Hátíðarkvöldverður Klúbbs Matreiðslumeistara 2007.

_MG_0703_MG_3196Bocuse 2005_1936 

Jæja gott fólk þá er enn eitt yndislega árið hafið og árlegir dagsskrárliðir komnir í gang, en einn þeirra er hin árlegi Gala kvöldverður KM. Þar koma styrktaraðilar og velunarar klúbbsins og njóta þess besta sem gerist í matarmenningu landsins. Matseðillinn er að venju yfirgrips mikill eða ellefu rétta og þá er ekki talið með kaffi og konfekt í lokinn. Að þessu sinni bar aðalrétturinn höfuð og herðar yfir þessum glæsilega kvöldverði, en það var andarbringa með smjörfylltrikartöflu grænmeti og skreitt með kryddjurtum, ég verð að segja það að þetta var ein besta önd sem ég hef smakkað og hef ég þó smakkað þær margar. Ánægju stundir sem þessar færa manni sólaryl í skammdeginu og gera lífið yndislegra, við hér á Íslandi erum svo heppin að eiga matreiðslumeistara á heimsmælikvarða enda er landslið KM meðal tíu bestu í heimi samkvæmt heimslistanum, núna í mánuðinum eða nánar tiltekið 21. janúar fer hópur fólks með leiguflugii til Lyon í Frakklandi, þar sem Friðgeir Ingi Eirríksson matreiðslumaður keppir á hinni óopinberu heimsmeistarakeppni kokka sem nefnist Bocuse d'Or og kennd er við hin fræga franska kokk Paul Bocuse, en keppni þessi er haldin annað hvert ár og er ef ég man rétt haldin í tuttugasta sinn að þessu sinni. Aðeins 24 þjóðir fá tækifæri á að taka þátt og er keppnin í tvo daga, aðeins 12 kokkar keppa í einu og eru 24 dómarar eða einn frá hverju landi, 12 þeirra smakka kjötréttinn og hinir tólf smakka og dæma fiskréttinn. Hráefnið er valið af keppnishöldurum og mega kokkarnir síðan útfæra réttina að vild eftir það, fyrir tveim árum var hráefnið danskt kálfakjöt og íslenskur skötuselur, en að þessu sinni verður franskur kjúklingur og lúða frá Noregi. íslensku keppendurnir sem tekið hafa þátt á síðast liðnum árum hafa náð þriðja til níunda sæti, en Hákon Már Örvarsson náði þriðja sæti árið 2001 og Ragnar Ómarsson komst í fimmtasæti árið 2005. þetta er í annað sinn sem Klúbburinn stendur fyrir leiguflugi til Lyon og skilst mér að það séu enn örfá sæti laus ef einhvern langar að koma með farið verður frá Keflavík þann 21. jan og komið heim til baka þann 25. jan verðið er mjög hóflegt með gistingu og öllu og er það ferðaskrifstofan Praktikal sem hefur milligöngu með ferðina, ég hvet alla matgæðinga á að skella sér með því þetta er sannkölluð "Gourme" ferð, þvi auk þess eru kokkarnir með sérstakan matseðil í flugvélinni og verður það ekki af verri endanum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Frétta viðhorf og samfélagið !

Viðhorf um stjórnmál og samfélagslegar þarfir, samgöngur, menntun, öryggismál og heilbrigðismál.

Höfundur

Jón Svavarsson
Jón Svavarsson

Starfandi fréttaljósmyndari. skoðið myndir á; www.motivm.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 77928

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Spurt er

Hvert á að fara í frí í sumar?

Bloggvinir

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Hverfisgata 150620 J2X1713
  • Hverfisgata 150620 J2X1529
  • Hverfisgata 150620 J2X1396
  • Hverfisgata 150620 J2X1285
  • Hverfisgata 150620 J2X1840
  • Se-Buss 301220 J2X3920
  • wVitinn 090520 JX25329
  • ...810_jon9993
  • ...810_jon1809
  • ...810_jon1773

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband