa skipulagt keppnisferðir til þáttöku á erlendri grund, heimsbikarkeppni, Olympíukeppni og fleirum sem of langt mál væri að telja upp. Einnig hafa þeir staðið fyrir keppninni matreiðslumaður ársins þar sem færustu kokkar landsins leiða saman hesta sína og potta, til að matreiða kræsingar sem eru yfir flottustu kóngaveislur hafnar. í síðast liðinni viku var ein slík keppni og má geta þess að ekki getur hver sem er tekið þátt í þeirri keppni, aðeins þeir sem aðrar viðurkenningar hafa hlotið og eru það sterkir á svellinu að eiga erindi sem erfiði. Keppni þessi er mjög ströng og er að jafnaði mjótt á mununum á milli efstu keppenda. Inn á vefsíðu minni sem er www.123.is/MOTIVMEDIA hægt að sjá myndir frá síðustu keppni, sem fram fór í Lyon Frakklandi, en þar keppti Friðgeir Ingi Eiríksson fyrir hönd Íslands, en þessi keppni sem kennd er við hin fræga Paul Bocuse, eða Bocuse d'Or keppnin, hélt einmitt uppá 20 ára afmæli sitt að þessu sinni og því var þetta ellefta keppnin frá upphafi því þessi óopinbera heimsmeistarakeppni er aðeins annað hvert ár. Njótið vel og verði ykkur að góðu, bon apetit, Jón


Enn heldur dónaskapurinn áfram !

wLR 250107_cJSM2158 

 

Athugasemd við athugasemd ! Nær hefði verið að biðja afsökunar.

Það skildi þó aldrei vera að ritarinn sem kallar sig Bono sé hin eini sanni #0323, en þetta er allt satt og rétt með löginn og reglurnar, en fyrst þarf að afmarka vetvang til að það séu sjáanleg mörk, það er ekki sem maður eigi að finna það á sér og er ég spurði hann hvar eru mörkin væru, þá svaraði 0323 með skætingi og ýtti mér aftar og aftar, ég hef vitni að þessu öllu saman. Auk þess var engan ransóknarvettvang að ræða, því þarna var verið að stöðva bifreið og maður handtekin sem ók honum og þannig var engin vettvangur annar en bíllinn sjálfur, þess vegna og einmitt þess vegna var viðkomandi lögeglumaður að sýna óþarfa valdnýðslu í stað þess að biðja mig kurteislega að fara ekki nær en ég var komin, sem hefði verið sjálfsagt mál,  sem var vel frá því sem þarna fór fram. Í athugasemdinni kemur enn fram lítilsvirðing við starf mitt sem fréttaljósmyndara, því skyldustörf fréttamanna er að segja satt og rétt frá og fjalla hlutlaust það sem er að gerast í samfélaginu.

Já ég hef horft mér nær og eftir 30 ára reynslu í að koma að alskonar vettvang og þar af hef ég í fjölmörgum tilvikum aðstoðað Lögreglu á vettvang, bæði við björgunarstörf og að mynda vettvang fyrir Lögreglu og hefur meðal annars aðstoð mín í slíkum tilfellum haft úrslita áhrif í þeim málum.

Stjórnarskrár brotið fellst í því að lögreglumaðurinn setti hendurnar fyrir linsu myndavélarinnar, myndin sjálf sannar mitt mál þar, því Lögreglan hefur ekki leyfi til að hindra slíka vinnu, því það er rit og tjáningarfrelsi í landinu, þetta er ekki enn orðið LÖGREGLURÍKI. Í stað þessara athugasemda hefði viðkomandi 0323 átt að biðjast afsökunar og sú afsökunar beiðni hefði verið samþykkt umyrðalaust, en í stað þess er haldið áfram með skæting og lítilsvirðingu, eða eins og einn ritari athugasemda segir þeir auka ekki á sína eigin virðingu með svona framkomu, Lögreglan er ekki undaþeginn því að sína kurteisi og koma vel fram við borgarann, þessi lögreglumaður er ekki starfi sínu vaxin með svona framkomu, það sínir einfaldlega að hann höndlar ekki svona álag og ætti að fá sér einfaldara starf sem reynir ekki svona á þolrifin. Síðan koma þessar athugasemdir;GetLost

"En blessaður Lögreglumaðurinn #0323, taldi sig hafa vald til að tuddast á mér með kylfu að vopni og hrekja mig frá, í stað þess að rækja þau störf sem og skildur sem hann hafði þarna á vettvanginum, en vera ekki að atast í löghlýðnum borgurum sem voru að sinna sínum skildustörfum."

Já, sæll.

Hans störf felast meðal annars í því að halda fólki í öruggri fjarlægð. Fólki eins og þér. Þó þú sért með myndavél þá ertu engu betri eða mikilvægari en aðrir borgarar. Fáðu þér bara betri linsu svo þú þurfir ekki að vera alveg ofan í lögreglumönnunum þar sem þú jú ert að trufla þá við vinnu sína.

 "sem fyrir það fyrsta braut á mér lög samkvæmt stjórnarskránni,"

 Vitleysa er þetta. Löggan má banna hverjum sem er að vera hvar sem er undir ákveðnum kringumstæðum. Kringumstæðum sem þessum meðal annars. Þetta er rannsóknarvettvangur og þar áttu ekki heima. Þú átt heima utan við hann.

Óskráður (Gústi), 26.1.2007 kl. 17:18  Police

Ég held að þú ættir aðeins að lýta í eigin barm kallinn áður en þú ferð að tjá þig svona.

"sem fyrir það fyrsta braut á mér lög samkvæmt stjórnarskránni"  Hvar stendur það í stjórnarskránni að þú megir gera það sem þér sýnist og óhlýðnast fyrirmælum lögreglu? "taldi sig hafa vald til að tuddast á mér með kylfu að vopni og hrekja mig frá"  Ég vil benda þér á lögreglulöginn nr 90 frá 1996 þar sem stendur m.a. "er lögreglu m.a. heimilt að taka í sínar hendur umferðarstjórn, banna dvöl á ákveðnum svæðum, svo sem með því að girða af eða hindra umferð um þau, taka í sínar vörslur hættulega muni, vísa á brott eða fjarlægja fólk, fyrirskipa stöðvun eða breytingu á aðgerðum eða starfsemi, fara inn á svæði í einkaeign og fyrirskipa brottflutning fólks af þeim."  Einnig lög um meðferð opinberra mála nr. 19 frá 1996 "Í þarfir rannsóknar má loka herbergjum eða húsum, afgirða ákveðin svæði eða varna mönnum för um þau, gefa út bann við að fara með muni af ákveðnum stað eða svæði o.s.frv."Þú ættir kannsi aðeins að kanna málin betur...Síðan segir þú einnig: "vera ekki að atast í löghlýðnum borgurum sem voru að sinna sínum skildustörfum."  Hvaða skyldustöfum varst þú annars að sinna???? Ps. Og í lokinn má benda þér á að lögregluhúfan hefur engin áhrif á lögregluvaldið.

 

Óskráður (Bono), 26.1.2007 kl. 17:52 Police

Það er alveg óstöðvandi dónaskapur, lítilsvirðing og enn meiri stífni í stað samvinnu, Gústi ætti að vita betur, við höfum farsællega átt gott samstarf á mörgum vettvanginum og aldrei verið vandamál, Lögreglan er heldur ekkert heilagri en aðrir í samfélaginu, þeir eiga að vera til fyrirmyndar og öðrum gott fordæmi og halda löginn í landinu en ekki að leika einræðisherra og bolast í fólki.


Ég get sagt ykkur!

wLR 250107_JSM2145wLR 250107_JSM2154wLR 250107_JSM2159wLR 250107_JSM2173 

Já ég var á staðnum þvílíkur hasar, lögreglumennirnir voru með algera ADRENALÍN SPRENGJU, því þeir voru óðir sumir þarna á staðnum. Í reynd lái ég þeim það ekki því ég hefði til dæmis getað orðið fyrir barðinu á þessum stóra trukk því ég var á heimleið frá Frakklandi og var farþegi í bíl vinar míns er við komum að gatnamótum Reykjanesbrautar og Vífilstaðavegar, vitum ekki fyrr til en allt í einu komu tveir lögreglubílar á eftir okkur og lokuðu götunni fyrir aftan okkur, síðan rétt á eftir mættum við hersingunni og ekki mátti miklu muna að hann hefði keyrt á okkur en við forðuðum okkur út vegkannt. Að minnsta kosti tíu lögreglubílar voru þarna á staðnum og hafði kona vinar míns á orði að þetta væri eins og í Hollywoodmynd og taldi að svona gerðist bara í henni Ameríku. En þar sem ég er fréttaljósmyndari, vissi ég nákvæmlega hvað væri að gerast í stórum dráttum og hvers þyrfti að varast og fleira, en bjóst ekki við að þurfa að vara mig á útúr tjúnuðum lögreglumanni, sem fyrir það fyrsta braut á mér lög samkvæmt stjórnarskránni, auk þess að vera dónalegur og orðljótur. Við þessir reyndu fréttaljósmyndarar höfum sérstakt skírteini sem gefið er út aukalega af Blaðamannafélaginu í samráði við Lögregluna, svo kallað VETTVANGSSKÍRTEINI, sem farið var í að gefa út, til að aðeins takmarkaður hópur blaðamanna með reynslu, gætu gefið til kynna að þarna væru fagmenn á ferð og þeir ættu að hafa vit á að forðast hættur og raska ekki vettvang eða vera til trafala á vettvang. En blessaður Lögreglumaðurinn #0323, taldi sig hafa vald til að tuddast á mér með kylfu að vopni og hrekja mig frá, í stað þess að rækja þau störf sem og skildur sem hann hafði þarna á vettvanginum, en vera ekki að atast í löghlýðnum borgurum sem voru að sinna sínum skildustörfum. Valdníðsla þessi var algjörlega að tilefnislausu, því hættan var liðin hjá og einskis að vernda frekar, enda málið í höfn, að auki er ég sýndi honum þetta viðurkennda skírteini þá sagði hann orðrétt; "ÞETTA SKÍRTEINI ÞÝÐIR EKKI RASSGAT" bara þessi ummæli eru honum og stöðu hans til mikilla vamsa og á ekki að heyrast frá þjóni laganna, þeir mega ekki gleyma því að þeir eiga að fylgja ákveðnum reglum og sýna kurteisi í störfum sínum. Þó þeir séu komnir með stjörnuna á ennið, þá þýðir ekki það að þeir séu í stjörnuflokki á ráði öllum heiminum, nota bene þesi var ekki með húfuna sína svo það er ekki víst að hann hafi það vald sem hann taldi sig hafa, en best er ef öll dýrinn í skóginum geta verið vinir og talað saman fyrir það fyrsta og sýnt hvort öðru tilhlýðilega kurteisi. ég hef verið starfandi fréttaljósmyndari í þrjátíu ár og hef mun meiri reynslu á aðkomu á vettvang af ýmsum toga, bæði erfiðum, hættulegum og jafnvel mjög blóðugum, það er fátt eftir sem ég hef ekki upplifað en maður er alltaf að læra og verða reynslunni ríkari, lífið er einn stór skóli. Skoðið myndirnar þær eru að byrtast í Morgunblaði allra landsmanna. Jón Svavarsson


mbl.is Vörubíll stöðvaður eftir ofsaakstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland keppir á Bocuse d'Or í Lyon Frakklandi !

wKM 210107_JSM7858wKM 210107_JSM7968wKM 220107_JSM8986 

Komið sæl öll, á vefsíðuna mína sem hefur slóðina www.123.is/MOTIVMEDIA eru komnar myndir frá Lyon og ferðinni út, en það sem af er ferðar hefur allt gengið vel og allir skemmt sér vel. Ferðin út með leigufluginu beint til Lyon sem ferðaskrifstofan Practical sá um, gekk dásamlega vel, er farþegar gengu um borð þá fengu allir forlátatösku, sem bæði er hægt að hafa á bakinu eða draga á efti sér því hún er einnig á hjólum, og á leiðinni var síðan kynning á því hvernig hægt væri að nota hana og það sem í henni væri. Þar var meðalannars víkingahjálmur úr flísefni, íslenskur fáni, vatnsflaska og ferða snyrtisett ásamt upplýsingum um ferðina. Um borð báru Kokkarnir fram kræsingar, sem þeir höfðu útbúið kvöldinu áður, af betri gerðinni, en það var ljúffengt krabbasalat í forrétt og kjúklingur á tvo vegu í aðalrétt og svo súkkulaði kaka í eftirrétt. Í gær og í dag hefur staðið yfir keppnin Coupe de Monde en það er ein stærsta keppni kökumeistara sem haldin er í heiminum. Þeirri keppni lýkur í dag og á morgun hefst svo aðal atriðið sem er Bocuse d'Or, en okkar maður Friðgeir Ingi Eiríksson mun takast á við þessa raun á öðrum degi keppninar þeas á miðvikudag. Mikil spenna ríkir hér á keppnissvæðinu og eru áhorfendabekkirnir truðfullir þegar keppnin er í gangi. Auk þessa keppna þá er hér ein af stærstu matvælasýningum haldin og er sýngarsvæðið mælt í hekturum. Hér gefur að líta allt það sem þarf til hótela og veitingarksturs hvort sem það eru servíettur eða dýrindis kræsingar, framleiðendur eru ósparir á að gefa smakk eða selja mjög ódýrt framleiðslu sína til gesta sýningarinnar. Þetta er í þriðja sinn sem ég kem á þessa sýningu og finnst mér hún verða veglegri og meiri í hvert sinn. Á morgun fara svo hjólin að snúast og verður reynt að senda fleiri fréttir jafnóðum og tilefni er til.

Dagur tvö, það gekk allt bærilega framan af degi en netsamabandið var stopult og því mikil tími til einskis, Coupe de Monde kökukeppnini lauk og um kvöldið var farið til Phillipe og snæddur kvöldverður. En munið að skoða myndirnar! Meiri fréttir seinna og á www.chef.is. bestu kveðjur Jón Svavarsson Lyon, Frakklandi.


Hvar eru LÖGINN?

Ungfr Rvik 2005_4437 Já heyrst hefur að nú sé í uppsiglingu enn ein Evróvisíónkeppnin, náttúrulega ætlar landinn að taka þátt,hhuumm! En nhvað þá með að koma með eitthvað frambærilegt, eitthvað sem hittir í mark, ég man ekki betur en að hér í eina tíð voru alveg frábærir laga og textahöfundar og ég tel að við eigum á að skipa mjög færa höfunda að frábærum tónlistarverkum. Ég segi stundum þegar ég er að fylgjast með samkeppnum, hvort sem það er dægurlagakeppni, fegurðarsamkeppni, danskeppni, hundasýning eða bara keppni þar sem allt að 11 menn (konur) eru að henda eða sparka á milli sín samansaumuðum beljurössum, að þegar hlutirnir eru að gerast já og það að GERAST, að þá taki þeir mig uppúr skónum. Það gerði til dæmis lagið sem Regina Ósk flutti síðast þegar Stöð 2 hélt Landslagskeppnina, en samt varð hún bara í öðru sæti, eins lagið Kona með Todmobil, sem ég tel algera snild, ég hækka alltaf upp að þolmörkum er ég heyri það flutt á öldum ljósvakans. nei ég skal sko segja ykkur það að þeir sem hafa valið í þessa keppni, þeir velja alltaf svona hæfilegan skammt af þokkalegum lögum og svo setja þeir inn á milli lögin sem þeir helst vilja fá í úrslit, þeas þá briljanta sem líklegastir eru til að fara áfram, en það sem eftir stendur er það sem við, já VIÐ fáum aldrei að heyra, þeas áhorfendur því ekki er hægt að gefa öllum tækifæri á að spreita sig og því eru mörg lögin endursend, með kæru þakklæti. það er jú svólítill vandi að velja úr miklum fjölda af þeim lögum sem send eru inn og hver er komin til með að segja að eitt þeirra hefði ekki orðið líklegt til að sigra á lokasprettinum, EKKI ég. En það verða menn að fá að reka sig á með, ég hafði tröllatrú á lagið sem Sylvía Nótt flutti og held að það sé eitt af bestu lögum sem sent hefur verið í þessa keppni, ég held þó að hún hafi farið yfir strikið með húmorinn, sem útlendingarnir sættu sig ekki við hvað þá Grikkir bara ÚPPSS! En Sylvía var flott í kvöld og hef ég betra álit á henni eftir fluttning sinn á laginu góða, en þessum ömurlegu þáttum sem sýndir voru með henni á Skjá einum, SORRY Sylvía.
mbl.is Þrjú lög áfram í undankeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Opinber eða óopinber?

Þetta hefur verið þráhyggja sjálfstæðismanna um langt árbil, þeir vilja að öll starfsemi ríkisins sé í einkarekstri og þá er eingöngu verið að horfa í hvert gróðin fer en ekki hvaða þjónusta er í boði. Hér áður og hinngað til hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið kallaður Íhaldið, en það er ekki nafn með renntu. Ég er svo Íhaldsamur að ég vil að það sem er ríkisins sé ríkisins, því það er það sem við skattborgar höfum verið að byggja upp fyrir þetta hátækniþjóðfélag, ef einhver vill fara í rekstur á fyrirtæki eins og RÚV þá er ekkert annað fyrir hann en að stofna slíkt fyrirtæki, það gerði íslenska útvarpsfélagsins á sínum tíma og fleiri hafa fylgt í kjöæfarið, sem nú er meðal annars fjölmiðlarisin 365 miðlar. Stjórnarliðar hlustið nú á heiðarleg rök og dragið frumvarpið til baka, ég benti á á sínum tíma að sala á Símanum var frumhlaup, amk með grunnlínukerfinu, og hvað hefur gerst það sjá allir eftir þeim gjörning. Förum að hlutunum með gát og dokum við, því áður en við vitum af verður komin hér Arabískur sjeik og verður búin að kaupa skerið því það virðist allt vera fallt nema heiðarlegt fólk.
mbl.is Segja réttindi starfsmanna RÚV enn óviss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland í herinn og kaninn burt !

Jæja segi bara ekki annað, en skildi Valgerður hafa fengið tilsögn hjá vinkonu sinni í USA hvernig eigi að reka her? Björn Bjarnason, sem ég tel einn af betri stjórnmálamönnum landsins, er einnig mikið í mun að "hervæða" landið en þó ekki beint, það er deginum ljósara að varnir landsins eru með öðrum hætti en áður var. Það er mjög göfuglegt gjafmildi danskahersins sem Landhelgisgæslan nýtur af þeirra hendi, en við megum ekki gleyma okkur alveg í dótaskápnum og þurfum að fara að hlutunum með gát, maður á alltaf að þakka vel fyrir góðar og nytsamlegar gjafir, en maður á líka að fara vel með það sem manni er gefið og varðveita það vel. En hvað skildi Valgerður ætla að kynna fyrir okkur í dag hvaða SÝN er það sem hún kemur með frá henni Ameríku, spennandi verður að vita.

mbl.is Ný sýn í öryggis-og varnarmálum Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilmenni kvaddur.

Margir Íslendingar hafa flutst búferlum til framandi landa, en ekki allir þeirra hafa snúið aftur heim á litlu eyjuna okkar hér norður í hafi. Mér fannst það við hæfi og fallegur virðingarvottur, Stöðvar 2, að endursýna þátt Jóns Ársæls, þar sem hann heimsótti Magnús til Bretlandseyja. Það er einhvernvegin þannig að þegar fólk flytur úr landi þá fær það undantekningarlaust heimþrá en þó í mis miklum mæli. Margir bregðast við heimþránni með ýmiskonar ráðsstöfunum, hvað varðar ýmsar íslenskar venjur í mat og öðru sem sér íslenskt er. En þó nokkrir brjótast út sem miklir ættjarðarvinir og þar í flokki var Magnús fremstur, hafi einhver verið vel að Fálkaorðu komin þá var það Magnús. Fáir gera sér ljóst hve mikla landkynningu Magnús hefur framkvæmt í gegnum tíðina, þó ég hafi ekki séð mikið af efni sem hann hefur unnið að, þá veit ég það að fengini reynslu að stórhluti breta vita af Íslandi fyrir hans tilstilli og vissu fyrir víst að hann væri frá Íslandi. Á dögum þorskastríðsins var Magnús gjarnan í sviðljósinu hjá BBC og get ég ímyndað mér að það hafi verið vandaverk að vera ekki hlutdrægur í fréttaflutningi af þeim atburðum. Þeir Íslendingar sem búa erlendis ættu að taka Magnús til fyrirmyndar hvað varðar stolt um uppruna sinn og hefja til vegs og virðingar sérstöðu Íslands og mikilfengleik náttúru og þjóðhátta. Ég vil fyrir mína hönd og þeirra sem undir þetta taka þakka Magnúsi og óska honum velfarnaðar á þeim leiðum sem hann á framundan, jafnframt vil ég votta fjölskyldu hans og vinum hjartanlega samúð mína, Guð geymi ykkur öll. Jón Svavarsson
mbl.is Magnús Magnússon borinn til grafar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþingi ohf ???

Jæja segi bara ekki annað, er ekki farið að verða nóg af öllu þessu OHF kjaftæði, þarf að vera að breyta sífelt breitingana vegna. Síminn var seldur með mann og mús, og hvernig stöndum við í dag, jú við höfum fyrirtæki sem hefur nærri einokunaraðstöðu við dreyfingu um grunnlínukefið. En nýlega fregnaði ég það að það stæði til að skipta Símanum upp, þannig að það verður nýtt fyrirtæki með GRUNNlínukerfið. Ég hef alltaf sagt að sá hluti símans sem kallað hefur verið grunnlínukerfið hafi aldrei átt að fara úr ríkiseign, mý mörg dæmi sanna það, erfiðleikar með fjarskiptasambönd þegar fjarskiptaleiðir hafa slitnað í aðra áttina, þá hafa símamenn sagt; já en þið hafið ekki gert neina samninga um varaleiðir, varaleiðir? Ég hefði haldið að það væri skilda þeirra að sjá til þess að það væri leitað allra ráða til að halda uppi fjarskiptasambandi hvort sem línan liggur til hægri eða vinstri eða austur eða vestur, ef það dugir til að tryggja samband, hvað þá ef um er að ræða neyðarfjarskipti eins og kom upp með vakstöð siglinga í haust, að norðvestur hornið var sambandslaust er strengur fór í sundur á leiðinni vestur, þegar það hefði verið hægt að tengja samband hina leiðina eða austur um. Grundvallar atriði við fjarskiptaþjónustu er að tryggja samband með öllum mögulegum leiðum ef kostur er, það á ekki að þurfa að að semja um annað, kaupandi fjarskiptaþjónustu gerir ráð fyrir að hafa samband, hvernig svo sem seljandi fjarskipta þjónustu kemur því í kring. Það á ekki alltaf að þurfa að koma aftan að fólki með svona grundvallar atriði.
Einnig er þetta farið að ganga út í öfgar með einkavæðingu á öllu sem heitir ríkisrekstur, ég veit ekki til að hafa verið boðaður á hluthafa fund RÚV til að ákveða þessa breytingu, það er að segjavið erum öll hluthafar í þessum opinberu fyrirtækjum, verður þá kanski Aþingi gert að ohf, eða boðið út á Evrópska efnahagssvæðinu? Ég bara spyr, því að ég hélt að við værum öll að reyna að reka þetta stórfyrirtæki ÍSLAND ohf.
mbl.is Dagskrá þingsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framandi fésýsla !

Já af hverju kemur þetta ekki á óvart? Einhverstaðar las ég að þessi rekstur hefði átt að vera undir eftirliti og verndarvæng opinbera aðila, Landlæknis, ráðuneytis og jafnvel einhverra fleiri aðila, hvað hafa menn verið að gera. Það er ljóst og var landsmönnum gert það full ljóst fyrir löngu að þarna var ekki allt sem sýndist. Þáttur á stöð 2 um byrgið, er það var á Miðnesheiði, sýndi það að þarna var eitthvað að gerast sem verulega þyrfti að skoða nánar og þá meðal annars af kirkjunar mönnum. Áhorfendum voru gefin skýr skilaboð um að stjórnandi Byrgisins væri gæddur yfirnáttúrulegum hæfileikum. Ég held að þessir hæfileikar hafi aðallega falist í blekkingarvef gagnvart umbjóðendum og stjórnvöldum, enda hefur það sannast hér með skýrslu ríkisendurskoðunar.  Hvað þurfa hlutirnir að fara langt úr böndum til að eftir sé tekið, er kanski víðar svona pottur brotin í umsýslu fjármagns sem er í opinberi þágu. Er ekki komin tími á að nota peningana að skynsemi, ef þetta er meðferðarheimili á það þá ekki að vera undir yfirstjórn heilbrigðismálaBandit
mbl.is Ríkisendurskoðun vill lögreglurannsókn á rekstri Byrgisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Frétta viðhorf og samfélagið !

Viðhorf um stjórnmál og samfélagslegar þarfir, samgöngur, menntun, öryggismál og heilbrigðismál.

Höfundur

Jón Svavarsson
Jón Svavarsson

Starfandi fréttaljósmyndari. skoðið myndir á; www.motivm.is

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Spurt er

Hvert á að fara í frí í sumar?

Bloggvinir

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Hverfisgata 150620 J2X1713
  • Hverfisgata 150620 J2X1529
  • Hverfisgata 150620 J2X1396
  • Hverfisgata 150620 J2X1285
  • Hverfisgata 150620 J2X1840
  • Se-Buss 301220 J2X3920
  • wVitinn 090520 JX25329
  • ...810_jon9993
  • ...810_jon1809
  • ...810_jon1773

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband