Mínútur skipta máli !!!

wRvik 180407_JSM9102wRvik 180407_JSM9272wRvik 180407_JSM9521wRvik 180407_JSM9801 

Já mínútur skipta verulegu máli, þegar eldur og mannslíf eru annarsvegar. Eins og Björn brunamálastjóri sagði í viðtali við Mbl, að 2004 er eldur kom upp í Lækjargötu 2, þá skipti það sköpum um að slökkvilið var komið á staðinn á fimm mínútum, hver mínúta skiptir verulegum sköpum við slíkar aðstæður. Margar ransóknir hafa verið gerðar og fræðslumyndir sýndar þar sem eldi hafði verið komið af stað við ýmiskonar aðstæður, eins og vindlingaglóð í sófa, klæði yfir borðlampa ofl þar sem eldur hefur oft hafist í húsum og hefur tímalínan á móti eldumfangi alltaf borið lægri hlut fyrir eldumfanginu því það eykst hraðar en tímalínan fær að vaxa og auk þess margfaldar sig með hverri sekúndu meir en nokkurn grunar. Auk þess sem eldur sogar í sig allt súefni sem hann nær í og það eitt kæfir fólk auk alls reyksins sem fylgir með. Það eru all mörg hús og merkar byggingar á landinu sem eru friðaðar, og því væri eðlilegt að slíkar byggingar væru í opinberi eigu sem eru einu aðilanir sem hafa burði til að varðveita þær og endurbæta til að tryggja þær sem best. Aðeins örfáir einstaklingar og þá helst eigna samsteypur hafa fjármagn til að gera nausynlegar úrbætur til að auka eldvarnir í gömlum húsum, en ég held að þessir peningamenn sjái samt önnur not fyrir peningana en að leggja þá í slíkar fjárfestingar, því þær skila svo litlum arði (eiginlega bara í mínus peningalega) en menningararðurinn er ómetanlegur og það sjá ekki peningamenn eða MAMONSMUNKAR. Það væri leitt að sjá á bak þessari sjón sem fyrir augum hefur verið frá upphafi byggðar í Reykjavík, sennilega væri skynsamlegast að byggja alveg nýtt hús í Austurstræti 22, og þá í sömumynd og það gamla, en þó með öllum nýjustu eldtejandi efnum og öllum þeim eldvörnum sem hægt er. Skynsamlegt væri að borgin myndi leysa til sín húsin og greiða eigendum sanngjarnt verð fyrir það þannig að brunatryggingar þess gengu til borgarinnar á móti og það yrði endurreist á þessum forsemdum, sama gildir um Lækjagötu húsin og að endurreisn lokinni þá yrði útboð um rekstur veitinga staðar á efrihæð Lækjargötu og á neðri hæðum yrðu verslanir álíka þeim sem þar eru fyrir auk ferðamanna verslunum og upplýsingaþjónustu, jafnvel ferðaskrifstofur. Auk þess væri möguleiki á að koma upp sögusafni um byggingu og vöxt Reykjavíkurborgar, auk sögu byggingarlistar íslenskra hönnuða, sem margir hverjir eru einnig vel þekktir erlendis.Ps; sjáið myndir FRÁ BRUNANUM á vefnum www.123.is/MOTIVMEDIA
mbl.is Ekki hægt að setja kröfur um að hús séu endurbyggð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Frétta viðhorf og samfélagið !

Viðhorf um stjórnmál og samfélagslegar þarfir, samgöngur, menntun, öryggismál og heilbrigðismál.

Höfundur

Jón Svavarsson
Jón Svavarsson

Starfandi fréttaljósmyndari. skoðið myndir á; www.motivm.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 77919

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Spurt er

Hvert á að fara í frí í sumar?

Bloggvinir

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Hverfisgata 150620 J2X1713
  • Hverfisgata 150620 J2X1529
  • Hverfisgata 150620 J2X1396
  • Hverfisgata 150620 J2X1285
  • Hverfisgata 150620 J2X1840
  • Se-Buss 301220 J2X3920
  • wVitinn 090520 JX25329
  • ...810_jon9993
  • ...810_jon1809
  • ...810_jon1773

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband