Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Fóru þeir mannavilt?????

423599A     f09180205_bjorn__02 myndirnar eru af vef mbl.is

Þessi mynd er líkari Birni Bjarnasyni en nokkurn tíman Tony Blair, skildu þeir hafa ruglast á einhverjum ráðherrafundinum? og ég er sammála því að fækka eigi kjarnavopnum mannfólkið hefur ekki efni á að slík vopn séu yfirhöfuð til, stríð og manndráp eig ekki að eiga sér stað, elskum friðin og elskumst frekar en að drepa allt og alla.


mbl.is Íranar segja kjarnorkuáætlanir Breta vera „alvarlegan afturkipp“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er alltaf gaman í leikhúsi!!!!!

                        wVH 230207_JSM2861 

Ekki ríður við einteyming þarna í stórleikhúsi landsins, dæmigert fyrir lélega stjórnmálamenn að þæfa mál og fara í kringum málin eins og heitan grautinn. Auðlindir landsins eru og verða í eigu landsmanna, önnur skilgreining er þjóðarstuldur og í einhverjum vanþróuðum löndum væru menn teknir af lífi sem landráðamenn, sem telja annað.
mbl.is „Gengur ekki að margir séu að reyna að stjórna þingfundi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

.....heldur frelsa oss frá illu, .....

wKMm 060207_JSM7328Margi hafa velt fyrir sér því umtali sem verið hefur um hin margrómaða Smáralindarbækling. En líklega getur fólk verið á ýmsum skoðunum með hann, sumum finnst hann kanski höfða of mikið til ungafólksins og vera kanski of nærgöngull á viðskiptavit ungafólksins þeas höfða til þess að það sé nauðsynlegt að eignast tölvubúnað og dýrar gjafir fyrir tugi ef ekki hundruði þúsunda. Þetta fer að verða eins og margir tala um með jólavertíðina, sífelt verið að búa til þarfi sem í raun eru tilbúnar en ekki nauðsyn. Gildismat fólks er orðið svo brenglað að allir verða að eiga tölvur, stafrænarmyndavélar, flottustu símana og rándýra bíla. Svo eru þeir aðrir sem enn eru með gamla túpu sjónvarpið og ferðast með strætó en eru samt alsælir. Ég held að fólk megi oft láta sér nægja minna fyrir meira, sína hvert öðru umburðarlyndi og sanngirni. En í tengslum við umfjöllunina um Smáralindarblaðið þá læt ég þessa litlu sögu fylgja með, góðar stundir. 

En ég skil hugsunarháttinn!!

Snáði einn sem átt hafði í rökræðum við kennslukonuna, lagði fyrir hana eftirfarandi spurningu;Þrjár konur fengu sér rjómaís í brauðformi, ein sleikti hann af áfergju, önnur beit í hann og smjattaði á honum og sú þriðja saug hann með unaðs hljóðum. En hver þeirra var sú gifta?

Kennslu konan hugsaði sig vandlega um og svaraði svo, sennilega sú þriðja sem saug hann!

Nei sagði sá stutti, það er auðvitað sú með giftingarhringin en ég kannast við svona hugsunarhátt!!!!!!!


Til hamingju Útvarpsstjóri ohf.

wRK 280207_JSM6527Til hamingju Páll og megi þér vegnast vel í þessu nýja embætti. Það er þó skoðun mín að Ríkisútvarp og grunnlínukerfið ásamt öllu dreifikerfi fjarskipta, þar á meðal dagskrárefnis ljósvakamiðla, ætti að vera í eign ríkis/landsmanna og önnur þau þjónustufyrirtæki eins og Síminn, RÚV, Stöð 2, Vodafone og hvaða nafni sem nefnist eigi síðan jafnan aðgang að dreifingunni á heildsöluverði, sem ætti að duga til að reka og viðhalda öflugu dreifikerfi. Þannig að allir landsmenn væru tryggðir fyrir því að njóta sömu þjónustu allstaðar og þá væri einnig hægt að efla dreifikerfi farsíma og allir væru sáttir. En samkeppnin væri fólgin í sölu á auglýsingum og hagræðingu í símaþjónustu og þá væri samkeppnin eðlileg allir við samaborð. Skoðun mín byggist jú á því að það erum við skattgreiðendur sem borguðum brúsan upphaflega og síðan koma misvitrir stjórnmálamenn og selja auðæfin fyrir slikk.
mbl.is Páll Magnússon útvarpsstjóri og framkvæmdastjóri Ríkisútvarpsins ohf.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarna er enn eitt klúðrið í umferðarmannvirkjum!

Skildi það vera að menn finni nokkra svartabletti í umferðarskipulagi borgarinnar, svona koma þau í ljós hvert af öðru. En vita skuld eru það samt ökumennirnir sem eru ekki með hugan við aksturinn, en þarna eru gildrur, þó menn hafi ekki ætlað að setja þær viljandi. Hægur leikur væri að loka þessari vinstribeygju af Kringlumýrarbraut og láta menn aka um Litluhlíð frá Bústaðavegi inn í þetta hverfi.
mbl.is Harður árekstur þriggja bíla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samúðarkveðjur og hvattning til stjórnvalda!

Já það er sorglegt þegar svona fer, og ég tek undir orð ráðherra þar sem hann leggur áherslu á ÖRYGGISMÁL sjómanna. Það er aldrei ofgert í þeim málum og síðustufregnir af skattlagningu á fjarskiptabúnað sjófarenda og annara sem treysta á öryggi fjarskipta er með ólíkindum. Við getum gert betur en það!Ég votta aðstandendum samúð mína á þessum sorgarstundum. Einar K Guðfinnsson segir ma;En hið hræðilega slys núna, minnir okkur engu að síður á að starf sjómannsins við erfiðar aðstæður er ekki hættulaust. Okkur ber því skylda að hafa öryggismálin sem fyrr í forgangi. Það er okkur öllum ljóst og það skulum við því gera.“
mbl.is „Sorglegra en orð fá lýst“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eninga meninga RÍKIÐ vill meiri peninga!

                           wRK 280207_JSM6759 

Ég tek undir þau orð Sigurðar Ásgeirssonar, að margir eiga eftir að taka þessi ÖRGYGGISTÆKI úr umferð, sem væri synd. Það þarf alltaf að vera að finna upp hjólið, nýja skatta, hvernig væri að setja skatt á þingmenn sem tala of mikið og framkvæma of lítið? Hvernig væri að finna aðrar lausnir til að stafrækja Póst og fjarskiptastofnun ef þetta er til rekstrar þeirrar stofnunar. Sífeldar skattlagningar eru ekki alltaf samfélaginu til framdráttar og þegar vegið er að öryggismálum sem þessu, þá spyr maður sig hvað eru menn að hugsa. það var aðeins bara í nótt sem bátur fórst með tveim mönnum og akkúrat á stað sem er mjög erfiður hvað fjarskipti varðar, hvort heldur er sími eða talstöðvar. Ættu menn að hugsa betur málið áður en slík afdrifarík ákvörðun er tekin. 


mbl.is „Menn munu fjarlægja þessi tæki“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn eitt skipulagsklúðrið í gatnamálum!!!!!!!

                 Slys 240406_JSM0294 

Það kemur ekki á óvart að þarna verði árekstrar, einu sinni var þarna aðrein sem var frekar ófullkomin og var síðan tekin af því það voru alltaf árekstrar þarna. En málið er að þeim hefur ekkert fækkað fyrir því. Leitt er til þess að vita og sjá til margra ökumanna á aðreinum hvernig þeir kunna ekki að nota þær til þess að komast inní umferðina án þess að stoppa og þeirra sem fyrir eru á akreinunum sem aðreinin liggur að að þeir gefa ekki færi á hleypa hinum inn í umferðina. En sumataðar virkar þetta sundum, á Bústaðabrúnni þegar ekið er í átt til Kópavogs, þá eru sumir mjög góðir í að komast þar inn á aðreinina áður en komið er niður á Kringlumýrarbrautina og svo þegar þangað er komið er þessi fína akrein sér fyrir þá sem komu ofan af brúnni. Ég er alveg handviss ef gerð yrði alvöru aðrein þarna á Reykjanesbraut við Bústaðaveg, þá myndi snar fækka árekstrum og slysum á þessum stað og umferðin yrði greiðari fyrir vikið og færri óánægðir og pirraðir við að komast í Breiðholtið og ef vel ætti að vera þyrfti að vera þarna mislæg gatnamót því umferðarþungin er það mikill þarna.
mbl.is Þrír slösuðust í árekstri á Reykjanesbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skurðir og gjár!

wLS 230906_JSM7057 

Það er ekkert nýtt að Kópavogsbær hefur verið talinn framtakssamur í byggingamálum og þeim framkvæmdum sem þar hafa verið samþykktar. En ber ekki að skoða málið betur áður en farið er í landsspjöll og hafa málin á hreinu, alltof oft er kappið ekki með forsjá og gleymast þá mjög mikilvægir þættir sem vert er að huga að áður en hafist er handa við jafn afdrifaríkar aðgerðir og þessi virðist vera. Oft getur almenningur ekki metið umfang mála því ýmist er gert of lítið úr þeim eða of mikið, í umfjöllunum fjölmiðla og slíkt er hlutdrægt. Allt of oft er ekki tekið tillit til skoðana almennings með athugasemdir um skipulagsmál, þrátt fyrir köllun á slíkar athugasemdir, grendarkynning, og oftar en ekki er breytt gegn vilja fjöldans og hugmyndir að betra fyrirkomulagi virtar að vettugi.


mbl.is Náttúruverndarsamtök Íslands kæra framkvæmdaleyfi í Heiðmörk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott framtak, þetta er löggæsla!

                                         w112D 110207_JSM8784
 

 

Já umferðaeftirlit er meira en bara radarmælingar, það er vonandi að þetta sé ekki bara í þetta eina sinn sem þeir gera svona rassíu, því þörf er á að gera svona athuganir jöfnum höndum og einnig að taka fyrir eftirlit með notkun stefnuljósa og bílbelta, það er einnig liður í auknu umferðar öryggi, að ég tali nú ekki um ástand bifreiða og ljósabúnað almennt. Haldið áfram á þessari braut, verið sýnilegi í löggæslunni það er besta slysavörnin í umferðinni. Ef þið sjáið lögreglubíl við umferðagötu, að ég tali ekki um með blikkandi ljós þar sem þeir hafa jafnvel stöðvað einhvern, þá er umferðin öll þá stundina amk 10 KM undir leyfðum hámarkshraða og silast áfram. Takið bara eftir því að þá eru ökumenn vel vakandi, amk flestir þeirra, en kemur fyrir að árekstrar verði í nánd við svona aðstæður, því stöku ökumaður er nefnilega ekki vakandi við aksturinn og er á sama tíma sá hættulegasti, því það eru þeir sem valda slysunum.


mbl.is Vöruflutningabílar með ótryggan farm kyrrsettir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Frétta viðhorf og samfélagið !

Viðhorf um stjórnmál og samfélagslegar þarfir, samgöngur, menntun, öryggismál og heilbrigðismál.

Höfundur

Jón Svavarsson
Jón Svavarsson

Starfandi fréttaljósmyndari. skoðið myndir á; www.motivm.is

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Spurt er

Hvert á að fara í frí í sumar?

Bloggvinir

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Hverfisgata 150620 J2X1713
  • Hverfisgata 150620 J2X1529
  • Hverfisgata 150620 J2X1396
  • Hverfisgata 150620 J2X1285
  • Hverfisgata 150620 J2X1840
  • Se-Buss 301220 J2X3920
  • wVitinn 090520 JX25329
  • ...810_jon9993
  • ...810_jon1809
  • ...810_jon1773

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband