Copenhagen Open 15. til 17. febrúar 2008 Kaupmannahöfn.

wCph 150208_JSM3829wCphO 150208_JSM1183wCphO 150208_JSM1636wCphO 150208_JSM1698wCphO 150208_JSM1776wCphO 150208_JSM1829wCphO 150208_JSM1926wCphO 150208_JSM1986wCphO 150208_JSM2013wCph 150208_JSM3648wCphO 150208_JSM2010wPetur Anita 170208_JSM3454wPetur Anita 170208_JSM3415wPetur Anita 170208_JSM3345wPetur Anita 170208_JSM2164

Hér gefur að líta smá sýnishorn af dansmyndum fleiri myndir eiga eftir að birtast og eins er ekki endanleg upptalningin hér fyrir neðan 

 

Jæja þá er keppnin Copenhagen Open 2008 í samkvæmisdönsum lokið, keppnin var haldin í Valby Hallen í kaupmannahöfn. Íslendingunum gekk mjög vel, Aníta Lóa Hauksdóttir, 9 ára, og Pétur Fannar Gunnarsson, 10 ára, frá dansdeild ÍR voru hlutskörpust í keppni í latíndönsum, flokki börn 2, í keppninni, sem haldin var um helgina í aldursflokki 11 ára og yngri. Þau lentu einnig í þriðja sæti í standarddönsum í samaflokki og unnu í 10 dansakeppnina (Combi) þar sem 6 af 19 pörum voru frá íslandi..Andri Fannar Pétursson og Helga Kristín Ingólfsdóttir höfnuðu í öðru sæti í flokki Junior 1 latin á föstudeginum. Alex Freyr Gunnarsson og Oksanna Tsykalyuk urðu í öðru sæti í flokki ungmenna latin og í 10 dansakeppninni, auk þess voru fleiri dansarar eins standa sig frábærlega vel, eins og Alexander Mateev og Lilja Harðardóttir, Björn Ingi Pálsson og Denise Yaghi gekk vel í flokki standard undir 21, Przemek Lowicki og Ásta Sigvaldadóttir komust í 12 liða undanúrslit í flokki IDSF Amatörar latin, í sama flokki komst Gunnar Hrafn Gunnarsson og Anne Bruun Baden í 24 liða úrslit, en Gunnar og Anne keppa fyrir hönd Danmerkur og eru nýlega byrjuð að æfa saman og má segja að þetta sé mjög góður árangur hjá þeim. Vel gekk í flokki barna í gær morgun og voru Íslendningar þar í öðru og þriðju sætum. Líklega er þetta með þeim besta árangri sem náðst hefur í danskeppnum sem íslensk ungmenni hafa tekið þátt í á erlendri grund, sýnir þetta að við eigum frábæra kennara og þjálfara í samkvæmisdönsum og er ljóst að mikill metnaður er lagður í þjálfun þessara ungmenna. Það skal tekið fram að keppendur á þessu móti skipta hundruðum og eru frá 28 löndum víðsvegar að úr heiminum og er það ljóst að meðal keppenda eru meistarar á heimsmælikvarða. Keppnin stóð yfir frá miðjum degi á föstudag fram á miðnætti, frá klukkan 10 á laugardagsmorgun fram á miðnætti og lauk svo á siðasta keppnisdeginum á sunnudag frá 10 um morgunin til klukkan 8 um kvöldið.

.

MOTIV-MEDIA, Jón Svavarsson,
+354 8930733  motiv@simnet.is
Sjá myndir og fréttir/see pix and news:
www.123.is/MOTIVMEDIA
www.pixlar.is  www.chef.is  
 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Æðislegar myndir. Reyndar finnst mér þetta alltaf hálf ckeepy að sjá börn og unglinga útbúið eins og lítið og vanþroska fullorðið fólk.

Rúna Guðfinnsdóttir, 17.2.2008 kl. 11:47

2 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Frábær árangur og flottir krakkar.

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 17.2.2008 kl. 13:17

3 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Flottar myndir ... er þetta ekki Fjóla Finns þarna með þér?

Ingibjörg Hinriksdóttir, 17.2.2008 kl. 20:52

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Æðislegar myndir og takk fyrir þær.  Ég þekki þarna eina unga snót.  Fallegar myndir af duglegum börnum.

Ásdís Sigurðardóttir, 17.2.2008 kl. 22:38

5 Smámynd: lady

alltaf ertu jafnduglegur að taka myndir Jón minn ,og þar að auki fallegar myndir ,enda er kraftur í þér  kveðja Ólöf Jónsdóttir

lady, 18.2.2008 kl. 15:38

6 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Flottar myndir og frábært að sjá gleðina sem skín af dönsurunum.

Steingerður Steinarsdóttir, 20.2.2008 kl. 10:06

7 Smámynd: Valur Stefánsson

Sæll Jón og takk fyrir síðast.

Þetta var frábær ferð og virkilega gaman að sjá hve vel íslensku pörunum gekk.  Ég setti nokkrar myndir inn hjá mér en gaman að fá þig professional ljósmyndarann á svæðið.

Kveðja Valur

Valur Stefánsson, 20.2.2008 kl. 13:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Frétta viðhorf og samfélagið !

Viðhorf um stjórnmál og samfélagslegar þarfir, samgöngur, menntun, öryggismál og heilbrigðismál.

Höfundur

Jón Svavarsson
Jón Svavarsson

Starfandi fréttaljósmyndari. skoðið myndir á; www.motivm.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 77912

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Spurt er

Hvert á að fara í frí í sumar?

Bloggvinir

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Hverfisgata 150620 J2X1713
  • Hverfisgata 150620 J2X1529
  • Hverfisgata 150620 J2X1396
  • Hverfisgata 150620 J2X1285
  • Hverfisgata 150620 J2X1840
  • Se-Buss 301220 J2X3920
  • wVitinn 090520 JX25329
  • ...810_jon9993
  • ...810_jon1809
  • ...810_jon1773

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband