Gefið þeim heldur VÉLBYSSUR!!!!

w1M 010508_JSM8148w1M 010508_JSM8160w1M 010508_JSM9044

 

 

Það kann að vera að þetta séu einar mest rannsökuðu "Valdbeitingartæki" sem um getur, en hvað skildi þá valda því? Er ekki um að ræða eitt VAFASAMASTA VOPN sem um getur! Ég held að offarir Lögreglunar á Suðurlandsvegi nýverið, undirstriki það svo sannarlega, því hættan fellst í því að innan um eru menn, í Lögreglunni, sem svífast einskis og hafa lögin með sér, hvað sem við segjum. Öll þau myndskeið sem ég hef skoðað sýna ekkert annað en sadiska tilhneigingu hjá þeim Amerísku löggæslumönnum sem hafa þetta vopn undir höndum. Ef svo heldur áfram þá verður tekin upp AÐSKILNAÐARSTEFNA hér á Íslandi, þeas ríkir og fátækir, því þessir ríku vilja sko ekkert múður í þeim fátæku og það skal sko barið niður, HVAÐ SEM ÞAÐ KOSTAR!

Stjórnvöld á Íslandi hafa verið iðin við að sleikja upp Evróðuríkin og innleiða allskyns reglur og lög, sem í raun eru ekki sniðin að þörfum Íslands. Þá á ég við að margt af því sem þau snúast um eru góðra gjalda verð og eru samin í góðum tilgangi, sum atriði þeirra eru nauðsynleg okkur til verndar. En málið er ekki alltaf svona einfalt, því margar af hliðarverkunum á þeim meðulum eru ekki í takt við þær aðstæður og þann aðbúnað sem við höfum hér á Íslandi. Því vantar alltaf auka ákvæði til aðlögunar og til að undanskilja það sem er óframkvæmanlegt.

Áleitnar spurningar!

Hver er með umboð fyrir þessum vopnum og hagnast á sölu þeirra?

Hver ætlar að fullyrða að þær komi í veg fyrir slys á Lögreglumönnum?

Hvers á ALMENNINGUR að gjalda?

Elskið friðin og strjúkið kviðin! 


mbl.is Allir lögreglumenn fái rafstuðbyssu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Innlitskvitt og kveðja héðan úr sveitinni

Ía Jóhannsdóttir, 3.5.2008 kl. 20:42

2 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Flottir alltaf Íslendingar. Um leið og aðrar þjóðir eru að velta því fyrir sér hvort eigi að takmarka aðgan lögreglumanna að teiserbyssum þá vilja Íslendingar endilega dreifa þeim til allra.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 4.5.2008 kl. 00:17

3 Smámynd: Halldór Þórðarson/dóritaxi

Smiley GunAð vopnvæða lögregluna væri algjör skandall hugsið ykkur hvað hefði gerst ef þessi "gas gas lögga" hefði nú verið með skotvopn það hefði endað illa en ef af verður og löggan fær skotvopn þá mæli ég með að þeir fái bara vatnsbyssur.

Halldór Þórðarson/dóritaxi, 4.5.2008 kl. 12:32

4 Smámynd: Guðjón H Finnbogason

Hvernig er þetta hjá nágrönum okkar?

Guðjón H Finnbogason, 6.5.2008 kl. 21:41

5 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég er nú þeirrar skoðunar að lögreglan þurfi að mæta þessari auknu ruddalegu hörku sem orðin er hér á landi og á ég þá sérstaklega við glæpastarfsemi og ósnertanlega eiturlyfjabaróna og dílerana þeirra.

En þetta var stór skandall í sambandi við mótmælin á Suðurlandvegi.Óskiljanlegt.

Ég veit nú ekkert hvað er best til ráða í þessum efnu en það held ég sjái allir að eitthvað þarf að fara gerast sem er í takt við tímann.

Menn eru sífellt að rakka niður lögregluna og þeirra störf og ekki störf.það ber ekki einn einasti kjaftur vurðingu fyrir Löggunni lengur.Þessu þarf að beryta og finnst mér sú breyting þurfa að koma frá okkur.Okkur ber að vera löghlíðin og kenna afkomendum okkkar það.

Solla Guðjóns, 9.5.2008 kl. 22:39

6 Smámynd: Halldór Þórðarson/dóritaxi

Eftir höfðinu dansa limirnir stendur einhverstaðar á góðum stað og á það vel við í okkar þjóðfélagi eins og það er í dag, virðingarleysi tröllríður öllum hlutum  jafnvel  er fólk hætt að bera virðingu fyrir mótmælum á hlutum sem öllum kemur við og varðar alþjóð, nei allir hólkast áfram í sínu þrönga röri og sjá ekkert nema það sem fyrir enda þess eigin rörs ber fyrir sjónir, talandi um að lögreglan sé bara að vinna vinnuna sína þegar hún kemur fram með offorsi gagnvart fólki sem er að reina að tjá sig en er þá þessi tjáningarréttur bara einhliða ? ég bara spyr, bílstjórar hafa ekki farið í verkfall "ennþá" en hvað mynd gerast ef þeir hefðu sama hátt á og atvinnustéttir sem eru ríkisráðnar þeas. færu bara í verkfall þegar vantaði aðeins meira í launaumslagi um mánaðarmót, hvað gera  - kennarar í skólum og leikskólum, hjúkrunarfræðingar og jafnvel lögreglumenn ? jú, verkfallsvopnið er notað og hvað er gert ? auðvitað er gengið að þeirra kröfum og samið um kauphækkun sem gilda á í tvö ár en svo undarlega vill til að vegna breyttra aðstæðna hálfu ári síðar þá er aftur komið verkfall hjá þessum sömu stéttum og hvað gerist ? það eru bara gerðir nýir samningar vegna þess að þetta eru mikilvægar og leiðandi stéttir innan þjóðfélagsins en þá er spurningin hvað er þjóðfélag, eru það ekki við sjálf, fólkið sem mannar margar af áðurgreindum stéttum en líka þeim sem ekki fá að fara í verkfall þeas. verkafólk því þá kemur að því að bjarga þjóðarauðnum og hvað er gert ? bannað að mótmæla = það má ekki vera á móti en setjum sem svo að allir atvinnubílstjórar færu í verkfall HVAÐ ÞÁ ?  því er fljót svarað - ALGJÖRT KAOS - búðarhillur tómar, bensíndælur tómar, engin börn í skólunum, engir sjúklingar hjá læknum og svo mætti lengi telja en hvað gerist/gerðist ef/þegar þeir einstaklingar sem eru atvinnumenn í þessari stétt reyna að gera eitthvað til að rétta sinn hlut hvað varðar lífsafkomu ? þeim er bara snarlega stillt uppvið vegg og gerðir að óvinum fólksins og um leið þessa þjóðfélags sem við höldum að sé frjálst og í beinu framhaldi er kölluð til stórsveit lögreglumanna sem nýlega hefur fengið verulaga launabót til að berja/gasa svona aðgerðir snarlega á bak aftur, ég spyr nú bara eins og fá vís .... er ekki allt í lagi heima hjá ráðamönnum þessa lands?

Halldór Þórðarson/dóritaxi, 10.5.2008 kl. 02:03

7 Smámynd: Gunnar Kr.

Við erum 300.000, en Bandaríkjamenn eru 300.000.000. Þar eru framdir tugir alvarlegra brota á hverjum einasta klukkutíma, á meðan slíkt er enn fréttnæmt hjá okkur. Mér finnst það stórhættuleg stefna, ef löggumenn á landinu bláa eigi að fá rafstuðbyssur. Þeir hefðu aldeilis stuðað vörubílstjórana upp við Rauðavatn á dögunum, ef þeir hefðu allir haft slíkt í beltinu... „Ég hef áhyggjur af þessu, ég verð að segja það.“

Gunnar Kr., 10.5.2008 kl. 19:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Frétta viðhorf og samfélagið !

Viðhorf um stjórnmál og samfélagslegar þarfir, samgöngur, menntun, öryggismál og heilbrigðismál.

Höfundur

Jón Svavarsson
Jón Svavarsson

Starfandi fréttaljósmyndari. skoðið myndir á; www.motivm.is

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Spurt er

Hvert á að fara í frí í sumar?

Bloggvinir

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Hverfisgata 150620 J2X1713
  • Hverfisgata 150620 J2X1529
  • Hverfisgata 150620 J2X1396
  • Hverfisgata 150620 J2X1285
  • Hverfisgata 150620 J2X1840
  • Se-Buss 301220 J2X3920
  • wVitinn 090520 JX25329
  • ...810_jon9993
  • ...810_jon1809
  • ...810_jon1773

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband