ÍSLENDINGAR ERU RÍKIR.......

Hvaða land í heiminum, annað en Ísland, getur státað af því að geta pundað fleiri fleiri kílówöttum af raforku út í himinhvolfið og átt samt nóg eftir til að lýsa upp öll húsin og öll álverin að auki. Gaman væri að vita hvað það kostar að keyra þetta ljós og hver borgar rafmagnsreikningin. Fyrir um átta árum var reist súla á Sandskeiði, listaverk eftir Ítalskan listamann, í tilefni af menningarborg Evópu, Reykjavík,  en þar voru notaðar flúorsent orkusparandi perur, en það ljós er búið að loga á nóttunni síðan, allavega var ljós á því síðast er ég vissi. Líklega notar friðarljósið álíka orku á dag og hitt á einum mánuði (án þess að ég hafi það nákvæmt) en það er talsvert mikil notkun samt.  Ég ætlaði nú ekkert sérstaklega að væla út af því en fannst ég verða að velta vöngum yfir þessu, á þessum síðustu og verstu tímum. Engu að síður koma þessi ljós einkennandi fyrir og mynnir okkur á það að það er alltaf smá ljósglæta í mirkrinu, við megum aldrei láta bugast eða missa sjónar á glætunni sem leitt getur okkur til betri tíma. Það er mikil synd að heimurinn skuli vera svona miskunarlaus, manngæska fyrir gað borin og samviska eitthvað sem menn lesa í sögubókum. Þegar tæknivæðing, framfarir, þekking og kunnátta, endurlífgar fólk, byggir heilu hallirnar, kemur mönnum út í himingeymin og á tunglið, fólk getur horfst í augu heimsálfa á milli í tölvum, talað saman hvar sem er og hvenær sem er með litlu spjaldi sem dettur í vasa. Hvað getum við farið fram á meira, græðgin anar mönnum útí fjárfestingar og ævintýri, t´ladregur saklaust fólk í kaup á allskyns verðbréfum, sem verða svo dag einn verðminni en skeinipapír. Ég á í fórum mínum rúllu af skeinipappír sem gerður er úr sænskum hundraðköllum, ég hef aldrei tímt að nota hann, en kanski einn góðan veðurdag eftir eitthvað fjárviðrið, þurfi ég að taka fram rúlluna, en þá verður bara notað eitt blað í einu. Þangað til ætla ég að bara að nota það sem ég er vanur og reyna að spara svolítið meira. Alla vega á ég engan sumarbústað upp á einhverja hundruð fermetra, hvað þá einhvern ofurjeppan, sem sumir hverjir eru svo fábrotnir að þeim fylgir ekki handfrjáls símabúnaður, þrátt fyrir að kosta nokkrar millurnar. svona getur ríki dæmið orðið aumt að ekki er afgangur fyrir handfrjálsabúnaðin og stunbum ekki einu sinni stefnuljós heldur. það ætla ég að vona að símin minn ednist svo lengi að ég geti haldið áfram að nota handfrjálsabúnaðin sem ég keypti fyrir um átta árum síðan og hef fært á milli bíla, þegar þess hefur þurft, enda kaupi ég að jafnaði svona fimm ára gamla bíla og nota þá í allt að tíu ár hvern, sem þykir þokkaleg nýting. Ég vona að þið hafið gagn og gaman af þessari lesningu og njótið myndana sem ég birti að venju með. Kær kveðja Jón

 

wlen_181008_jsm5352.jpg Smellið á myndina til að sjá hana stærri!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 20.10.2008 kl. 21:26

2 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Með einu pennastriki væri hægt að afnema vísutölu lána,nema blek sé uppurið í kreppulandinu.

Átt þú góðan dag

Anna Ragna Alexandersdóttir, 21.10.2008 kl. 15:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Frétta viðhorf og samfélagið !

Viðhorf um stjórnmál og samfélagslegar þarfir, samgöngur, menntun, öryggismál og heilbrigðismál.

Höfundur

Jón Svavarsson
Jón Svavarsson

Starfandi fréttaljósmyndari. skoðið myndir á; www.motivm.is

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Spurt er

Hvert á að fara í frí í sumar?

Bloggvinir

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Hverfisgata 150620 J2X1713
  • Hverfisgata 150620 J2X1529
  • Hverfisgata 150620 J2X1396
  • Hverfisgata 150620 J2X1285
  • Hverfisgata 150620 J2X1840
  • Se-Buss 301220 J2X3920
  • wVitinn 090520 JX25329
  • ...810_jon9993
  • ...810_jon1809
  • ...810_jon1773

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband