Þegar greiða á atkvæði?????????

Þá vakna áleitar spurningar! Hverjum er best treystandi fyrir að stjórna þjóðarskútunni án þess að sigla henni í kaf og hverjum er treystandi til að auka hagvöxt svo að allir landsmenn hagnist á því en ekki bara, að þeir ríkari verði enn ríkari og fátækir verði enn fátækari!

wVH 230207_JSM2933Oft þegar stórt er spurt þá er oft minna um svör. En þessar hugleiðingar gerast æ áleitnari með hverjum deginum. Fyrir dyrum stendur að Hafnfirðingar gangi að kjörborðinu til að kjósa um eða ekki Álver. Enn og aftur eru landsmenn dregnir í dilka með hverjir séu með kosningarétt og hverjir ekki. Eins og þetta sé eitthvað einkamál Hafnfirðinga, ég veit ekki betur en álverin greiði öll tekjuskatt til ríkisins sem fer í sameiginlega kassann hjá Árna Matt, sem er síðan notaður til að greiða fyrir vegagerð, sjúkrahús og alskyns almennings þjónustu sem við öll notum. Sama var með Reykjavíkurflugvöll, Reykvíkingar efndu til kosninga um hann, án þess að eiga nokkuð í því landi þar sem hann er staðsettur á, því ríkið á það land og hverjir eiga ríkið, jú við landsmenn!

wRK 280207_JSM6624           wHLv 280706_JSM0017    Því segi ég enn og aftur, það er ekki einkamál einhverja smáþorpa á landsbyggðinni það sem kemur allri þjóðarskútunni til að sigla áfram. Vitaskuld þarf að hafa aðhald og fyrihyggju í ÖLLUM málum, ekki bara sumum, því það sem við ákveðum í dag þurfa afkomendur okkar að lifa við síðar, og viljum við ekki tryggja afkomendum okkar sem besta afkomu í framtíðinni? JÚ og aftur JÚ segi ég, allt þetta fjas um álver, virkjanir, flugvelli og margt fleira er öllum viðkomandi, jafnt eins og tvöföldun Reykjanesbrautar eða suður og vesturlandsvegana. Sjálfur er ég fylgjandi því að halda rekstri álversins í Straumsvík áfram og ég treysti því að þeir geri allt sem hægt er að gera til að koma í veg fyrir spillingu á andrúmsloftinu, hinsvegar set ég spurningamerki um það hvort að vit sé í að fjölga slíkum stórverksmiðjum og hygg að betra sé að finna eitthvað annað til að halda uppi atvinnu á landsbyggðinni. Til eru margir aðrir vænlegir möguleikar í HÁTÆKNI iðnaði sem ekki hefur verið hlúð að og er það synd að Marel skuli vera að loka framleiðslu sinni hjá Póls á Ísafirði, það eru alvarleg afturför.

wHLv 240706_JSM8891Einmitt í litlum byggðakjörnum eins og Ísafirði, Akureyri og Húsavík er tilvalið að reka háþróaðan tækni iðnað og hugbúnaðarfyrirtæki. Slík fyrirtæki krefjast jafnan lítillar orku og skila heilmiklu framlagi, ef vel er haldið á spöðunum. Ég mótmæli hér formlega því að lítil byggðalög eins og Hafnarfjörður og Reykjavík fái einir að kjósa um jafn afdrifarík mál og stóriðju og aðal samgönguæð við landsbyggðina, flugvöllinn. Ég krefst þess að allir séu jafnir við kjörborðið og þetta verði tekið upp hjá JAFRÉTTISNEFND sem á að tryggja jafnrétti í landinu, ekki bara kynbundnu heldur einnig svæðisbundnu. Ég veit ekki betur en allir hafi þurft að borga Viðlagasjóðsgjald, framlag til Þjóðarbókhlöðu, vegaskatt og fleiri gjöld, sem væri hægt að telja upp, allt er þetta sameiginlegtog hvað þá allar mögulegar tekjulindir hvort sem um er að ræða Álver eða fiskikvóta, þegar upp er staðið þá er það fólkið í landinu sem á auðæfin, orkuna og arðin af því sem öll þessi starfsemi skilar.Stór Kópavogsbúin Jón Svavarsson

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Ég veit alveg hvað ég ætla að kjósa í alþingiskosningunum  og vildi svo sannarlega kjósa með þér í kosningunum um næstu helgi.... en stækkunarferlið var nú komið annsi langt þegar farin var vinkilbeygja og ákveðið að kjósa um málið...er verulega hugsi yfir því ferli öllu saman.

Það er annars merkilegt hvað Ingibjörg Sólrún sagði.. það skiptir ekki máli þó  deiliskipulagið verði samþykkt í Hafnarfirði..hún er á móti fleiri álverum og stækkun í Straumsvík. Ekki man ég til þess að tekið hafi verið tillit til radda landsbyggðarinnar varðandi flugvöllinn í Reykjavík..þá eins og þú nefnir réttilega var þetta alfarið í höndum Reykvíkinga.

Herdís Sigurjónsdóttir, 27.3.2007 kl. 10:12

2 Smámynd: Jón Svavarsson

Takk fyrir kveðjuna Herdís, en því miður fæ ég ekki að kjósa um Álverið þar sem ég bý í Kópavogi og éeg segi aftur og enn að það er með ólíkyndum hvað fólki finnst ýmistlegt sem varðar þjóðarhag vera eitthvert einkamál eins smá þorps úti á landi, eða eiga kanski bara Kópavogsbúar að kjósa til Alþingis í vor? Ég bara segi svona!

Jón Svavarsson, 27.3.2007 kl. 11:57

3 Smámynd: Sverrir Einarsson

Jú jú  sé alveg "hátækniiðnað" fyrir mér á Húsavík t.d. en hvað myndu margir fá vinnu við það....sennilega allir hámenntuðu verkamennirnir sem búa á Húsavík og vilja búa þar áfram....samt efa ég það. Hvað kemur álverið til með að veita mörgum verkamönnum á Húsavík vinnu? ég held að álverið hafi vinninginn.

Og auðvitað eiga bara Reykvíkingar að kjósa um hvort flugvöllurinn verði í Reykjavík, það eru jú þeir sem verða fyrir ónæðinu af flugumferðinni. það þarf ekki endilega að leggja flug innanlands niður eins og margur af landsbyggðinni heldur að hafi verið kosið um, og jú Reylvíkingar eiga líka einir að kjósa til Alþingis það er jú í Reykjavík.....eða er það ekki annars

venlig hilsen...

Sverrir Einarsson, 28.3.2007 kl. 18:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Frétta viðhorf og samfélagið !

Viðhorf um stjórnmál og samfélagslegar þarfir, samgöngur, menntun, öryggismál og heilbrigðismál.

Höfundur

Jón Svavarsson
Jón Svavarsson

Starfandi fréttaljósmyndari. skoðið myndir á; www.motivm.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Spurt er

Hvert á að fara í frí í sumar?

Bloggvinir

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Hverfisgata 150620 J2X1713
  • Hverfisgata 150620 J2X1529
  • Hverfisgata 150620 J2X1396
  • Hverfisgata 150620 J2X1285
  • Hverfisgata 150620 J2X1840
  • Se-Buss 301220 J2X3920
  • wVitinn 090520 JX25329
  • ...810_jon9993
  • ...810_jon1809
  • ...810_jon1773

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband