19.9.2008 | 16:06
Fljúgandi framtak!
Það er ánægjulegt að sjá hvernig gengið er markvist í þessa kannslu og fjárfest í góðum flugvélum. Nýlega féll frá einn af landsins kunnustu flugkennurum, sem lagði sig fram um að hafa góðan og markvissan flugskóla. Er ég hóf nám í flugi hjá Flugskóla Helga Jónssonar í september 1972, þá aðeins 16 ára gamall, þá voru þarna 2 kennslustofur og líklega á annan tug kennara, sem margir hverjir voru með gríðarlega reynslu í flugi, bæði sem áhuga og atvinnumenn. Má þar meðal annars nefna Vilhjálm heitin Vihjálmsson sem kenndi okkur siglingafræði, Ottó Tynes siglinga og flugeðlisfræði, Guðmund Axelson vélfræði, Guðmund Hafsteinsson veðurfræði, Haraldur Guðmundsson flugreglur, að ógleymdum Helga sjálfum. Í verklega þættinum voru Helgi, Jytta konan hans, Einar Fredricksen, Þórhallur Magnússon, Eyjólfur Reynisson, Kjartan Guðmundsson, Guðmann , Steingrímur Leifsson og ýmsir aðrir sem ég hef ekki nöfnin á. Kennslunni var þannig fyrir komið að kennt var á kvöld námskeiðum sem hófust klukkan sex og voru til svona tíu að ganga ellefu fimm kvöld vikunar í þrjá mánuði. þess á milli vorum við í verklegum æfingum þegar veður leyfði.
Svo fór að halla undan þegar einhverjum spjátrungnum á Alþingi datt í hug að það þyrfti að innheimta söluskatt af öllu sem viðkemur flugi, af einhverjum hvötum sem engin skyldi, því veltan af þessu öllu var svo lítil, þó hún væri að aukast, að það breitti engu fyri þjóðarbúið, því var meir um vert að fá góða og vel þjálfaða flugmenn til að ganga til starfa hjá flugrekendum, en að leggja einhverja skatta sem einhver litblindur þingmaður fann sig knúin til að setja á. Síðan þá hefur flugkennsla gengið upp og niður þar sem þetta er mjög dýrt nám og námslán fengust ekki fyrir þessu námi. Þurftu því nemar að vera uppá foreldra sína komnir eða þræla þess á milli fyrir kostnaðinum.
Reynt var að reka svokallaða Flugbraut við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og gekk hún í einhverjar fáeinar annir og lognaðist út af. Komið hefur upp sú staða að skortur hefur verið á flugmönnum, sakir þess hve fáir hafa sótt það nám. Ýmsar blikur eru nú með atvinnumöguleika flugmanna vegna efnahagsátands í heiminum og samdráttar á öllum sviðum og grátlegt er að horfa uppá hvernig "Nýríki Nonni" hefur sólundað öllu fé, bæði flugfélaga, fjárfestingafélaga og banka, ekkert virðist sjást fyrir endan á því og hvert gjaldþrotið á fætur öðru skellur á. ég óska Flugakademíunni alls hins besta og megi þeim farnast betur en fyrirrennara þess á Suðurnesjum.
![]() |
Keilir kaupir fimm kennsluflugvélar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.9.2008 | 00:05
Sjálfgræðar, græða meira !!!
Þetta er með ólíkindum, hvar endar þessi einkavæðing. Þegar Ríkisbönkunum var breytt í hlutafélög, þá voru allir sannfærðir um það að þeir yrðu í meirihluta eign þjóðarinnar, þegar Landsímin var seldur þá áttu landsmen að eiga kost á að kaupa sér hlut og það í fyrirtækjum sem lýðurinn átti fyrir. En hvað gerðist? Banka auðvaldið er aðeins á fárra manna höndum, Síminn er enn í eigu þeirra sem keyptu hann og þjónustan hefur snar hrakað á öllu landinu. Og næst verður það svo að aðeins þeir sem eiga Banka auðvaldið munu hafa efni á því að fara til læknis til að láta taka hálskirtla hvað þá meir. HVAÐ Á ÞETTA AÐ ÞÝÐA?
![]() |
Samþykktar sjúkratryggingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
10.9.2008 | 16:35
Eins dauði, annars brauð !!!
Þetta er sagt samt með góðum óskum til Futura, sem ekki hefur sínt annað en að vera til fyrirmyndar. Ég hef sjálfur flogið með þeim og var þar allt til fyrirmyndar um borð og góð þjónusta, en eins og máltækið segir er, eins dauði annars brauð. Þetta gæti verið til þess að fleiri flugmenn og flugliðar hjá Icelandair yrðu endurráðnir og héldu vinnunni sinni áfram. Það er einnig einkennilegt að ferðaskrifstofur á Íslandi skulu ekki ná góðum samningum við íslenska flugrekendur og halda vinnunni hér á heimaslóðum. Það má vera að það fáist eitthvað aðeins betra verð hjá erlendum flugfélögum, en afhverju skildi það vera? Það er ekkert ódýrara eldsneyti á þær vélar, lendingargjöld þau sömu, en vera kann að laun flugliða séu mun lakari þar sem um er að ræða starfsmenn frá starfsmannamiðlunum í austari hluta Evrópu, þar sem launakröfur eru minni eða nær engar annað en að hafa bara vinnu. Slíkt er litið sem nýðingsskapur, í íslenskri siðfræði. Það er mun nær að fá launin og veltuna inn í landið, þar sem greidd eru gjöld inn í hítina á Íslandi en ekki út úr landinu. Á árunum er Arnarflug og Air Viking voru uppá það besta, þá þótti það mikið fang að ná samningum um leiguflug erlendis, bæði með sólarlandafarþega, pílagríma og jafnvel frakt. Íslensk flugfélög hafa getið sér góðs orðstýrs á þessum vettvangi svo sem Flugleiðir/Icelandair, Loftleiðir, Flugfélagið Atlanta, Bláfugl, Flugfélagið Þór, Suðurflug, Cargolux sem í upphafi var í íslenskri eigu Loftleiðamanna, Arnarflug, Air Viking, Icecargo og jafnvel fleiri flugfélaga sem ég hef kanski ekki fulla vitneskju um. Íslenskir flugmenn hafa þótt með þeim öruggustu sem finnast í heiminum, sakir góðrar þjálfunar við erfiðar aðstæður.
![]() |
Samningar um leiguflug tryggðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.9.2008 | 21:46
Ríkið á að skammast sín !!!
Það er ekki um stóran hóp að ræða og það eru ekki þeir fjármunir sem greina á milli, að vænlegast hefði verið fyrir ríkið að semja þegjandi og hljóðalaust, þá hefði engin tekið eftir þessum samning nema þessar nokkru Ljósmæður sem hefðu þá fengið eðlilega leiðréttingu á launum sínum og stöðu í þjóðfélaginu. það er satt sem einn bloggari segir; að bumbukarlar fá aldrei hríðir! En þeir ættu að vita hvað það er vont að fá hríðir og nauðsynlegt að hafa reynda ljósmóður þegar fæðing gengur yfir og til að fylgjast með móður og barni á eftir svo tilveran og lífið fari eðlilega af stað!
Myndirnar eru af dóttur dóttur minni Emmu er hún kom í heiminn 30. júní 2008 og ljósmóðirin fer yfir málin með dóttur minni móður Emmu.
![]() |
Samningafundur með ljósmæðrum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.9.2008 | 21:24
Stolt landsins á að vera fáninn!
Það er mín skoðun að það á að endurskoða lög um íslenska fánan og rýmka þar heimildir. Svo vitnað sé í árangur nágrana þjóðana, til að nefna Danmörku, þá er nær alveg sama hvað það er sem þú kaupir, sem framleitt er í Danmörku, að danski fánin skal finnast á umbúðunum svo ekki fari á milli mála hvaðan varan kemur. Meir að segja vörur sem einungis eru umpakkaðar í Danmörku. Sjáið bara danskadaga í Hagkaupum og áfram mætti nefna. Við eigum að vera stolt af okkar fána, fyrir okkar litla auðuga land, sem getur tekið að sér flóttamenn hvaðan æfa úr heiminum fætt þau og klætt. Sendir miljónir til uppbyggingar á skólum í miðausturlöndum og Afríku, flýgur sjúkraflug fyrir sænskaríkið frá Thailandi, setur svo PUNKTINN YFIR IIIÐ með Silfurverðlaunum í handbolta á Olympíuleikum.
![]() |
Fánum prýddar landbúnaðarvörur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.9.2008 | 21:02
Hvenær skildu þeir EINKAVÆÐA ALÞINGI !!!
Þetta er áleitin spurning og sjálfsagt ekki langt að bíða eftir að slíkt frumvarp verði lagt fram. Sjálfgræðisflokkurinn vill blóðmjólka samfélagið aðeins til þess eins að sýna hversu ríkir þeir geta orðið, þessir Faktúrar og Tollheimtumenn. Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu verður ekki til hagsbóta fyrir fólkið í landinu, fólkið sem þarf að strita fyrir þeim litlu launum sem þeim eru skömmtuð hverju sinni, af faktúrum landsins. Ég er þó ekki að taka fyrir það að menn geti/megi ekki fara í sjálfstæðan heilbrigðisrekstur, í sumum tilfellum getur það hagað þannig til að það breytir ekki heildar dæminu. Er ég þá að tala um rekstur eins og Art Medica, sem aðeins er að litluleiti greitt af ríkinu, en er þó starfsemi fyrir ekki mjög stóran hóp fólks, en þó bráð nauðsynlegur. Hins vegar öll almenn læknisþjónusta, bráðamóttaka, skurðaðgerðir af öllu tagi, þar með talið bæklunarlækningar og lítalækningar, eiga að vera á sjúkrahúsunum, öllum aðgengilegar.
Hins vegar geta menn rekið lítalæknastöðvar að vild ef um er að ræða, þjónustu við fólk sem að jafnaði er talið heilbrigt og vill fá breytingar á sér einungis útlitsins vegna, en ekki vegna slysaskaða, eða brotnáms, eins og til dæmis brjósta og slíkt. Við þessi litla þjóð, með öll þessi auðæfi, allar þessar auðlindir, ferska fiskinn, nánast lífrænan landbúnað, hreina vatnið, heita vatnið, raforkuna og á næsta leiti olíulindir norð austan við landið. Hvað gætum við haft það betra? Lnadið er það auðugt að allir gætu átt Range Rover eða Land Cruiser og borgað aðeins fimmtíu krónur fyrir lítran af eldsneyti! NEI það skulu vera nokkrir SUDDARÍKIR til að sína hvað ríkidæmi er.
Myndinar eru frá ræsingu fornbíla ralls sem nú fer hringin í kringum landið. www.hero.org.uk
![]() |
Sjúkratryggingar til umræðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.9.2008 | 20:36
Ávalt tilbúnir að láta taka sig í ...........
Þetta angar allt af skítalykt, ég veit ekki hvernig hægt er að líkja þessu saman og við hvað, nema ef að kanski væri hægt að segja eða velta fyrir sér með hvaða svör fengjust ef þú spyrðir Sjálfstæðismann um hvernig það væri að ganga í vinstri Græna eða það sem ég á við að þessir sem þarna mæta eru áreiðanlega ekkert að hafa sig í frammi við að hvetja Íslendinga í að finna olíu, þeir vildu frekar eiga það fyrir sig. Ég sem leikmaður er nokkuð viss um að við Íslendingar eigum eftir að finna góðar olíulindir og í framtíðinni geti Ísland orðið auðugt fríríki með allar sínar auðlindir, sem þá væru; olía, jarðhiti, vatnsorka, hreint drykkjarvatn, ómengaðar landbúnaðarafurðir, gott sjávarfang og síðast en ekki síst, íslenskt hugvit og gnægð af græðgi. En það óttast ég mest að ríkidæmið falli í hendur á örfáum gráðugum og aðrir fái að lepja dauðan úr skel á meðan. Reynslan af kvótakerfinu og öðrum gróðrastíum hafa sínt það og sannað hingað til. Ég á þann draum að auðlindir landsins verði öllum til hagsbóta og að við Íslendingar getum deilt auðæfunum bróðurlega og allir verið glaðir.
Myndirnar eru af Sænskri flugsveit sem fór um Ísland til og frá Bandaríkjunum til æfinga.
4.9.2008 | 20:33
Fastir liðir eins og venjulega !
Það er ær og kýr íslenskra stjórnvalda, eins og venjulega að fara í kringum hlutina eins og heitan grautinn nema ef það þarf að fara til Kína eða Brussel! Ávalt skulu stjórnvöld lítil lækka almúgan með lélegum afsökunum og skammta skít úr hnefa, er ekki orðið nóg?
![]() |
Harma framgöngu forsætisráðuneytisins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.8.2008 | 15:21
Við hverju er að búast ?
Bifreiða eign og bílastæðamál eru langt frá því að vera í takt. Það hefur verið álit mitt lengi, að það ætti að vera skilda að byggja bílageymsluhús undir öllum byggingum og lóðum stærri húsa og við fjölbýli. Allt of lítið er hugsað um þetta í hönnun húsa, "Ísland er svo stórt að það er nóg pláss fyrir bíla", er oftast hugsunin hjá hönnuðum. NEI það er meira sem liggur undir, harðir vetrar og vond veður, eru oft nægilegar ástæður fyrir rúmgóðum bílageymslum. mikill tími myndi sparast sem fer í að skafa snjó af bílum, færri snjóskaflar væru á ferðinni í umferðinni og færri tjón á bílum þar sem hurðir fjúka upp og svo framvegis.
Menn eru að bíta úr því súra epli núna og svo eru menn að troða nýjum Háskólum í miðbæinn og ætla enn að bæta við Listaháskóla þar sem öll bílastæðin fylltust fyrir fimmtíu árum síðan. Hvar ætlar þessi vitleysa að enda? Nær hefði verið að byggja gott hús á lóðinni fyrir framan Háskóla Íslands (skeifunni), þar er mýrin hæfilega djúp fyrir bílageymslu á nokkrum hæðum og setja svo Háskólan í Reykjavík þar ofan Á. Þannig gætu allir verið sáttir og sameining Háskólana gæti gengið vel fyrir sig þegar fram í sækir. Eins væri hægt að byggja Listaháskólan við hlið Ráðhúsins, því tjörnin er svo lítið notuð og dýrmætt land, sem hvort eð er er orðin svo menguð og líflaus að þetta myndi flokkast undir björgun náttúrunar.
Að leggja bílum uppá gangstétt er að mínu mati alvarlegt brot rétt eins og sínt er á myndinni sem fylgir fréttinni, en sumstaðar er jafnvel nauðsynlegt í þröngbýlinu að tilla aðeins uppá brúnina örðu megin til að gefa hæfilegt rými beggja vegna, gangandi og akandi. Það finnst mér minna mál ef ekki er ráðist lengra en inn á gangstéttarbrúnina. Þarna þarf að gera greinar mun.
![]() |
Hert eftirlit með bifreiðum á gangstéttum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.8.2008 | 09:46
TOP hestar 15 ára.
Þau voru einbeitt á svip börnin sem riðu á fákum sínum inn í reiðhöll Andvara á Kjóavöllum, staðráðin að sýna hvað þau voru góðir knapar, enda sýndu þau það og sönnuðu og sannaðist þar máltækið; margur er knár þótt hann sé smár. En að lokinni sýningu bauðst fjölskyldum og vinum barnanna að skoða og klappa hestunum og jafnvel fara á bak með eldra eða jafnvel yngra systkyni. Nokkrir eldri nemendur sýndu fimi sína og fallegan ganga hestanna, auk smá lista sem ekki er öllum kleyft að gera. Að sýningu lokinni var boðið í afmæliskaffi og súkkulaðikökur. Þess má einnig geta að Guðmundur Guðmundsson hljóp með tvo liðlega þrjátíu vetra hesta, sem hann hafði sett á dráttarkláf og hnakktöskur, en hann er sjálfu komin vel á áttræðisaldur og hljóp eins og þrítugur væri.
6.8.2008 | 11:07
Þetta gengur nú út yfir allt !!!
Fólk stendur grenjandi uppi á meginlandinu yfir því að komast ekki út í Eyjar, til að taka þátt í þjóðhátíð og fara á fyllerí, leitar síðan örþrifaráða og fær einhvern til að skutla sér yfir sem tekursmá þóknun í olíukostnað, því hún er ekki ókeypis. Svo kemur þetta fólk í fjölmiðla og kvartar yfir að það fái ekki fyrstafarrými? Hvað á þetta að þíða? Ég væri bara þakklátur ef ég fengi yfir höfuð far, þangað sem ég væri að fara, ef ekkert annað væri í boði. ég hef lent í því að vera innlyksa á flugvelli úti í heim, þar sem flugginu var aflýst með klukkutíma fyrirvara, og öll önnur flug yfirbókuð, en þá voru 14 sem ekki mættu í eitt flugið hjá einu lággjalda flugfélaginu og þeir 12 sem voru á biðlista ásamt mér og syni mínum fengum far áfram, en þremur tímum síðar en upphaflega átti að fara með aflýsta fluginu. Svo maður skildi bara stundum þakka fyrir viðleitnina þegar verið er að bjarga málunum!
![]() |
Farþegar fengu ekki björgunarvesti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.8.2008 | 12:42
Viðeyjarsund á met tíma?
Heimir Örn Sveinsson lagði í það þrekvirki að synda Viðeyjarsund, en það er sund frá víkini fyrir neðan Viðeyjarstofu og allaleið inní Reykjavíkurhöfn að smábátabryggjunum við Ægisgarð. Líklega er þetta besti tími í þessu sundi eða 1:08:50 klst. Allmagir hafa reynt þessa þraut og margir hafa þurft að hætta í miðju sundi vegna kulda í sjónum. Sundafrek af þessu tagi krefst mikils kuldaþols, öflugs líkamsburðar og þolgæði. Það er því ljóst að það liggur ekki fyrir öllum að yfirstíga þessa þraut.
kkv Jón
29.7.2008 | 20:26
Suðurlandsvegur og Bíldshöfði koma hvergi nærri hvor öðrum !!!
Þessar götur liggja hvergi nærri hver annari og því verður erfit með að fá vitni að atburði sem á sér ekki stað í raunveruleikanum, Bíldshöfði nær frá Elliða ám að Höfðabakka, en Suðurlandsvegur byrjar ekki fyrr en um ca Kílómetra austar og þar mætir hann Vesturlandsvegi, þar sem smálöndin voru í gamla daga.
![]() |
Leitað að vitnum að umferðarslysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.7.2008 | 10:03
Dæmigert fyrir Sjálfgræðisflokkinn og Framapotaraflokkinn !!!



Ekki er ofsögum sagt að þegar þessir Sjálfgræðis og Framapotarar eiga í hlut að þá eru til "eðlilegar skíringar" á öllum hlutum og manngæskan í hávegum höfð! Hvað gefur stjórnendum Kópavogsbæjar heimild til að sniðganga reglur um að auglýsa lausarstöður á vinnumarkaðinum því þarna úti í hinum víða heim er fullt af hæfileikaríku fólki sem gæti jafnvel gert betur fyrir bæinn og þá fólkið sem þar býr. Hingað til hefur alltaf þurft að auglýsastöður, svo sem eins og skólastjórastöður, þó svo að augljóst hafi verið að besti kosturinn væri að veita aðstoðarskólastjóranum stöðuhækkun og þá um leið oftast hæfasta frambjóðandanum til starfsins, en þá hefur hann ekki verið í réttum flokki og þá þarf að auglýsa starfið því þannig eru reglurnar "ÞÁ".
![]() |
Gagnrýna mannaráðningar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.7.2008 | 14:22
Ekki er synt nema sjólag og veður sé gott !!!
Ég hvatti bloggaran Le Betiz, að biðjast afsökunar á ummælum sínum, er hann kallar þá Aumingja, því það er engin aumingjaskapur þó ekki sé farið af stað ef veður og tæki eru ekki í lagi til brottfarar. Það er meira en að segja það að leggja í svona sund, hvað þá að synda alla leið yfir. Fólk skildi athuga það að þó að hundruði manna hafi nú þegar synt yfir Ermasund, að þá eru líklega þúsundir sem ekki hafa klárað það og mjög margir sem hafa þurft að hverfa frá án þess að hafa fengið einu sinni að dífa fæti í sjóinn til að leggja í hann. Þrekraun þessi er meira að segja sögð vera meiri en að klífa á tind Everest, því þeir geta hvílt, beðið af sér veður haft burðarmenn með í för, en sundmennirnir verða að synda um 50 til 60 Km án hvíldar í einni lotu þegar fjallgöngumennirnir far aðeins um 8 Km plús einhver frávik því leiðin er er ekki beint upp, og hafa marga daga til ferðarinnar. Svo íhugið málið hvað um er að ræaða, mörgun finnst nóg um að synda 200 metrana í heitum laugunum(27-29°C) hvað þá í sjónum sem aldrei er kyrr og hitastigið frá 12-17°C, Hverjir eru þá AUMINGJAR? Nei það er ekki öllum gefið að vera afreksmenn í íþróttum en það fólk ber kanski af á öðrum sviðum.
![]() |
Synda ekki boðsund yfir Ermarsund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.7.2008 | 21:31
Gunnar Birgisson næsti LÖGREGLUSTJÓRI Kópavogs ???
Víða hafa Bæjar og borgarstjórar embættistákn, svo sem forláta keðjur sem hvíla á öxlum þeirra og sumstaðar klæðast þeir skikkjum, purpuralitar og með gullbriddingum. líklega vill bæjarstjóri Kópavogs frekar vera með kaskeyti og gylltarstrípur og borða. Það gæti hann ef hann lætur verða af óskum sínum og stofnar Löggæslu Kópavogs, því ljóst er að þrátt fyrir sameiningu lögregluembættana á höfuðborgarsvæðinu, þá hefur löggæsla í Kópavogi ekki aukist, ferkar minnkað. Þekkt er að fyrir 2 til 3 áratugum þá voru 5 til 6 Lögreglumenn á vakt í Kópavogi og líklega hefur íbúa talan þá verið um 10 þúsund manns. Í dag eru íbúar Kópavogs yfir 30 þúsund og fjölgar, og enn eru aðeins 4 til 5 á vakt í Kópavogi. Það má þó segja að eftir sameininguna þá er auðveldara að kalla til líðsauka ef mikið liggur við, en það tekur þó oft langan tíma fyrir þá að komast á staðinn eða að minnsta kosti 10 til 15 mínútur og oftar enn lengur, ástæðan; jú þeir hafa bara í nóg öðru að snúast og eru ekki of margir fyrir á öllu höfuðborgarsvæðinu.
Ég hef reynslu af því að þurfa að bíða í nærri hálf tíma eftir að Lögreglan kæmi til að hafa afskipti af unglingum, sem voru með hættuleg sprengiefni og voru búnir að vera að sprengja litlar en mjög öflugar sprengjur í hverfinu mínu í Smáranum. Það tilvik hefði erlendis verið brugðist við með ofursérsveit og sérstakri sprengjusveit, því þarna voru á ferð táningar á fermingaraldri sem enga virðingu báru fyrir umhverfinu og það um hábjartan dag. Viðmótið hjá fjarskiptum Lögreglu var eins og verið væri að gabba þá; "já við komum fljótlega" og lesa hefði mátt á milli línanna HHUUHH þeir eru bara með einhverja smá Kínverja. Hvað svo sem þeir höfðu undir höndum þá var þetta hættulegt, bæði þeim og öðrum og krafðist tafarlausra viðbragða. Ef maður fer svo í lögguleik og ætlar að gefa ábendingu um hættuleg athæfi ökumanna, þá kemur aldrei neitt út úr því, því viðkomandi er á bak og burt áður en þeir eru búnir að taka fyrsta bitan í kleinuhringin og oftast vegna þess að þeir eru of fáir og of fjarri vettvangi. Kjörorð Lögreglunar er " Með lögum skal land byggja og ólögum eyða" þessi ólög eru oft eitthvað sem daglega eru kölluð landslög, því mörg þeirra eru ekki samin af þeirri skynsemi að eftir þeim sé farið og lög eru eitthvað sem Lögrelan sjálf á ekki heldur að brjóta, nema aðeins að þeir eru undanþegnir ákveðnum þáttum umferðalaga í forgangs akstri í neyðartilfellum.
Löggæsla á að vera í höndum opinbera aðila en ekki í einkarekstri, ég ítreka það sem ég hef oft áður sagt, að það er þrennt í ríkisbúskapnum sem ekki á að þekkja orðin sparnað og niðurskurð, en sjálfsagt er að hafa hóflegt og sanngjarnt aðhald að öllum rekstri. Þessir þrír þættir eru; Öryggismál, Heilbrigðismál og menntamál. þetta eru grunnþættir fyrir vellíðan okkar og framförum. Efling þessara þátta gæti nefnilega leitt af sér sparnað á öðrum þáttum með forvörnum sínum og fræðslu. Góð löggæsla er mikilvægari en margan grunar, góð sýnileg löggæsla kemur í veg fyrir mörg afbrotin og eykur örryggi okkar hinna. Lögreglan á ekki að vera einhver GRÝLA, hún á að vera virðingarverð og friðsöm, en ekki efna til árása eins og glögglega sást á myndbandi frá Patreksfirði fyrr í sumar, sem birtist á vefnum, en ég er samt ekkert að bera í bætifláka fyrir piltin þararna því hann hefur sjálfsagt ekki sýnt af sér neina fyrirmyndar hegðun þar áður. EFLUM LÖGREGLUNA gerum embættunum kleift að reka góða markvissa löggæslu, gefum íbúum landsins kost á að geta verið í öryggi og óttalaus.
![]() |
Hverfagæsla boðin út í Kópavogi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.7.2008 | 00:26
Til hamingju Benedikt !!!
Þar kom að því að Íslendingur næði að synda yfir Ermasundið. Fjarri góðu gamni er ég hér heima á skerinu í stað þess að vera með þeim og mynda Benna ganga á land í Frakklandi, en ég og sonur minn vorum í Frakklandi fyrir réttu ári og biðum eftir að Benni H næði yfir og ætluðum að vera í Fjörunni og taka myndir af honum þar. Þá voru það þessir alræmdu straumar sem myndast við Frakklands strendur, kallaðir Þvottvélin og Grafreitur Draumana, sem hindruðu þá báða, Bennana, í að komast alla leið yfir. Hugsanlega mætti líka segja að skipstjórinn þá hafi ekki haft jafn mikin metnað í að láta sundmennina klára sig, eins og mér sýnist að Andy King geri. Það er meira enn að segja það að synda þarna yfir, eins og kemur fram hjá þeim að samkvæmt GPS mælingum, sem eru mjög nákvæmar og gefa aðeins 1-10 metra skekkju að jafnaði, að þá hefur hann nú þegar synt 60 KM á 16 tímum og 1 mínútu. Í fyrra gafst hann upp eftir 16 tíma og 20 mínútur, þegar Benedikt Lafleur hafði synt í um 22 tíma og 24 mínútur, þegar skipstjórinn gafst upp og dró hann upp úr sjónum. Í mínum huga hafa allir þessir þrír Íslendingar, Eyjólfur Jónsson, Benedikt Lafleur og Benedikt Hjartarson, sem lagt hafa í Ermasundið, í raun synt yfir, en aðeins einn fengið það fullgilt vegna þess að hann er nú sá eini sem hefur einnig tekið land í Frakklandi, því mjög strangar reglur eru um það að sund teljist gilt og flestir sem reyna þetta þrekvirki tekst það í annari og þriðju tilraun, gefist þeim nægur tími og veður til að þreyta raunina. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá sundinu í fyrra, hjá þeim nöfnum en þá var ég svo lánsamur að vera með þeim í för. Myndirnar eru frá því 2007 um sama leiti í júlí, þær sýna Bennana báða í upphafi ferðar, Cap Gris-Nez höfðin sést á 2 myndunum og svo eru stemmningar frá Visant þorpinu sem er rétt vestan við höfðan. Til hamingju Benni með árangurinn.
![]() |
Tókst að synda yfir Ermarsund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.7.2008 | 00:59
Orsakir, afleiðing og orsakaþættir !!!
Mörgum er tíðrætt um umferðina og ekki síst umferðaslys. Í starfi mínu hef ég horft upp á all mörg alvarleg umferðaslys og aðra vofeyflega atburði. Það sem er áberandi og oft á tíðum augljóst, hvað sé orsakavaldur slysana! En ein aðal ástæðan er mannleg mistök, sem er afleiðing athugunarleysis, sofandaháttar og jafnvel að bílstjórar sofni við aksturinn, undir árhifum vímugjafa, sálrænum og líamlegum ástæðum. Þetta kom fram í erindi sem ég hlýddi á hjá Ágústi Mogensen fyrir skömmu, en þetta eru niðurstöður rannsókna sem RNU hefur unnið að á síðastliðnum misserum. Hins vegar ef síðan þessir ólánsömu ökumenn eru á miklum hraða, þá aukast líkur á alvarlegum líkamsmeyðslum eða dauða. Þetta undirstrikar það sem ég hef alltaf sagt; Hraðin drepur en veldur ekki slysum! Árvekni, aðgæsla og aksturshraði í samræmi við aðstæður eru þeir þættir sem koma í veg fyrir slysin. Mörg minniháttar óhöpp hefðu orðið alvarleg slys ef viðkomandi hefðu verið á meiri hraða, sem undirstrika það sem hér er að ofan sagt. Farartæki eru gerð til að koma fólki til og frá ákveðnum stöðum á sem skemmstum og öruggasta máta og tíma. því er mikilvægt að hraðamörk séu til viðmiðunar en ekki endilega einhver alsráðandi mörk og með tilheyrandi sektum og niðurlægingu fyrir örugga ökumenn, mikilvægara er að búnaður bifreiða sé í lagi, með góðu skyggni út um allar rúður, árvekni ökumanna og að ekið sé á hraða miðað við aðstæður, því víða þar sem leyfður er einhver ákveðin hámarkshraði er oft ekki örugt að aka nema á þriðjungi þess hraða, ýmist vegna færðar, umferðar gangandi fólks eða framkvæmda. Ökum vakandi og ekki ef líkamlegt eða sálrænt ástand er að trufla og þá alls ekki undir áhrifum vímu efna. Komum örugg á leiðarenda og lifum í sátt og samlyndi.
7.7.2008 | 00:06
Lágflug yfir hafi í leit að nál í heystakk!
Það er ekki auðvelt að finna litla báta og smá skektur úti á regin hafi. það getur verið erfit að koma auga á litla hluti í jafnvel miklu ölduróti sem gerir allt enn erfiðara. Þetta fáum við að reyna sem tökum þátt í að fara í útkikk með eftirlits og leitarflugvél Landhelgisgæslunar TF SYN. þetta fékk ég að reyna fyrir viku síðan er neyðarkall barst frá vélarvana bát 330 sjómílur suðvestur í hafi. En sem betur fer gátu þeir svarað í talstöð þegar við vorum komnir í kallfæri við þá og gekk þá vel að finna þá. Fylgst var með bátnum þar til nærstatt skip kom á vettvang og dró bátinn áleiðis til Íslands, en hann var á leið frá Kanada til Noregs. Á morgun mánudag er ég að fara svipaða ferð til að leita eftir skútu sem ekkert hefur spurst til síðan hún fór frá Bahamaeyjum með einn mann um borð sem er Íslendingur. Það væri ánægjulegt ef til hans sæist á morgun og koma honum í samband við umheiminn. Hér gefur að líta nokkrar myndir sem teknar voru á mánudaginn var í flugi með TF SYN.
6.7.2008 | 23:45
Það er komin tími á smá blog !!!
Jæja þá er dóttirinn komin heim með nýju Afastelpuna og var hún skírð í kappellunni áður en þær mæðgur fóru heim á þriðjudag og fékk hún nafnið Emma Guðrún og er Davíðsdóttir. Sr Gunnar Matthíasson sá um athöfnina og var þetta virðuleg og ánægjuleg athöfn. Þar voru samankomin Afar og Ömmur, frændur og frænkur, ásamt nánustu vinum. Að athöfn lokinni fóru svo allir til síns heima og verður haldið kaffisamsæti seinna. Með þessu blogi gefur að líta nokkrar myndir frá athöfninni en þær eru fleiri á myndasíðunni minni; www.123.is/MOTIVMEDIA , þakka allar fallegu kveðjurnar sem ég hef fengið, menn sem eiga svo marga vini eru virkilega ríkir.
Um bloggið
Frétta viðhorf og samfélagið !
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 78416
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslur
- 18.2.2021 Miðborgir/bæjir og Borgarlína gegn bílafólki!
- 15.5.2020 Það er ekki örugt nema það sé örugt!
- 26.4.2020 Kominn tími til !
- 29.3.2011 ICESLAVE NEI TAKK !!!
- 16.11.2010 Á VIRKILEGA AÐ FAGNA MISGJÖRÐUM !!!
- 16.10.2010 ENN er KINDABYSSUNNI veifað !!!!
- 16.10.2010 Þeir RÍKU verða ríkari og FÁTÆKIR fátækari !!!
- 16.6.2010 Bara loka Borginni vesta Elliðaár !!!
- 6.6.2010 Bara rekan og ráða nýjan !!!
- 19.5.2010 Lokum bara LANDSPÍTALANUM hann er hvort eð er svo dýr í rekst...
- 19.5.2010 Ég skal kaupa HS Orku !!!
- 3.5.2010 Blekking til að fá að Hækka IÐGJÖLD!
- 28.4.2010 Enda flokkur í ÚTRÝMINGARHÆTTU !!!
- 13.4.2010 MISTÖK Á MISTÖK OFAN !!!
- 1.4.2010 Alltof seint í rassin gripið !!!
Spurt er
Tenglar
Ljósmyndun
Upplýsingar og þjónusta fyri ljósmyndara.
- MOTIV Ljósmyndaþjónusta
- Framköllun stækkanir Einnig atburða vefur til að kaupa myndir
- MOTIV ljósmyndir
- Sölu og viðgerðarþjónusta Myndavélar og fylgihlutir.
- Ljósmyndavefur sala Ragnar Th.
- Myndabanki Stock photos
- MOTIV á 123.is
Bloggvinir
-
kleopatra7
-
olinathorv
-
gudruntora
-
nanna
-
lillagud
-
stjornlagathing
-
draumur
-
dagsol
-
kreppan
-
kally
-
raksig
-
herdis
-
annamargretb
-
margretrosa
-
helgafell
-
lauola
-
bjarkey
-
netauga
-
domubod
-
ingunnjg
-
keg
-
steingerdur
-
annaragna
-
liljan
-
trukona
-
lady
-
estro
-
sms
-
bifrastarblondinan
-
agny
-
katja
-
eddabjo
-
alla
-
gudridur
-
jona-g
-
nupur
-
blekpenni
-
asgerdurjoh
-
kolgrima
-
katrinsnaeholm
-
halkatla
-
gislina
-
tothetop
-
fia
-
kolbrunb
-
jarnskvisan
-
thorasig
-
bryndisisfold
-
jonaa
-
gudfinna
-
thorbjorghelga
-
eyglohardar
-
helgasigrun
-
vglilja
-
ranka
-
abg
-
joninaben
-
gurrihar
-
motiv
-
doritaxi
-
edvard
-
formula
-
fridrikomar
-
gunnarkr
-
ktomm
-
ragnarborg
-
reynsla
-
siggisig
-
stormsker
-
sveinnhj
-
konur
-
810
-
annakr
-
addamaria
-
alfheidur
-
asdisran
-
astan
-
begga
-
beggibestur
-
benna
-
beggabjuti
-
biddam
-
birgitta
-
brostubara
-
brynja
-
bubot
-
daman
-
diddan
-
ellasprella
-
erlaosk
-
estersv
-
evathor
-
fanneybk
-
fannygudbjorg
-
fararstjorinn
-
fjola
-
fridust
-
gmaria
-
grazyna
-
goodster
-
gudrunjona
-
gudrunmagnea
-
gyda
-
hallarut
-
heidistrand
-
heidathord
-
hlinnet
-
hugrenningar
-
idno
-
ingabesta
-
ingibjhin
-
ingibjorgelsa
-
ippa
-
ipanama
-
isdrottningin
-
jahernamig
-
kittysveins
-
kketils
-
klaralitla
-
konukind
-
ladyelin
-
lara
-
larahanna
-
liljabolla
-
margretloa
-
mariaannakristjansdottir
-
mariakr
-
marzibil
-
mongoqueen
-
ollasak
-
olofdebont
-
pannan
-
ragnhildur
-
roslin
-
ringarinn
-
saedis
-
saragumm
-
sifjar
-
sigrunfridriks
-
sirrycoach
-
skessa
-
steinunnolina
-
stinajohanns
-
sveitaorar
-
thorunnvaldimarsdottir
-
villagunn
-
id
-
morgunbladid
-
vestfirdir
-
armannkr
-
biggibraga
-
binnirarfn
-
bjarnihardar
-
brandarar
-
brandurj
-
businessreport
-
drengur
-
ea
-
esv
-
fiskholl
-
folkerfifl
-
fridjon
-
fsfi
-
gattin
-
gebbo
-
golli
-
gudmundurmagnusson
-
gudni-is
-
hafstein
-
hlekkur
-
hnodri
-
hogni
-
hvala
-
ibb
-
icekeiko
-
jax
-
jonthorolafsson
-
juliusvalsson
-
kentlarus
-
ketilas08
-
killerjoe
-
korntop
-
krams
-
kristinnhalldor
-
krilli
-
ljosmyndarinn
-
malacai
-
nosejob
-
olafurfa
-
omarragnarsson
-
ottarfelix
-
pallvil
-
palmig
-
photo
-
runarsv
-
saethorhelgi
-
skrekkur
-
stebbifr
-
steinibriem
-
svei
-
thj41
-
vefarinnmikli
-
valurstef
-
vefritid
-
iador
-
svanurg
-
ksh
-
margretsverris
-
einarorneinars
-
ejk
-
heidihelga
-
benediktae
-
baldher
-
elvira
-
rannveigh
-
addags
-
minos
-
heidarbaer
-
aslaugfridriks
-
naflaskodun
-
jyderupdrottningin
-
franseis
-
hrannsa
-
valdimarjohannesson
-
arnthorhelgason
-
bookiceland
-
minnhugur
-
thordisb
Eldri færslur
2021
2020
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Af mbl.is
Nýjustu færslurnar
- Er Flokkur Fólksins með Dr Jekyll og Mr Hyde heilkennið varðandi ESB ?
- Salami-sneiðingin er komin inn að kviku
- Hafró lækkar kvótann!
- Með skap mömmu sinnar!
- Hálauna eða láglaunaþjóð?
- Hin nýja ríkisstjórn gerir allt til að rýra eignarhald sjávarútvegsfyrirtækja á auðlindum Íslands til að auðvelda take over fyrir EU.
- FEÐGARNIR ?
- Gæti þetta verið eitthvað sem að allir jarðarbúar mættu leggja meiri áherslu á; AÐ FRAMLEIÐA ÁBURÐ / NÆRINGU fyrir allar innijurtir:
- FERILL ÞESSA MÁLS HJÁ NÚVERANDI DÓMSMÁLARÁÐHERRA ER SÍÐUR EN SVO HENNI TIL FRAMDRÁTTAR......
- Gad Saad í Hörpu, sníkjulíf & slíta í sundur friðinn ...