Afhverju ertu að þessu Bergsteinn??????

wRvik 180407_JSM9161wRvik 180407_JSM9375wRvik 180407_JSM9621wRvik 180407_JSM9954 

 

Þú sem fullvaxta maður með þokkalega greind ættir ekki að vera að slá svona fullyrðingum fram. Það er hægara sagt en gert að fá húsaeigendur til að klára þær endurbætur sem þeim er fyrir lagt, meir að segja opinberum fyrirtækjum. Ég veit til þess að gefin var út mjög svört skírsla um ástand eldvarnamála í Grunnskólum Kópavogs fyrir um ári síðan, mörg af þeim atriðum voru ítrekanir á eldri kröfum, jafnvel all nokkura ára gamlar sumar, enn er lítið sem ekkert farið að hafast við því að klára þau mál á þeim bæ. Ýmsar fyrirmæltar endurbætur á eldvörnum í þinni tíð eru sjálf sagt enn í ólestri, svo hver ætti að líta sér nær. Eflaust er hægt að gera miklu meira í eldvarnarmálum og margt af því kostar ekki mikið og er það því synd ef menn hafa komist upp með það árum saman að slugsa með hlutina. "en það er gott að búa í Kópavogi, jafnvel þó allt brenni.


mbl.is Fyrrum brunamálastjóri segir eldvarnareftirlit hafa brugðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ekki nóg að hafa "virkt" eftirlit heldur þarf að fylgja því eftir að farið sé að þessum tilmælum.  Ekki er nóg að gera athugasemdir ef menn komast svo upp með það jafnvel áratugum saman að gera ekki neitt í málinu. Ég starfaði um tíma í málum tengdum eldvörnum og það er með ólíkindum hvað illa er fylgst með bæði í nýbyggingum sem og eldra húsnæði að farið sé eftir reglugerðum. Íslendingar eru alltaf að státa sig af því að byggja traust og góð hús, en eldvarnir og eftirlit með þeim er verulega ábótavant hér á landi. Fúsk í brunaþéttingum og eldvarnahólfun húsa er miklu algengara en menn gera sér grein fyrir.

Jón Sig. (IP-tala skráð) 22.4.2007 kl. 22:30

2 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Það er svo skrýtið að það er eins og við Íslendingar trúum því aldrei að það kvikni í hjá okkur eða þar sem við erum stödd. Alþekkt íslenskt fyrirbrigði er að allir sitja sem fastast og blikka ekki auga þó brunabjalla fari í gang í fyrirtækjum. Ég er þarna engin undantekning.

Jóna Á. Gísladóttir, 23.4.2007 kl. 00:35

3 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Auðvitað mega eldvarnir vera í betra lagi. Og bráðnauðsynlegt að tala um þær og benda á.
Þegar söguleg hús verða eldi að bráð verður að spyrja hvaða eldvarnir  þarf að setja í önnur gömul hús. Það eru margar leiðir til að svona tjón verði sem minnst og maður hefur á tilfinningunni að ekki sé allt með felldu í þessum málum í Reykjavík.

Kveðja úr 7 hæða timburhúsi á Manhattan.

Ólafur Þórðarson, 23.4.2007 kl. 22:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Frétta viðhorf og samfélagið !

Viðhorf um stjórnmál og samfélagslegar þarfir, samgöngur, menntun, öryggismál og heilbrigðismál.

Höfundur

Jón Svavarsson
Jón Svavarsson

Starfandi fréttaljósmyndari. skoðið myndir á; www.motivm.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Spurt er

Hvert á að fara í frí í sumar?

Bloggvinir

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Hverfisgata 150620 J2X1713
  • Hverfisgata 150620 J2X1529
  • Hverfisgata 150620 J2X1396
  • Hverfisgata 150620 J2X1285
  • Hverfisgata 150620 J2X1840
  • Se-Buss 301220 J2X3920
  • wVitinn 090520 JX25329
  • ...810_jon9993
  • ...810_jon1809
  • ...810_jon1773

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband