BILLEGUR POPULISMI !!!

Steinunn Valdís notaði þessi orð á hæstvirta Alþingi nú fyrir hádegi, þar heldur hún uppi vörnum fyrir hæstvirtan fjármálaráðherra. Það er út af fyrir sig gott mál að halda uppi vörnun fyrir þá sem minna mega sín. En málið er bara þannig eins og háttvirtur þingmaður Jón Bjarnason sagði, að það er ekki forsvaranlegt að ekki sé hægt að fá svör við einföldum spurningum sem auðvelt ætti að vera að fá svör við og tregðan við þvi segir aðeins að einhverjir vilja FELA eitthvað fyrir alþjóð. Hér er í þessari frétt er fjallað um enn eina söluna sem ætluð er til einkavæðingar, já það hlítur að vera undirlægið að þessu öllu saman, en raunin er sú að einkavæðing veitufyrirtækja, hvort heldur er um orku, vatn, hita, eða fjarskipta, að þá hefur aðeins eitt komið út úr þeim gjörningum, gjaldskrár hafa HÆKKAÐ!!! Ekkert er að því að eðlilegur arður sé af fyrirtækjum ríkisnins, til framþróunnar afskrifta og eðlilega endurnýjun. Nýjir einka eigendur hafa ekki alltaf þessa sýn því þeim er mest í mun að græða sem mest fyrir sem minnst og þegar allt fer á versta veg fyrrast þeir allri ábyrgð. Alþingi Íslendinga er fyrir fólkið en ekki þingmennina, þangað velast fulltrúar fólksins, kjörnir með lýðræðislegri kosningu, en kjósendur eru ekki alltaf með það á hreinu til hvers það mætir á kjörstað og þegar að almenningi er vegið með skerðingum á bótum, skerðingu á heilbrigðis og læknisþjónustu, skerðingu á löggæslu, og síðast en ekki síst skerðingu á menntun barnanna okkar, þá skilur fólk ekkert í því hverjir kusu þessa menn á ÞING.

wRK 280207_JSM6527

Enn og aftur minni ég á það að Íslendingar eiga Ísland,  fólkið í landinu á þann sjálfsagða rétt að það geti búið hér við mannsæmandi kjör og af þokkalegu öryggi. Metnaðarleysi er eitt af því sem er að fara verst með samfélagið, öllum virðist sama hvernig málin enda og engin vill taka ábyrgð. Það er orðið tímabært að vakna til lífsins og kjósendur taki til óspiltra málanna og velji það fólk sem er að vinna fyrir fólkið en ekki valin hóp SJÁLFGRÆÐISMANNA.

 


mbl.is Vilja ekki heimila sölu á hlut ríkisins í Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Frétta viðhorf og samfélagið !

Viðhorf um stjórnmál og samfélagslegar þarfir, samgöngur, menntun, öryggismál og heilbrigðismál.

Höfundur

Jón Svavarsson
Jón Svavarsson

Starfandi fréttaljósmyndari. skoðið myndir á; www.motivm.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 77912

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Spurt er

Hvert á að fara í frí í sumar?

Bloggvinir

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Hverfisgata 150620 J2X1713
  • Hverfisgata 150620 J2X1529
  • Hverfisgata 150620 J2X1396
  • Hverfisgata 150620 J2X1285
  • Hverfisgata 150620 J2X1840
  • Se-Buss 301220 J2X3920
  • wVitinn 090520 JX25329
  • ...810_jon9993
  • ...810_jon1809
  • ...810_jon1773

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband