Þá er AFAstelpan fædd 50 cm og 15 merkur!

Já litla daman dreif sig bara í heiminn í kvöld. Ég var hjá þeim um kvöldmatarleitið er dóttirinn fór að fá mikla samdráttarverki og ákvað ég þá að tengdasonurinn hefði samband við fæðingardeildina og tilkynnti komu þeirra. Ég tók Afastrákinn hann Jotta og gerðum við okkur klára með að hann yrði hjá Afa í nótt. Það var lítið mál fyrir okkur strákana og fórum við að ná í Árna Snæ móður bróður Jotta, en hann var að keppa fyrir hönd Breiðabliks við strákana í Víking í 3ja flokki í fótbolta og gerðu þeir sér lítið fyrir og sigruðu 4 - 1.

En hvað varðar litlu dömuna, þá kom hún í heiminn kl 20:52 GMT og var við fæðingu hraust og heilbrigð, 50 centimetra löng og 15 merkur, end eru foreldrar hennar og litli bróðir voða stolt af henni. Hvað þá Afinn sem vart gat mælt orð af munni, er tengdasonurinn lét mig vita um dömuna, örfáum mínútum eftir fæðingu hennar, tárinn fylltu augnkvarmana af gleði og kverkarnar fóru í lás. Var þetta í annað sinn sem þetta gerðist fyrir mig í dag, en ég fylgdi góðum vin til grafar fyrr í dag og hitti þar fyrir vini okkar og það hendir mann að tilfinningarnar fari með mann. Vinurinn hét Jón Ólafsson og gjarnan kenndur við Snæfisk sem hann átti og rak með myndarbrag í um áratuga skeið, blessuð sé minning hans og megi algóður Guð styrkja fjölskyldu hans á þessum erfiðu tímamótum.

Við Jotti ætlum að hvíla okkur vel í nótt og heimsækja mömmu og litlu systir hans í fyrra málið. Megið þið öll eiga góðar stundir, kær kveðja Jón 

wJOD 260608_JSM1949wJOD 260608_JSM1975Þá eru komnar nýjar myndir fá tengdasyninum af Prinsessunni!

wJGD 300608_01920wJGD 300608_01928


Jæja þá er það nýja útlitið!

photo_144.jpgphoto_145.jpg

 

Þar kom að því að ég skrifaði fáeinar línur, en miklar annir hafa veri hjá mér síðan ég skrifaði síðast. En drengirnir í fjölskyldunni eru allir búnir að fá sumar klippinguna, þeas "JORDAN", en það er eitthvað sem mig hefur alltaf langað að prófa en ekki komið í verk og ekki fengið leyfi til að gera, fyrr en ég tók af skarið núna. Dæmi hver fyrir sig hvort þetta bara fari ekki kallinum vel, læt frá mér heyra og skrifa meira fljótt aftur.

kær kveðja Jón


Hófsamur en Stórmenni !

wSafnakennari_7122wSafnakennari_7074

 

Maður þarf ekki að þekkja til hlítar svona menn til að sjá að um stórmenni er að ræða. Sjálfsagt eru fleiri sem skipa þennan flokk manna, en eru svo hógværir og hófsamir að þeirra er lítt getið í daglegu amstri. Því það er ótrúlegt hvað gasprarar og galgopar geta fengið mikla og óhófsama eftirtekt, með því einu að strá í kringum sig stjörnu og glymmer regni og gala nógu hátt, sem engöngu er úr yfirborðs kenndu hysmi og sjálfeyðandi glingri. Á meðan sitja eftir stórmenni sem þessi án nokkurar athygli og eru samt að framkvæma mikilvægustu hlutina. Þetta segir okkur aðeins það hve fréttamat fjölmiðla í dag er hégómlegt og innihaldlaust oft á tíðum. En þegar berast hógværar fréttir af merkis atburðum þá sjá menn ekki mikilvægið. Morgunblaðið má þó eiga það, eins og með þessari frétt að sjá aðalatriðin frá auka atriðum og fjálla jafnvel á sama látlausa hátt en þó skilmerkilega um það sem merkilegt er. Margir aðrir fjölmiðlar lesa ekki einu sinni svona frétt fyrir sig, hvað þá að birta þær. Heill þér Gissur Ó Erlingsson og megum við njóta visku þinnar enn um hríð.


mbl.is Fagnar 80 ára stúdentsafmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aur eða Króna, Núll eða Færri Núll !!!

wWacs 110508_JSM5056wWacs 110508_JSM5020wWacs 110508_JSM5248wWacs 110508_JSM5192wWacs 110508_JSM5244wWacs 110508_JSM5074

 

 

Myndirnar eru frá markaði í Dubai en þar er allt mis dýrt nema sumt, en stundum hægt að prútta. 

Einu sinni var  aur í vasa manns, svo dögum skipti. Hann hringlaðist þar, vegna þess að það fékkst ekkert fyrir hann. Svo kom að því að ákveðið var að sleppa öllum aurum því það væri svo mikið vesen að bera þá um allan bæ.  Þá voru öll verð miðuð við heilar Krónur, því þær voru miklu stærri og merkilegri, meir að segja til Túklall, en hver man eftir honum? nema svo uppgötvuðu menn að það væri svo mikil verðbólga að verð miðarnir kröfðust þess að sleppa þyrfti öllum aukastöfum undir Tíu svo allt fór að miðast við TíuKróna seðil! En seðlarnir fóru að krumpast og þvælast í vösum manna, svo það var farið að huga að nýrri mynt því seðla prentun var orðin frekar dýr, því Svisslendingar gera ekki svoleiðis frítt. Á sama tíma hækkaði verðlag í Verðbólgunni og engin hafði efni á hvorki einu né neinu. Stéttarfélög voru alltaf í verkfalli, eilíft þras um betri laun en lítið talað um kaupmátt og það sem fengist fyrir launin. Þá kom að því að menn voru farnir að sjá, að verð á öllum hlutum var orðið svo dýrt og það væri miklu sniðugra að fella niður TVÖ NÚLL en að gera eitthvað annað viturlegt. Svo kom að því 1981 þá skildi verði tekin upp ný króna og allt verð á öllu fært til um TVO AUKA STAFI !! HA HA en gerðu það allir NEI því ég hef lifandi dæmi um það að menn færðu aðeins niður um EINN aukastaf. Dæmi; lítið marsipan stykki í bakaríi sem kostaði 80,- krónur í desember 1980 hefði átt að kosta 0,80 kr (80 aura) í janúar 1981, en á þessu nýkrónu ári þá kostaði sama kaka 8,- krónur íslenskar, sem sagt aðeins fært niður um EINN AUKASTAF. Frændur okkar Írar sem fyrir fáeinum árum voru með svo hagstæð verð að KONUR og karlar flykktust þangað í INNKAUP og komu drekkhlaðin af ódýrum varningi, svo hlaðin að verslunareigendum verkjaði hér heima á meðan, nema að þeir fóru sumir að versla í sömu verslunum en bara í meira magni. EN hvað varð um þessar verslunarferðir ??  Jú Írar héldu líka að lausnin fælist í EVRU og breyttu yfir! En hvað gerðist? Síðan hafa ekki sést til Íslendinga versla þar því það er allt orðið svo dýrt í Dublin og Írlandi að ódýrara er að fara í Kringluna og versla, en fara heldur til Spánar eða Ítalíu í sumarleyfi í staðin, en hvað, þar er víða búið að skipta yfir í Evrur og þar hafa drykkir og matur einnig hækkað? Svo spurningin er fyrir hvern er verið að gera þetta? HVER GRÆÐIR Á ÞESSU? Ekki neytendur það er nokkuð víst og kanski ekki einu sinni seljendur, því þeir fá ekkert ef neytendur neita sér um hlutina! Stundum er verr farið en heima setið og í upphafi skyldi endirinn skoða.

Jón Svavarsson neytandi 


mbl.is Líkur á upptöku evru sagðar meiri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gissur Guðmundsson kjörin forseti!

Gissur 140508Gissur 140508_JSM7039Gissur 140508Gissur 140508_JSM0357Gissur 140508Gissur 140508_JSM0377 Gissur gumundsson var kjörin forseti alheimssamtaka Klúbba Matreislumeistara, WACS, ásamt Hilmari B. Jónssyni sem varaforseta og Helga Einarssyni sem ritara. Í samtökunum WACS eru 84 þjóðir með um 8 miljónir félagsmanna. Þetta er í fyrstasinn í sögu samtakana að kosið er um forseta, hingað til hafa aðeins verið eitt framboð í einu og því sjálfkjörnir í hvert sinn. Um fimmhundruð þáttakendur eru á þessu þingi og er mikill stuðningur við íslensku víkingana. Sgja má að stuðningur við íslenska framboðið hafi aukist eftir framboðs kynningarnar á mánudag, því áherslu munur var á frambjóðendum. Íslenska framboðið einkendist af vilja til að vinna að hagsmunamálum félagana og þróun samtakana, á meðan mótframboðið hafði yfirbragð eigin fjárhagslegs stöðuleika og hagsmunir og þróun félagana væri svona með í farteskinu. Gissur kvaðst vera himin lifandi með þann stuðning sem hann hefur og segir vinnu síðustu tveggja ára sem framboðið hefur tekið, hafa skilað árangri. Gissur er bjartsýnn á framtíðina og hlakkar til að takast á við þau verkefni sem framundan eru og hefur nú þegar fullskipað í stjórn samtakana en hann á kost á að velja með sér meðstjórnendur. Þinginu lýkur á morgun fimmtudag og endar á hátíðarkvöldverði í eyðimörkinni.Jón Svavarsson Dubai.

Kynning verðandi Heimsforseta samtaka klúbba mateiðslumeistara á þingi þess í Dubai Sameinuðu furstaríkjunum!

wWACS 120508_JSM6323wWACS 120508_JSM6357wWACS 120508_JSM6370wWACS 120508_JSM0011

 

 

Hitin hér í dubai er um 37° til 45° á celsius, en innan dyra er hitinn frá 18° til 25° að jafnaði, hvor tveggja mjög þægilegt. En þeir félagar Gissur Guðmundsson, Hilmar B. Jónsson og Helgi Einarsson stóðu fyrir kynningu á framboði sínu til forsetu í alheimssamtökum matreiðslumeistara, WACS. þeim félögum gekk vel og fluttu þeir mál sit fagmannlega og hindrunarlaust. Nái þeir kjöri er það á stefnuskrá þeirra að efla ungliðastarfsemi matreiðslumanna, auka og efla samskipti á meðal aðildar þjóðanna. Einnig er á stefnuskrá þeirra að breyta reglum varðandi dómgæslu á alþjóðakeppnum en þar hafa verið nokkuð staðnaður hópur sem litla sem enga nýliðun hafa haft. Fellst breytingin aðallega í því að víxlskipta dómurum og þjálfa inn fleiri dómara. Þessi dómgæsla sem um ræðir reynir mest á í alþjóðlegum keppnum, svo sem Heimsbikarmótinu sem haldið er í Luxembourg fjórða hvert ár og Olympíumeistaramótinu sem fram fer í Erfurt í þýskalandi á fjögura ára fresti en þessar keppnir eru á víxl á annað hvert ár. Það er reynslan að borið hefur á því hve dómgæslan hafi verið einslit, það er að segja þorri dómara hafa verið Þjóðverjar eða þýskumælandi og jafnvel verið þjóðverjar en þó fulltrúar annara ríkja svo sem Bandaríkjana, Singapore víðar.

Kosningin sjálf fer fram í fyrramálið og er ekki mikið sem munar á fylgi þeirra tveggja framboða sem tilkynnt hafa verið, Singapore og Ísland. Íslenska framboðið hefur þó haft vilyrði fyrir um 55% atkvæðisbærra aðildarríkja og ætti því að ná kjöri ef engin skiptir um skoðun. Það er mín trú að þeir eigi eftir að skipta sköpum á þessum vettvangi næstu fjögur árinn og má búast við að sjá markerandi breytingar strax á næsta ári, því það tekur talsverðan tíma í að vinna að öllum þeim málefnum sem á dagskrá eru.

Menn spyrja, af hverju eru íslendingar að trana sér fram í þessu? Jú það vill svo til að Gissur og félagar hafa starfað ötullega að hagsmunamálum matreiðslumeistara. Hilmar B. Jónsson var einn af stofnfélögum Klúbbs Matreiðslumeistara á Íslandi og gengdi þar forsetu um tíma og starfað í þeim samtökum ötullega, Hilmar átti drýgstan þátt í að koma Íslandi í alheimssamtökin WACS, hann rak matreiðsluskóla og hóf útgáfu á Gestgjafanum ásamt konu sinni. Gissur hefur starfað ötullega í Klúbbnum frá því að hann gekk þar inn og þar til fyrir tveim árum síðan var forseti klúbbsins til margra ára. Auk þess var hann einnig forseti Norðurlanda samtakanna þar til á síðasta ári og nú er hann reyðubúin að leggja krafta sína í að efla samtarf og þróunn á alþjóðlegum vettvangi. Helgi Einarsson er sölustjóri hjá Dreyfingu, hann hefur starfað í stjórn KM og hefur ferskar og góðar hugmyndir um hvernig hann vill sjá framtíðina í þessum málum. þannig að augljóst er að þarna fara fram menn með reynslu, hugmyndir og áræði að koma þeim í kring.

Jón Svavarsson Dubai, Sameinuðu furstaríkjunum. UAE United Arabic Emerates.

 

Sjá má fleiri myndir á vefnum; www.123.is/motivmedia  

wWACS 120508_JSM6150wWACS 120508_JSM0002wWACS 120508_JSM0046wWACS 120508_JSM6304


Gefið þeim heldur VÉLBYSSUR!!!!

w1M 010508_JSM8148w1M 010508_JSM8160w1M 010508_JSM9044

 

 

Það kann að vera að þetta séu einar mest rannsökuðu "Valdbeitingartæki" sem um getur, en hvað skildi þá valda því? Er ekki um að ræða eitt VAFASAMASTA VOPN sem um getur! Ég held að offarir Lögreglunar á Suðurlandsvegi nýverið, undirstriki það svo sannarlega, því hættan fellst í því að innan um eru menn, í Lögreglunni, sem svífast einskis og hafa lögin með sér, hvað sem við segjum. Öll þau myndskeið sem ég hef skoðað sýna ekkert annað en sadiska tilhneigingu hjá þeim Amerísku löggæslumönnum sem hafa þetta vopn undir höndum. Ef svo heldur áfram þá verður tekin upp AÐSKILNAÐARSTEFNA hér á Íslandi, þeas ríkir og fátækir, því þessir ríku vilja sko ekkert múður í þeim fátæku og það skal sko barið niður, HVAÐ SEM ÞAÐ KOSTAR!

Stjórnvöld á Íslandi hafa verið iðin við að sleikja upp Evróðuríkin og innleiða allskyns reglur og lög, sem í raun eru ekki sniðin að þörfum Íslands. Þá á ég við að margt af því sem þau snúast um eru góðra gjalda verð og eru samin í góðum tilgangi, sum atriði þeirra eru nauðsynleg okkur til verndar. En málið er ekki alltaf svona einfalt, því margar af hliðarverkunum á þeim meðulum eru ekki í takt við þær aðstæður og þann aðbúnað sem við höfum hér á Íslandi. Því vantar alltaf auka ákvæði til aðlögunar og til að undanskilja það sem er óframkvæmanlegt.

Áleitnar spurningar!

Hver er með umboð fyrir þessum vopnum og hagnast á sölu þeirra?

Hver ætlar að fullyrða að þær komi í veg fyrir slys á Lögreglumönnum?

Hvers á ALMENNINGUR að gjalda?

Elskið friðin og strjúkið kviðin! 


mbl.is Allir lögreglumenn fái rafstuðbyssu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vegir og VEGALEYSUR !!!


mbl.is „Við erum bara sektaðir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þversagnarkennt bull??

wTH 220907_JSM6458wSaltf 191007_JSM0545BIRK 040507_JSM4837

 

Í hverju fellst almannahættan, þetta er daglegt brauð á þessum á þessum stofnbrautum umferðartafir, fyrst á morgnana og svo síðdegis. En afherju? Jú vegna þess að menn hafa keppst við að reysa mislæg umferðarljós, í stað mislægragatnamóta, þveranir og þrengingar, þar sem síst ætti að vera. Afhverju? Jú vegna þess að þeir sem hanna umferðarmannvirki hafa ekki unnið við að aka bifreiðum. Nýverið var frétt um hve þröngt er um fyrir stærri flutningabíla að komast um, jafnvel þar sem umferð þeirra er hvað mest, við vöruhafnir landsins. Ógerningur er að flytja mjög háan farm um aðal leiðir um og út úr borginni. Hvenær ætla menn að fara hanna umferðarmannvirki sem virka, mannvirki sem eru hönnuð til að mæta alkyns sérþörfum, því það eru undantekningarnar sem eru oft hvað mikilvægastar því önnur almenn umferð flýtur alltaf með sjálfkrafa. Þegar öllu er á botnin hvolft þá liggur ALMANNAHÆTTAN í vanhugsuðum og illa hönnuðum umferðamannvirkjum! Hvern á að draga til ábyrgðar fyrir því?


mbl.is „Klárlega almannahætta"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmigert !

wRK 280207_JSM6714FBS 190806_JSM3514

 

Einn reyndasti verkfræðingur landsins gerir ekki að umtalsefni hættur við jaðgangagerð að ástæðulausu. Jaðgöng eru góð þar sem þau henta og góð reynsla er af Hvalfjarðargöngum. En nær hefði verið að setja nýja hluta Hringbrautar í stokk. Annars er alltaf sami grautargangur í skipulagsmálum aldrei nein fyrirhyggja og menn keppast við að byggja og byggja og gleyma að taka frá landsvæði til að fullgera alvöru samgöngukerfi, menn eru enn að miða við hestvagnana og kindaslóðir.


mbl.is Jarðfræði á leið Sundaganga vel þekkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta væri betra ef satt væri !

Góð viðleitni, en ef borgin á svona mikla orku afgangs, þá væri líka nær að lækka taxtan til heimilana og gera þar með hina fínu kjarabót!

 

 


mbl.is Rafmagnið er framtíðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veldur hver á heldur ! VÉR MÓTMÆLUM ALLIR !

wRvik 180407_JSM9954w112D 110207_JSM8639wVH 230207_JSM2901

 

Það er með ólíkindum hvað Íslendingar hafa látið vaða yfir sig á skítugum skónum æ ofaní Æ og nú loks þegar einhverjir hafa bein í nefinu til að hefja upp raust sína þá er þeim hótað með handtökum og formælingum. Þjóðin ætti að vera þakklát VÖRUBIFREIÐARSTJÓRUM fyrir áræði þeirra að spyrna við fótum. Stjórnendur landsins finna annars ekkert fyrir þessu og því fleiri sem eru tepptir í umferð því betra og helst ef að það eru nógu margir þingmenn í þvögunni. Stjórnendur landsins hafa í ggnum tíðina, skammtað sér laun, tryggt sér rífleg eftirlaun, auk þess sem þeir eru ekki í vinnunni nema eftir sínum eigin geðþótta. Hversu oft hefur maður horft á tóman þingsalinn í beinni útsendingu þá sjaldan að þingfundir eru í gangi. NEI NÚ ER NÓG KOMIÐ, ég stend með þeim sem láta í ljós óánægju sína og mótmæla, ÉG STEND MEÐ ÞEIM SEM VILJA RÉTTLÆTI OG SANNGIRNI. Álögur og skattar eru í engu samhengi við það sem þeim er ætlað, bruðlið og sóunin hefur aldrei verið meiri. Sífelt er verið að hirða aurin og kasta krónuni, fejusmíði, vegaklúður og rýrnun í allri þjónustu, hvort heldur er hjá löggæslu, heilbrigðis eða menntamálum. Menn predika einkarekstur einkarekstur ofan, jú það er gott með en heilbrigðiskerfið hefur upplifað það að með einkaframtakinu þá verður allt dýrara, og á hvejum bitnar það? Ég held að við sem sjálfstæð þjóð, sem barðist friðsamlega og stoltir fyrir sjálfstæðinu og byggðum upp traust og gott hagkerfi ásamt öflugu almannatryggingakerfi og einu besta menntakerfi sem þekkist, þá eigum við að viðhalda þessum lífsgæðum en ekki sífelt að rýra þau. Þá segir einhver, þarf ekki skatta á landsmenn til að borga brúsan? Jú vissulega, en að sjálfsögðu á sanngjörnum og skynsamlegum nótum, vegaskattur, þungaskattur, Jónsskattur, eldsneytisgjald, skilagjald, mengunargjald og lengi er hægt að halda áfram, en hafa þessar álögur skilað sér í bættu hagkerfi, bættu heilbrigðis og menntakerfi, auk bættu vegakerfi? Ég held ekki, það vantar mikið uppá enn. Flestir vegir landsins eru enn rétt fyrir hestvagna og það ekki fleiri en 3 til 4 í einu, þröngir ójafnir og jafnvel ófærir. Nei nú er tími til komin að standa saman og krefjast leiðréttingar á þessum ójöfnuði.


mbl.is „Ráðamenn vakni"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GLEÐILEGA PÁSKA !

 wPaskav 220308_JSM0386wPaskav 220308_JSM0391wPaskav 220308_JSM0413wPaskav 220308_JSM0432wPaskav 220308_JSM0459wPaskav 220308_JSM0466wPaskav 220308_JSM0476wPaskav 220308_JSM0482wPaskav 220308_JSM0486wPaskav 220308_JSM0489wPaskav 220308_JSM0492wPaskav 220308_JSM0498wPaskav 220308_JSM0502wPaskav 220308_JSM0504wPaskav 220308_JSM0508wPaskav 220308_JSM0512

 

Já það er alveg satt, en ég hef ekki verið nógu duglegur að blogga! En það kemur til af því að ég hef verið að gera svo margt annað, sem tafið hefur mig frá því að blogga. Ég vil byrja á að óska öllum gleðilegra páska, með bestu óskum um ánægjulegar stundir með fjölskyldum sínum og ástvinum. Það er tækifæri á svona stundum eins og um jólinn að hittast og eiga samveru með fólkinu sínu. Ég hef reyndar notað tíman sem ég hef haft lausan til að vinna upp verk heima fyrir sem setið hafa á hakanum. Það eru reyndar miklu fleiri handtök eftir samt sem áður, en ég hef þó átt góðar stundir með börnunum og ástvinum, auk þess að verða að vinna, en störf mín eru þannig að þeim eru engin tímamörk sett, að undanskildu því að ég þarf á stundum að vera á ákveðnum stöðum á ákveðnum tímum. En í mínu starfi eru engin orlof, veikindi eða neinar afsakanir, það þarf að vera á 24/7 vaktinni og fjarvistir ekki teknar til greina nema "Dauði" og þá að koma með dánarvottorðið sjálfur. En það að vera til og njóta lífsins er dásamlegt og að geta unnið við það sem manni þykir gaman af eru forréttindi. Ég segi það alltaf, að ég verð ekki ríkur af mínu starfi, nema í þeim skilningi að fá öll þau tækifæri sem ég hef fengið, allt það traust sem mér hefur verið falið og öll sú reynsla sem ég hef gengið í gegnum. Það er að vera ríkur, að fá að takast á við margvísleg verkefni og geta leyst þau af kostgæfni, þannig að vel líki. Eitt af því sem fellst í því að vera fréttaljósmyndari, er að festa atburði líðandi stundar á mynd, augnablik sem aðrir fá ekki tækifæri á að upplifa öðruvísi en að sjá myndir frá þeim, sumir upplifa atburði við lestur blaða og aðrir við að horfa á þá í sjónvarpi. En forréttindi okkar er að fá að vera á staðnum og miðla til þeirra sem ekki eiga kost á öðru. Með þessu bloggi fylgja myndir frá páskavöku í Digraneskirkju á aðventu páska, sem fellst í því að kveikt er á báli fyrir utan kirkjuna undir berum himni, þar er tendrað á páskakertinu og ljósið borið í kirkjuna og viðstaddir kveikja á kertum frá páskakertinu. Eftir helgun og blessun og sálmasöng, að ógleymdri predikun sr Magnúsar Björns, þá var gengið til altaris og þáð hið heilaga sakramenti. Athöfnin var virðuleg og hátíðleg, slík athöfn gerir páskahaldið hátíðlegra, líkt og að fara til messu á jólum. Það einkennir allt starf sem fram fer í Digraneskirkju, heilagleiki en jafnframt án þess að vera yfirborðskennt, sterku mannlegu og glaðlegu yfirbragði, fullt af gáska en þó án kæruleysis. Það að vera í sókn þar sem sterkasti prestur í heimi er sóknarprestur er einnig forréttindi.


Svo eru menn að fárast yfir ÞRÆLAHALDI í útlöndum!

wRK 280207_JSM6624

 

Alveg dæmigert fyrir íslensk stjórnvöld í dag, þeir vilja að allir vinni meira fyrir lægri laun. En svo geta þeir verið í fríi að vild, hvað er til dæmis jóla, páska og sumarfrí Alþingismanna langt? Hafa menn gert sér grein fyrir því og svo skammta þeir sér launin sjálfir og bæta ofaná eftirlaunin! Ég held að það sé löngu komin tími á að fara að gera eitthvað róttækt í málinu, gengið á fleygiferð, verðbólgan að ná sér á strik, eldsneytið aldrei dýrara. Manni fallast bara hendur og langar að flytja til Afríku, þar er þó amk hlýrra.  Nei ég verð bara að segja það að þetta er ein lélegasta Ríkisstjórn í langan tíma og ég reikna með að hennar verði mynnst sem slíkrar í sögunni. Ég hafði miklu meiri væntingar af þessari ríkisstjórn en það sem hún hefur sýnt af sér hingað til, ef þeir ætla ekki að hafa þetta orðspor á sér, þá þurfa þau að spíta í lófana og gera miklu betur. Manni fannst eins og það væri að stefna í stöðugleika í vetur, en þetta er eins og að fleygja sér fram af Látrabjargi í frjálsu falli og taka sjensin á því hvort um mjúkalendingu verði í sjónum eða grjóthörð endalok í GRJÓTINU:


mbl.is Lagasetning á hjúkrunarfræðinga ef ekki semst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FRÁBÆRT, LOKSINS AÐ TAKA Á MÁLUNUM !!!

 wRvk 240707_JSM9947Slys 211205_JSM5569

Þar kom að því, að farið er að horfa á verklag ökumanna, sem virðast ekki vita tilhvers eigi að nota stefnumerki og hvaða merkingu það hefur. sumir halda að það eigi að nota stefnumerki þegar maður beigir eða skiptir um akrein, en það er ekki alveg rétt. Það á að gefa stefnumerki áður en til framkvæmdar kemur til að láta samferðafólk sitt vita hvað maður ætlast fyrir og það er skilda þeirra sem á eftir aka að gefa viðkomandi tækifæri á að komast inná akrein eða beygja í þá átt sem merkið er gefið fyrir. Það er einnig skylda allra ökumanna að hleypa öðrum ökumönnum framúr sem gefa til þess merki og að því skyldu að örugt sé, til dæmis á breiðum beinum vegarköflum. ÖKUM SAMAN Í SÁTT OG SAMLYNDI, ÖRUGGT OG FLJÓTT !!!


mbl.is Fylgst verður með notkun stefnuljósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott mál, en ekkert nýtt !!

wRisEssa 120507_JSM7063

 

Þetta framtak er ekkert nýtt af nálinni en það er sennilega það þarfasta sem gera þarf í hraðamælingum. Það er gott mál að takmarka hraða við grunn og leikskóla við 30 KM hraða  og í þröngum íbúðagötum þar sem vænta má barna að leik í nágreni gatna, en að sjálfsögðu eiga börn ekki að vera að leika sér úti á götu. Þarna er mannafla Lögreglu vel varið, en að eltast við það hvort að menn aki á þjóðvegum einhverja 10 -20 KM yfir leyfðum hámarkshraða er að elta ólar við tittlingaskít og engöngu til að tefja fyrir umferð og angra ökumenn, sem jafnframt veldur óþarfa spennu. Það væri nær að hafa afskipti af ökumönnum sem aka of hægt og valda þar af leiðandi háskalegum og óþörfum framúrakstri á vegum landsins. Auk þess að gera má meira af því að taka úr umferð ökutæki sem eru ekki í ásigkomulagi til aksturs, ljóslaus og þaðan af verra. Eins finnst mér afkáralega fávitalegt að sjá ökumenn í rándýrum BMW, M Bens, Range Rover, Land Rover, Landcruiser, Patrol, Porche, og fleiri rándýrum bílum, aka með símtólið í annari hendi og stýrið í hinni nema að pulsan sé þar enn. Hvað þurfa þessir bílar að kosta til að í þá sé settur handfrjálsbúnaður? Ég hef meir að segja séð lögregluna sjálfa með síman í annri hendinni við akstur, já að sjálfsögðu er ég að miða við það að allir þessir að framan töldu voru við akstur á dýru bílunum sínum. Það er svo margt sem maður sér í umferðinni sem kallar á ósvaraðar spurningar að manni verður orð vant. Það hefur komið í ljós nú síðustu daga að fjárveitingar til Löggæslumála er að skornum skammti, en ég hef sagt það áður hér á bloggsíðu minni, að samdráttur í Löggæslunni fækki afbrotum, það er að segja upplýstum og óupplýstum og þá einnig ótilkynntum, því það er engin til að taka við þeim tilkynningum né að standa lögbrjóta að verki. Dæmi nú hver fyrir sig, hvað um okkur verður á næstu misserum, verður mönnum mögulegt að limlesta borgara án þess að verða refsað fyrir, verður aukning á innbrotum og þjófnuðum, munu erlendir afbrotamenn komast inní landið óhindrað og án þess að nokkuð verði gert í þeim málum? Hvernig verður framtíðin, ef skera á niður í öryggismálum, ef Löggæslumenn flýja í önnur arðbærari störf? þetta eru áleitnar spurningar og það er öryggi okkar sem er í húfi!


mbl.is Ómerkt bifreið með myndavélabúnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BAUNATELJARAR !!!!

SE 290607_JSM9183SE 290607_JSM9250

 

Ekki í nokkru ríki er jafn smásmuguleg Tollgæsla og á Íslandi, það að eltast við eitthvað smáræði, þó það væri átekið vindlingakarton eða auka flaska af áfengi eða eitthvað smávægilegt sem fólk er að kaupa sér í fatnaði eða einhverjum nýjungum, þá á aðal áherslan að vera á það að hafa öfluga HUNDASVEIT sem þefar uppi ófögnuð eins og ólögleg fíkniefni og annan álíka hættulegan varning. Hvergi í Evrópu hef ég upplifað það að þurfa að sýna í töskurnar mínar fyrir einn einasta Tollara nema á Íslandi, aðal áhygjuefnið var hvort að ég hefði eitthvað fram yfir þetta lágmark sem er einn líter af sterku og veiku áfengi og karton af vindlingum, en ég tek það fram ég reyki ekki og þætti betur að fá að taka einn pott af áfengi í staðin. Fólk sem er á ferðalögum er háð ströngum vigtar ákvæðum flugfélagana og hvert umfram kíló kostar um eittþúsund krónur og nú síðustu misseri í öllu þessu verðstrýði þá rukka þeir grimmt yfirvigtina. Það eitt takmarkar það sem fólk flytur með sér á ferðalögum. Því skora ég á stjórnvöld að aflétta þessum kjánalegu takmörkunum eða allavega að hækka upphæðirnar verulega og rýmka það magn sem fólk má hafa af áfengi og slíku úr fríhöfninni. Það eru mjög fáir sem eru að versla fyrir meira en góðu hófi gegnir, fólk nennir ekki að rogast með einhver býsn og ein verslunarferð í Fríhöfnina fer venjulega svona í kringum 20-30 þúsund og þá er búið að taka tollinn og slatta af sælgæti handa börnunum og til að eiga fyrir gesti. Það er því áskorun til TOLL yfirvalda að efla Hundasveitina, það eru duglegustu starfsmennirnir og þefvísustu snuðrararnir.


mbl.is 27 milljónir króna í sektir í tollinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við eigum henni mikið að þakka!!!

Boeing 727_20

 297972A

Það er engum blöðum um það að fletta, að þessi fyrsta þota sem Íslendingar eignast, markaði þáttaskil í Íslandssögunni. Ýmsir atburðir og hlutir, tæki og vélar hafa einnig gert það og mörgu af því sem betur fer náðst að varðveita, en því miður of oft í frekar lélegu ástandi. Menningar verðmæti þurfa reyndar ekki alltaf að líta út sem ný væru en það sakar ekki, eins og til dæmis þessi þota, sem menn hafa hugsað um eftir ströngustu reglum og fylgt öllu viðhaldi eftir ströngustu kröfum, er bara snild ef við getum eignast þennan dýrgrip og leyft afkomendum okkar að njóta síðar.


mbl.is Fyrsta þota Íslendinga í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir eiga vonandi ekki vakt í kvöld?

wBIRK 240208_JSM1673wBIRK 240208_JSM1765

 

Veður og Ísland, er eitthvað sem menn verða að gera ráð fyrir hvort sem það er á ferðalögum eða í Evróvísíón söngvakeppni, maður veit aldrei hvar þetta endar. En eitt er víst, að veður geta farið á marga vegu og ef menn ætla að mæta og vera með þá er eins gott að fara í tíma.


mbl.is Snjóflóð lokar flugvallarvegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Frétta viðhorf og samfélagið !

Viðhorf um stjórnmál og samfélagslegar þarfir, samgöngur, menntun, öryggismál og heilbrigðismál.

Höfundur

Jón Svavarsson
Jón Svavarsson

Starfandi fréttaljósmyndari. skoðið myndir á; www.motivm.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Spurt er

Hvert á að fara í frí í sumar?

Bloggvinir

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Hverfisgata 150620 J2X1713
  • Hverfisgata 150620 J2X1529
  • Hverfisgata 150620 J2X1396
  • Hverfisgata 150620 J2X1285
  • Hverfisgata 150620 J2X1840
  • Se-Buss 301220 J2X3920
  • wVitinn 090520 JX25329
  • ...810_jon9993
  • ...810_jon1809
  • ...810_jon1773

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband