Naglar falskt öryggi !!!

Nagladekk eru oftar að virka öfugt við það sem þeim er ætlað, skilyrði fyrir nagladekkjum eru mikið sjaldnar en menn gera sér grein fyrir. Sjálfur hef ég aldrei sett nagla dekk undir bílana mín að undanskildu einu tilviki, en það var fyrir um 32 árum síðan, þá átti ég Land Rover og var blankur námsmaður og átti ekki fyrir nýjum dekkjum. Þá brá ég á það ráð að skera nýtt munstur í þau dekk sem undirhonum voru og setja nagla í kannt kubbana á dekkjunum. Þetta var snjó þungur vetur og eins næsti á eftir, en þann vetur var ég komin á ný jeppa dekk ónelgd og síðan vel ég góð vetrar dekk og hef mikið notað harðkornadekk sem reynst hafa stórkostlega vel. Fyrir rúmu ári síðan keypti ég mér nýjan (gamlan) bíl og fékk hann á nöglum, það fyrsta sem ég gerði var að fara á dekkjaverkstæði og láta plokka naglana úr. Gatnahreinsun og hálku eyðing, hefur verið það góð, að það á ekki að þurfa nagladekk innanbæjar.

Ökumenn þurfa bara að muna að aka í samræmi við aðstæður, en því vilja þeir oft gleyma þó það sé engin hálka. Nagladekk geta aukið bremsuvegalengd á þuru malbiki og ekki síst blautu, þá skauta þeir áfram og oft stjórnlaust.

Ökum varlega og högum akstri miðað við aðstæður ALLTAF !

wKOP 030708_JSM7511wTH 220907_JSM6458


mbl.is Notkun nagladekkja kostar sitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég nota sko nagladekk.Ég þarf oft að fara fjallvegi.

Það sem mér finnst vera falskt öryggi í umferðinni er hvað bílstjórar ofmeta sjálfa sig út frá bílnum sem þeir eru á en ekki ástandi vega.

Solla Guðjóns, 6.11.2008 kl. 12:03

2 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Tek undir þetta.

Steingerður Steinarsdóttir, 6.11.2008 kl. 16:37

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ég hef nákvæmlega ekkert vit á dekkjum, en lét plata mig á dekkjaverkstæði til að kaupa fjögur stykki nagladekk undir bílinn.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 8.11.2008 kl. 17:47

4 Smámynd: Sverrir Einarsson

Kannski ég ætti að eiga tvo ganga af dekkjum, nei þrjá, einn gang af sumardekkjum, einn gang af nagladekkjum  ( þegar ég þarf að bregða mér út fyrir saltpyttinn í borginn) og ein naglalaus vetrardekk til að aka á í borginni svona yfir há veturinn, þetta gæti orðið bísna dýr útgerð, bara í dekkjunum, ég er sammála að það þurfi ekki að vera á nagladekkjum hér í borginni nema kannski 1 - 2 daga á vetri, en við megum ekki gleyma því að það eru bara ekki allir bíleigendur sem búa í borginni, sumstaðar er ekkert salta, og tæplega sandað svo þar getur oft verið langvarandi klaki á götum bæja og milli bæja og ég hef reynslu af því að vera á ónegldum dekkjum við svoleiðis aðstæður og reyni að forðast þær eftir bestu getu, meðferð á malbiki af völdum nagla, harðkornadekkja eða loftbóludekkja er svona álíka munur á kúk og skít!!!! Naglar slitna úr dekkjum loftbólur springa og harðkorna dekkin eyðast líka. Þannig að ég ættla að eiga mín nagladekk og mín sumardekk og spara mér einn dekkjagang til að eiga uppí bensín í vetur.

Eigðu svo góðar stundir.

ps flottar myndir, hvaða torfæru bíll er þetta er þetta nokkuð gamli Nordekkdrekinn?

Sverrir Einarsson, 8.11.2008 kl. 23:33

5 Smámynd: Halldór Þórðarson/dóritaxi

Alltaf gaman að því þegar fólk hefur skoðanir á hlutunum og hvort rétt sé að nota nagladekk eða ekki það verður að vera val hvers og eins, en að vera með eða á móti þessari tegundinni eða hinni það er nú bara barnaskapur, en hér er umræðan um NAGLADEKK og mín reynsla eftir nokkur hundruð þúsund km. akstur þá eru nagladekkin góð þar sem þau eiga við þ.e.a.s. þegar naglarnir ná í gegnum ísinguna sem er á götunni en að örðuleiti gera naglarnir ekkert gagn og geta virkað  í sumum tilfellum eins og skautar sér í lagi á léttum bílum, bestu fjölnota vetrardekkin eru þau sem eru gerð úr mjúku gúmmíi, vel skorin og með passlegan loftþrýsting í, það er að minni reynslu þau dekk sem virka svo til 100 % við allar aðstæður en að sjálfsögðu er það bílstjórinn sem vegur hvað þyngst í þessu öllu því eins og máltækið segir     "sá veldur sem áheldur"

Halldór Þórðarson/dóritaxi, 10.11.2008 kl. 22:46

6 Smámynd: persóna

Ég fer allra minna ferða fótgangandi, og þá er öruggast að vera á vel negldum pinnahælum.

persóna, 10.11.2008 kl. 23:50

7 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég get sagt þér það, að ég er sko komin á nagladekk, annað dugar ekki hér norðan heiða.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 11.11.2008 kl. 00:57

8 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Ég notaði sjaldan nagladekk á meðan ég bjó i bænum..... en í dag,búandi úti á landi þar sem ég þarf að fara yfir fjallvegi stundum oft í viku kemur ekki annað til greina ... frá mínum bæjardyrum séð en naglarnir.....

Fanney Björg Karlsdóttir, 16.11.2008 kl. 13:07

9 Smámynd: Jón Svavarsson

Á veturna er veður eru válind úti á landi, þá er enn þá betra að nota keðjur, því á miklum klaka sem oft myndast á landsvegum þá dugar ekkert annað en að járna klárana, þess á milli duga góð snjódekk með fínum ristum í grófu munstrinu best og þegar það er snjór, sem er að þappast og eða nýfallinn þá er ekkert gagn af nagladekkjum. Svo heildar útkoman er í raun að naglar eru ónauðsynlegir, því þessar örfáu klukkustundir sem virkilega er gagn af nöglum er á mjög þunnri ísingu sem myndast helst á morgnanna áður en sólin kemur upp, eða saltað og sandað er á vegina, eða í frostrigningu sem frýs á augnabliki sem gerist stundum síðdegis og á kvöldin en alla jafna mjög óvænt og sjaldan. Ég tel að notkun nagladekkja sé að mestuleiti óþörf, ökumenn þurfa hinsvegar að vera viðbúnir misjöfnum aðstæðum alltaf.

Jón Svavarsson, 16.11.2008 kl. 19:59

10 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Ég nota ekki nagladekk og hef ekki gert það í mörg ár.

Guðjón H Finnbogason, 17.11.2008 kl. 23:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Frétta viðhorf og samfélagið !

Viðhorf um stjórnmál og samfélagslegar þarfir, samgöngur, menntun, öryggismál og heilbrigðismál.

Höfundur

Jón Svavarsson
Jón Svavarsson

Starfandi fréttaljósmyndari. skoðið myndir á; www.motivm.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Spurt er

Hvert á að fara í frí í sumar?

Bloggvinir

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Hverfisgata 150620 J2X1713
  • Hverfisgata 150620 J2X1529
  • Hverfisgata 150620 J2X1396
  • Hverfisgata 150620 J2X1285
  • Hverfisgata 150620 J2X1840
  • Se-Buss 301220 J2X3920
  • wVitinn 090520 JX25329
  • ...810_jon9993
  • ...810_jon1809
  • ...810_jon1773

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband