Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Eru þau ekki bara á "Rassíðun" grunni?????

hvar er þetta orð "rasísk" í íslensku? Ég er engin sérfræðingur í íslenskri réttritun en þykist þó vita það að og held að verið sé að tala um kynþátta fordóma. Er ekki bara hægt að segja að þau séu fordómafull hjá Útlendingastofnun, í stað þessarar ljótu slettu?

En það er nú einu sinni með okkur Íslendingana þannig að við viljum vera vinir allra og voða gestrisin, en svo getur fólk ekki beðist hælis á Íslandi, ef geðþótti einhvers embættismanns segir svo. Við bjóðum til okkar flóttamönnum í stórum hópum og synjum svo einstaklingum sem leita hælis og jafnvel kanski af því að þeir hafa ekki réttan hörundslit!

Einn góður maður sagði eitt sinn; Ég er ekki með kynþátta fordóma, ég hata bara negra!  

Vissulega er til í því að verið sé að reyna að ryðjast inn á okkur fólk sem hvergi er í húsum hæft, en það má líka segja um margan Íslendingin, vissulega hafa hinar Norðurlanda þjóðirnar upplifað allskyns vandamál af innflytjendum og eru þar vandamál af miklu stærri stærðargráðu. Foreldrar mínir og systkyni er innflytjendur til Svíþjóðar og hafa ekki verið til mikilla vandræða þar en stór hópur fólks sem er í svipuðum sporum og þau(innflytjendur) eru ekki að aðlagast og eru til vandræða af þeim sökum. mikilvægt er fyrir innflytjendur að gera sér grein fyrir því að þurfa að aðlagst þeim aðstæðum sem fyrir eru en ekki að fara að reyna að breyta veröldinni, ekki myndum við reyna það í þeirra heimalandi, og þar liggur hundurinn grafin.

whero_070908_jsm8525.jpgwKop 190708_JSM1794


mbl.is Segja Útlendingastofnun starfa á rasískum grunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers á þjóðin að gjalda???

Það er deginum ljósara að róttækra aðgerða er þörf, störf Alþingis á undanförnum vikum hafa ekki verið á þá leið sem búast hefði mátt við á jafnerfiðum tímum, alltof mörg gæluverkefni hafa verið að taka upp tíman frá alvöru málefnum á Alþingi Íslendinga og allskonar bull hefur verið við lýði þar á fjölunum á kostnað verðmætari málefna. Það er til dæmis með ólíkindum hvað búið er að eyða tíma í að setja einhver lög á það að ekki megi dansa nakin eða hálfnakin á Goldfinger eða öðrum slíkum stöðum. Slík lög gætu gert undirfata sýningar á fegurðasamkeppnum ólöglegar, athugið það! Brúður í gluggum undirfataverslana verða ólöglegar og að bera sig í bikini á sundstöðum verður ólöglegt, HVAÐA VITLEYSA ER I GANGI EIGINLEGA!Á tímum frjálshyggju og haftaleysis og eflingu í mannlegum samskiptum ætti enn frekar að afnema öll höft. En allt er samt gott í hófi.

Þegar hvert fyrirtækið er sett á hausin og fyrirtæki sem eru á barmi gjaldþrots eru yfirtekin þegjandi og hljóðalaust hvert af öðru í skjóli BRUNAÚTSÖLU þá er ekki að spyrja að allri SPILLINGUNNI, hún er enn við lýði og jafnvel aldrei meir en nú þegar bankar svara ekki fyrirtækjum í erfiðleikum og veita ekki neina fyrirgreiðslu til að bjarga málunum og gera þeim kleift að halda áfarm starfsemi og atvinnu fyrir starfsmenn sína. Það á enn að gera þá ríkari ENN RÍKARI. Dæmi eru um að risar eins og N1 og Húsasmiðjan og slíkar samsteypur séu að yfirtaka minni fyrirtæki til þess eins að auka fákeppni á markaðnum og þar með geta haldið uppi hærra verði og jafnvel enn hærra verði í skjóli skelfilegrar stöðu gengismála.

Það er krafa okkar hinna almennuborgara að slík spilling verði ekki liðin og farið verði í að afgreiða alvörumál á ALÞINGI, mál sem varða hag fólksins og afkomu til framtíðar. 

wRvik 180407_JSM9954wRK 280207_JSM6456wFBS 060807_JSM8097


mbl.is Hafnar flatri niðurfærslu skulda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Djöfullinn danskur ekkert er "Gjaldþrotapúkanum" heilagt....

Það má ekki einu sinni líta af þeim dönsku og þá er allt fallít, hvað verður næst? Vaxmyndasafnið, Tívolí, dýragarðurinn eða bara LEGOland? Kanski Hafmeyjan fari á hausinn, það er sosum nokkrum sinnum búið að afhausa hana blessaða.

Grin

02rsdfe.jpgwEs 080707_JSM1289


mbl.is Danskt kynlífssafn gjaldþrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Frétta viðhorf og samfélagið !

Viðhorf um stjórnmál og samfélagslegar þarfir, samgöngur, menntun, öryggismál og heilbrigðismál.

Höfundur

Jón Svavarsson
Jón Svavarsson

Starfandi fréttaljósmyndari. skoðið myndir á; www.motivm.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Spurt er

Hvert á að fara í frí í sumar?

Bloggvinir

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Hverfisgata 150620 J2X1713
  • Hverfisgata 150620 J2X1529
  • Hverfisgata 150620 J2X1396
  • Hverfisgata 150620 J2X1285
  • Hverfisgata 150620 J2X1840
  • Se-Buss 301220 J2X3920
  • wVitinn 090520 JX25329
  • ...810_jon9993
  • ...810_jon1809
  • ...810_jon1773

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband