Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Nýtt ár með nýjum degi !!!

Um leið og ég þakka öllum lesendum, blogvinum, ættingjum og vinum, fyrir það traust að lesa reglulega, öðru hvoru eða sjaldan, þessar fátæklegu línur um viðhorf mitt um stjórnmál og almenn samskipti, sem ég hef reynt að hafa til að bæta tilveruna og lífsandan. Megi þið eiga ánægjuleg áramót, gæfuríkt og gleðilegt nýtt ár framundan, með kærri þökk fyrir það sem er að líða.

Kær nýárskveðja Jón Svavarsson

 

 

wglfbsr_281208_jon9765_761760.jpg

 


Það var búið að finna upp hjólið er það ekki ?????????????

Hér er eitt augljóst dæmi um það að ríkið er að spara aurana og bókstaflega fleygja KRÓNUNNI, breytingar á breytingar ofan og engin veit hvar hann stendur? Ég held að verið sé að reysa RÍKISLÖGREGLUSTJÓRA hurðarás um öxl og þetta sé orðið svo flókið að menn viti vart lengur hvar og hver á hvað? Væri ekki nær að eyða tíma og fjármunum í eitthvað þarfara en þetta brölt sífelt með þetta embætti. wRvik 180407_JSM9801wKOP 030708_JSM7540wbikf_080808_jsm9105.jpg
mbl.is LRH fái efnahagsbrotin?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta hefði ekki gerst ef..........

Ríkið hefði haldið eftir öllu dreifikerfi fjarskipta á landinu og selt aðgang til símafélaga á heildsölu á jafnræðisgrundvelli, ég sagði það í upphafi, er hugmyndir um sölu Símans komu upp að þetta ætti eftir að skapa meiri vandræði en lausnir, eins aukin kostnað fyrir ríkið sem þarf í staðin að kaupa aðgang að einkareknu dreifikerfi sem þeir áttu áður. Ég segi enn og aftur eins og Mikki refur "Bull og vitleysa" þegar ríkið ætlar að gera eitthvað sniðugt og enda með því að spara aurinn en kasta krónunni.
mbl.is Sagt upp og samningi rift
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blessuð jólin eru komin !

Það má segja að margir eru því fegnir að þessi yndislegi dagur sé á enda kominn, því margir hafa átt ansi annríkt og lítið getað hvílt sig á undanfönum vikum. En nú er áfanganum náð og allir sælir og glaðir, börnin búin að opna jólapakkana og öll GULLINN komin í ljós. Ég á því láni að fagna að eiga fallega og góða fjölskyldu og yndisleg barnabörn. Þó þau séu enn það lítil, að skilja ekki tilgang jólana, þá hafa þau jafn gaman af því að fá pakkana og Jotti var alveg með á hreinu hvað honum þótti skemmtilegast. Ólafur Már dáðist að öllu dótinu og varð hugfangin af apanum sem sem heyrðist í og umlaði á banana. Emma fékk nokkra kjóla og meðal þeirra var einn æðislega fallegur rauðurkjóll frá langömmu og afa í Svíþjóð. Sjálfur fékk ég skemmtilegar myndir á DVD og meðal þess voru minningartónleikar um vin minn og læriföður Vilhjálm heitin Vilhjámsson, en við Villi kyntumst í Flugskóla Helga Jónssonar, þar sem hann kenndi mér siglingafræði, síðar tókumst við á við það verkefni að leita að vini okkar Jóni Heiðberg sem fórst eftir brotlendingu á þyrlu, norðan Mýrdalsjökuls við Mælifellssand, ásam Ásgeiri Höskuldssyni. Þá samdi Villi texta við lag Jóhanns Helgasonar "Söknuður". Tónleikar þessir eru stórkostlegir, flytjendur í landsliði tónlistarmanna, útsetningar og flutningur frábær, því finnst mér það leitt hve hljóðritunin er illa gerð, já mér þykir leitt að segja það en það er staðreynd, hljóðblöndunin er þannig að allur söngur virkar eins og það sé einungis bakraddir við hljóðfæraflutning, en ekki söngur við undirleik. Samskonar upplifði ég í jólaþætti Loga Bergmans, að hljóðblöndun var þar afspyrnu léleg og það er eins og menn séu heyrnarskertir sem sjá um hljóðblöndun á sjónvarpsútsendingum að undaförnu. Einhver kann að spyrja sig hvort að um lélegt sjónvarpsviðtæki sé að ræða, en svo er ekki þó það sé ekki neitt hágæða tæki, því til samanburðar, þetta sama kvöld/nótt jólanótt, að þá átti ég þess kost að hlýða á tónleika Procul Harum í DR2 danska sjónvarpsins, í sama tæki, en þar var fábær hljóðritun og hljóðblöndun og tónleikarnir hljóðritaðir úti undir berum himni, ÞAÐ VAR FLOTT HLJÓÐVINNSLA. Mér finnst fagmennska vera á undanhaldi á mörgum sviðum, þegar um listviðburði er að ræða, þá er ég ekki að tala um flytjendur eða sýnendur, heldur tækniatriði í kringum þá. Ljósameistarar virðast halda að ljós eigi að vera aðalatriði á sviði og valda glýju í augun, svo atriðin séu bara í silúettu og hljóðblöndun sé eitthvað sem er gamaldags eða óþarft. Það er von mín að þeir sem málinu eru viðkomandi lesi þetta og íhugi hvað verið sé að tala um. Hljóðvinnsla á að vera þannig að okkur líði vel með það sem við heyrum og lýsing á að vera þannig að við njótum þess við eigum að sjá.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá jólahaldi mínu og fjölskyldunar, þar sem börnin nutu sín og foreldrarnir voru uppteknir upp fyrir haus með börnunum. Tertan sem myndirnar eru af, er gjöf fá vinum okkar á næstu hæð fyrir neðan en þau eru frá Víetnam, kakan er ljúfeng með smjörkremi og skrautið er úr smjörkremi einnig, því líkt listaver.

Gleðilega hátíð.

 wl5_241208_jon8982_756460.jpgwl5_241208_jon8993.jpgwl5_241208_jon8997.jpgwl5_241208_jon9000.jpgwl5_241208_jon9029.jpgwl5_241208_jon9032.jpgwl5_241208_jon9047.jpgwl5_241208_jon9048.jpgwl5_241208_jon9054.jpgwl5_241208_jon9058.jpg


KERTASNÍKIR OG JÓLATRÉ FLUGBJÖRGUNARSVEITARINNAR HÓ HÓ HÓ !!!

JÆJA góðir hálsar, þá er að styttast í jólinn og Jólatrjásala Flugbjörgunarsveitarinnar í fullum gangi niður á Flugvallavegi, svona ykkur að segja þá seldist allt upp í fyrra og það gæti farið eins núna þessi jól. En hvað um það, hvort sem þú ætlar að kaupa jólatré eður ei þá eru allir velkonir í heimsókn í dag, sunnudag, klukkan tvö því þá ætlar Kertasníkir að koma í heimsókn og tralla með börnunum og aðstoða við val á jólatrjám ef ráðgjafar er óskað. Svo sakar ekki að mynna á FLUGELDASÖLUNA á milli jóla og nýárs!

Munið Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík við Flugvallarveg í dag sunnudag,

KLUKKAN 14

wFBSR 101207_JSM1574wFBSR 101207_JSM1587


UPP KOMAST SVIK UM SÍÐIR !!!

Öllum var talin trú um að selja SÍMANN væri LÍFSBJÖRG fyrir almenning. Allir þingmenn landsins héldu að þarna væru þeir að gera það, eða eins og sagt er á góðri útlensku"AÐ MEIKA ÞAÐ" og öllum var lofað að svo svo mikið af söluandvirði færi til heilbrigðismála og svo framvegis. Allir vitibornir menn sáu hvaða reyk var verið að vaða og þrátt fyrir bréfasendingar, tölvupósta og viðtöl við þingmenn landsins, þá var þessi gjörningur samt samþykktur á Alþingi voru landsmanna. Bandit 

Síðar kom í ljós, þegar þingmenn vöknuðu úr vímunni, að sennilega hefðu þeir farið of geist í söluna, því menn fóru að átta sig á að allt dreyfikerfið væri þarna með og öll öryggisfjarskipti þóðarinnar þyrftu að fara um þessar leiðir líka. Auk þess sem öll þjónusta við landsbyggðina, ekki bara minnkaði heldur lagðist af með öllu! Devil Þá eru góð ráð dýr og leiðin löng til Dlavíkur hvað þá til Seyðisfjarðar, þar sem fyrsta símstöðin var sett upp. Þá fóru menn að spá í hvað dreyfikerfið væri mikilsvirði og kom í ljós hvað það var lítill hluti þess sem allur pakkinn kostaði. Nú er búið að brjóta upp SÍMANN og er Síminn notendasala og þjónusta, Míla dreyfikerfið og Skipti sem sér um allt rekstrartengt og kanski eru fleiri angar sem ég kann ekki að nefna í bili. ALLT þetta staðfestir það sem ég sagði upphaflega, að þetta hefðu átt að vera tvö aðskilin atriði, Síminn, þeas sala og þjónusta við notendur, var í lagi að selja til að hafa í almennri samkeppni, en dreyfikerfið ætti að vera í RÍKISEIGN svo öll fjarskipti væru tryggð og þaðan myndu ÖLL símafyrirtækin kaupa dreyfingu í heildsölu á jafnréttisgrundvelli og þjóðin væri að njóta sömu þjónustu allstaðar.

Svo kemur þetta svikabragð, því nú vilja menn fá komugjöld inn á spítala, væri þá ekki bara betra að setja upp útrýmingarbúðir og fækka þessum vesalingum? Stundum eru menn ekki með heilbrigða hugsun þarna niður við Austurvöll og ættu bara að hugsa sinn gang betur, því einn góðan veður dag reka þeir sig á það hvað þeir hafa kallað yfir sig og okkur hin með og einnig það sem þeir hafa vanrækt og þurfa að súpa seiði af því sjálfir. Það var ekki fyrr en einn fyrrum ráðherra landsins, Magnús Kjartansson blessaður, sem þá var heilbrigðisráðherra, þurfti að að fara á endurhæfingadeildina á Grensás að hann sá það að það bráðvantaði sundlaug á staðinn. Þá fyrst var farið í að byggja sundlaugina þar. Fleiri dæmi væri hægt að telja hér upp, en ég læt þetta duga í bili.

Stundum er betra fyrir þessa háu herra á Alþingi Íslendinga að HLUSTA Á ÍSLENDINGA.

 wFBS 060807_JSM8199wRK 280207_JSM6624

 


mbl.is Komugjald vegna innlagnar á sjúkrahús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"BULL OG VITLEYSA" sagði Mikki refur.....

Ég held að það hafi komið fram í einhverju viðtali á sínum tíma þegar "fallið" var í algleymingi, að fela ætti virtri endurskoðunarskrifstofu málið til gaumgæfilegrar skoðunar og að KPMG hafi sennilega verið þar nefnt! Svo það ætti ekki að koma á óvart, en ferlega léleg afsökun að segjast ekki hafa vitað af því og dómgreindarleysi að láta þetta vitnast! Ég legg til að fá hóp innflytjenda frá Alþjóðahúsi til að taka að sér að endurskipuleggja málin, þau skilja hvort eð er lítið eða ekkert í íslensku, sem er ekki nauðsynleg kunnátta því það veit engin af því hvort sem er!

 wEs 080707_JSM1289

 _jsm1962.jpg


mbl.is Björgvin vissi ekki um KPMG fyrr en í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SEGIÐ SVO AÐ MÓTMÆLI VIRKI EKKI !

Þarna hafa menn gengist við því að stjórnvöld eru valin af fólkinu og ef fólkið vill stjórnvöld frá, "ÞÁ FARA ÞAU FRÁ", og kosið er að nýju. Deila má um það hvort slíkt sé heppilegt, en ef einhver verður uppvís af því að stela úr peningakassanum, þá er hann ekki ráðin til að ransaka málið sjálfur, þó hann viti nákvæmlega hvað gerðist ! Það þarf nýtt lið og óháða aðila til að taka við stjórnartaumunum til að fá réttláta niðurstöðu og aðgerðir sem ekki eru til þess fallnar að breiða yfir spillingu og SJÁLFGRÆÐI,  eins og gerst hefur í bankamálum þjóðarinnar. Stóhluti ráðherra og þingmanna eru að einhverju leiti beint eða óbeint, flæktir í þessi mál of djúpt, saman ber fyrrum eigandi í Sparisjóði Hafnarfjarðar, eiginkona eins af toppum Kaupþings og fleiri væri hægt að telja upp. Það sem mér finnst þó verst er að ef til stjórnarskipta kæmi, að þá er ekki víst að í tvö embætti réðust tvær af landsins bestu stjórnmálakonum, sem nú eru í stjórn, Jóhanna Sigurðardóttir í félagsmálaráðuneytið og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir í menntamálinn. Þarna fara tvær mjög heilsteyptar konur í þeim embættum sem þeim er falið og væri það slæmt að missa þær úr ríkisstjórn. Allir hinir eru útskiptanlegir og hafa ekki sýnt neinar þær dyggðir sem sæma góðum ráðherrum og hver sem er gæti gert betur en þeir. Því er ekki að undra að jafn öflug mótmæli og hafa verið að undanförnu sé verulegur stuggur á ríkisstjórnina, Geir óttast að verða atvinnulaus og því má hann ekki prófa það eins og svo margir aðrir eru að reyna þessa dagana?

wRvik 180407_JSM9954wVH 230207_JSM2901


mbl.is Fallast á að yfirgefa flugvöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Frétta viðhorf og samfélagið !

Viðhorf um stjórnmál og samfélagslegar þarfir, samgöngur, menntun, öryggismál og heilbrigðismál.

Höfundur

Jón Svavarsson
Jón Svavarsson

Starfandi fréttaljósmyndari. skoðið myndir á; www.motivm.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 77911

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Spurt er

Hvert á að fara í frí í sumar?

Bloggvinir

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Hverfisgata 150620 J2X1713
  • Hverfisgata 150620 J2X1529
  • Hverfisgata 150620 J2X1396
  • Hverfisgata 150620 J2X1285
  • Hverfisgata 150620 J2X1840
  • Se-Buss 301220 J2X3920
  • wVitinn 090520 JX25329
  • ...810_jon9993
  • ...810_jon1809
  • ...810_jon1773

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband