Þá er AFAstelpan fædd 50 cm og 15 merkur!

Já litla daman dreif sig bara í heiminn í kvöld. Ég var hjá þeim um kvöldmatarleitið er dóttirinn fór að fá mikla samdráttarverki og ákvað ég þá að tengdasonurinn hefði samband við fæðingardeildina og tilkynnti komu þeirra. Ég tók Afastrákinn hann Jotta og gerðum við okkur klára með að hann yrði hjá Afa í nótt. Það var lítið mál fyrir okkur strákana og fórum við að ná í Árna Snæ móður bróður Jotta, en hann var að keppa fyrir hönd Breiðabliks við strákana í Víking í 3ja flokki í fótbolta og gerðu þeir sér lítið fyrir og sigruðu 4 - 1.

En hvað varðar litlu dömuna, þá kom hún í heiminn kl 20:52 GMT og var við fæðingu hraust og heilbrigð, 50 centimetra löng og 15 merkur, end eru foreldrar hennar og litli bróðir voða stolt af henni. Hvað þá Afinn sem vart gat mælt orð af munni, er tengdasonurinn lét mig vita um dömuna, örfáum mínútum eftir fæðingu hennar, tárinn fylltu augnkvarmana af gleði og kverkarnar fóru í lás. Var þetta í annað sinn sem þetta gerðist fyrir mig í dag, en ég fylgdi góðum vin til grafar fyrr í dag og hitti þar fyrir vini okkar og það hendir mann að tilfinningarnar fari með mann. Vinurinn hét Jón Ólafsson og gjarnan kenndur við Snæfisk sem hann átti og rak með myndarbrag í um áratuga skeið, blessuð sé minning hans og megi algóður Guð styrkja fjölskyldu hans á þessum erfiðu tímamótum.

Við Jotti ætlum að hvíla okkur vel í nótt og heimsækja mömmu og litlu systir hans í fyrra málið. Megið þið öll eiga góðar stundir, kær kveðja Jón 

wJOD 260608_JSM1949wJOD 260608_JSM1975Þá eru komnar nýjar myndir fá tengdasyninum af Prinsessunni!

wJGD 300608_01920wJGD 300608_01928


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta Gunnarsdóttir

 Hjartanlega til hamingju með nýjudömuna.  

Ég skil þig vel, barnsfæðing er alltaf sama kraftaverkið og koma þessum tárakirtlum í gagnið, aftur og aftur.

Marta Gunnarsdóttir, 30.6.2008 kl. 23:30

2 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Til hamingju með litlu afaprinsessuna. Er viss um að þið Jotti eigið eftir að njóta ykkur vel til morguns.

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 30.6.2008 kl. 23:35

3 Smámynd: Gunnar Kr.

Bestu hamingjuóskir með prinsessuna, Nonni minn! Lífið heldur áfram og það eru svona gleðistundir sem gefa því gildi, ekki satt?

Gunnar Kr., 1.7.2008 kl. 01:39

4 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Til hamingju með fallegu afastelpuna þína, Jón minn. Lítill er heimurinn orðinn þegar litla skottan þín heilsar heiminum á Íslandi um kvöld... og bloggvinkona í Bretlandi búin að fá að sjá myndir af henni strax morguninn eftir.  Hún er yndisleg og mikið skil ég að þú sért stoltur!   Bestu kveðjur,

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 1.7.2008 kl. 08:20

5 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Til hamingju með litlu "afalúsina".....

Fanney Björg Karlsdóttir, 1.7.2008 kl. 10:39

6 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Innilega til hamingju með AFAkrúttið þitt!  Skil þessar tilfynningar þegar tárin trilla.

Ía Jóhannsdóttir, 1.7.2008 kl. 11:02

7 Smámynd: Birna M

Til hamingju með litlu prinsessuna. Þau eru sæt afakrúttin, bæði tvö.

Birna M, 1.7.2008 kl. 11:20

8 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Til hamingju

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 1.7.2008 kl. 12:13

9 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Til hamingju með dótturdótturina. Það fór ekki á milli mála þegar ég hitti ykkur um daginn að það væri ekki langt eftir.

Helga Magnúsdóttir, 1.7.2008 kl. 12:18

10 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Innilega til hamingju með afabarnið.

Guðjón H Finnbogason, 1.7.2008 kl. 12:20

11 identicon

Innilegar hamingju óskir með litlu afadömuna.

Bryndís R (IP-tala skráð) 1.7.2008 kl. 12:30

12 Smámynd: lady

ætla senda kveðju ,,og til hamingju með prinssesuna,,núna er stóri bróðir stoltur og afinn kær kv Ólöf jónsdóttir

lady, 4.7.2008 kl. 14:43

13 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Það er engin tilfinning eins og að fá barnabarn . Til hamingju

Rúna Guðfinnsdóttir, 4.7.2008 kl. 15:56

14 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Hjartanlega til hamingju. Vonandi á maður þetta eftir í ekki svo mjög fjarlægri framtíð.

Jóna Á. Gísladóttir, 5.7.2008 kl. 12:34

15 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Sæll Jón. Já hratt flýgur stund og áður en við höfum tíma til að líta um öxl þá eru litlu börnin okkar orðið fullorðið fólk og hafa gert okkur að ömmum og öfum...Innilegar hamingjuóskir með litlu dömuna til þín og eiginkonu þinnar Ólafar.

Guðrún Magnea Helgadóttir, 5.7.2008 kl. 18:02

16 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Hjartanlega til hamingju með stelpuna þína að færa þér svona fallega afastelpu. 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 6.7.2008 kl. 14:39

17 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Innilegar hamingjuóskir með afastelpuna, glæsileg eins og nýklipptur afinn!

kv. Ingibjörg

Ingibjörg Hinriksdóttir, 6.7.2008 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Frétta viðhorf og samfélagið !

Viðhorf um stjórnmál og samfélagslegar þarfir, samgöngur, menntun, öryggismál og heilbrigðismál.

Höfundur

Jón Svavarsson
Jón Svavarsson

Starfandi fréttaljósmyndari. skoðið myndir á; www.motivm.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 77912

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Spurt er

Hvert á að fara í frí í sumar?

Bloggvinir

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Hverfisgata 150620 J2X1713
  • Hverfisgata 150620 J2X1529
  • Hverfisgata 150620 J2X1396
  • Hverfisgata 150620 J2X1285
  • Hverfisgata 150620 J2X1840
  • Se-Buss 301220 J2X3920
  • wVitinn 090520 JX25329
  • ...810_jon9993
  • ...810_jon1809
  • ...810_jon1773

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband